Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Bendir á stórhættulega slysahættu nærri Þingvallavegi: „Þetta er grafalvarlegt mál“

Bendir á stórhættulega slysahættu nærri Þingvallavegi: „Þetta er grafalvarlegt mál“

Stór­hættu­leg slysa­hætta er nærri Þing­valla­vegi í Mos­fells­dal en 11 hross eru á svæði þar sem ónot­hæf raf­magns­girð­ing liggur nærri veg­inum.

Hrafn­hildur P. Þor­steins hafði sam­band við Mannlíf en hún hefur gríð­ar­lega áhyggjur af ástand­inu í Mos­fells­dal þar sem 11 hross eru í haga nærri þjóð­veg­inum sem liggur um dal­inn. Raf­magns­girð­ing sem á að halda hross­unum kjurrum á svæð­inu er hvorki með straum né að fullu uppi­stand­andi en aðeins stendur neðri strengur girð­ing­ar­innar uppi og því auð­velt fyrir hrossin að sleppa. Í morg­un­myrkr­inu skap­ast því mikil slysa­hætta því umferð á veg­inum nærri hag­anum er á köflum mikil.

Hér má sjá mynd­band sem Hrafn­hildur tók í gær:

Hrafn­hildur full­yrðir í sam­tali við Mannlíf að um sama hrossa­eig­anda sé að ræða og kvartað var til MAST í fyrra en Mannlíf fjall­aði um málið á sínum tíma. Þá var ástandið á sumum hross­anna óásætt­an­legt, þau horuð og illa hirt.

Sjá einnig: Sá illa farin hross í Mos­fells­dal: „Við eig­and­ann vil ég segja að hann ætti að hund­skamm­ast sín“

Þá segir Hrafn­hildur að girð­ingin hafi í fyrra verið eins og nú, eng­inn straumur á henni. „Þarna fara allar rút­urnar og túrist­arnir, enda Gullni hring­ur­inn,“ sagði Hrafn­hildur í sam­tali við Mannlíf og átti við veg­inn sem liggur fram­hjá hag­anum. „Ef þú keyrir á hest, segjum bara á 80 kíló­metra hraða og þú færð hann inn um fram­rúð­una hjá þér, þá er það bara búið spil. Mér finnst þetta vera lít­ils­virð­ing fyrir lífi manna og skepna. Þetta er grafal­var­legt mál,“ sagði Hrafn­hildur enn­fremur og tók fram að hún væri ekki sú eina sem hefði af þessu áhyggjur. „Ég er búin að senda þetta á nokkra vini mína, hesta­menn og þeir eru brjál­aðir. Ég ætla ekki að hafa þetta á sam­visk­unni ef það verður slys, nú ég búin að koma þessu frá mér.“

Uppfært:

Regína Ásvalds­dóttir bæj­ar­stjóri Mos­fells­bæjar svar­aði fyrir skömmu fyr­ir­spurn Mannlífs um málið. „Ég mun kanna þetta mál og reyna að svara þér eins fljótt og auðið er.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi