Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Rífur nýjasta útspil Svandísar í sundur: „Grátur og nöldur SFS vegna þessa frumvarps er leikrit“

Rífur nýjasta útspil Svandísar í sundur: „Grátur og nöldur SFS vegna þessa frumvarps er leikrit“
Svandís Svavars­dótt­ir er nýr for­maður VG

Atli Þór Fanndal segir við­brögð Samtaka fyr­ir­tækja í sjáv­ar­út­vegi vegna frum­varps mat­væla­ráð­herra, vera leik­rit. Kallar hann þetta „stéttapóli­tík hinna ríku“.

Segja má að Atli Þór Fanndal, fram­kvæmda­stjóri Íslands­deildar Transparency International hafi ekki flutt eldræðu, heldur eld­færslu á Facebook í gær þar sem hann rífur í sig Svandísi Svav­ars­dóttur og Samtök fyr­ir­tækja í sjáv­ar­út­vegi. Tilefnið er nýtt frum­varp mat­væla­ráð­herra, sem heldur utan um sjáv­ar­út­vegs­mál, þar sem kveðið er á um að sjáv­ar­út­veg­ur­inn greiði um 800 millj­ónir meira í veiði­gjöld en áður. Segir Atli Þór að um leik­rit sé að ræða, ætlað til að slá ryki í augu almenn­ings.

„Stjórn­mála­menn hafa ára­tugum saman vitað að koma verður í veg fyrir of mikla sam­þjöppun í sjáv­ar­út­veg og taka af þeim umfram­rentu vegna þess að það er hættu­legt að fámennur hópur 100 manna verði svo ríkir að þeir eign­ist ekki bara allan sjáv­ar­út­veg heldur alla við­skipta­keðj­una, ótengdan rekstur, stjórn­málin og flytji svo slíkan ósóma út í formi spill­ingar í Namibíu og til dæmis Congo.“ skrifar Atli Þór í upp­hafi pistils­ins og heldur áfram. „Veiði­gjöld eru skatt­heimta til varnar lýð­ræð­inu og þetta vita stjórn­málin alveg. Það er póli­tísk ákvörðun að fórna spít­ölum, hafa hús­næð­is­markað í krísu, fjöl­miðla í krísu, eyði­leggja barna­bóta­kerfið, halda öryrkjum í fátækt­a­gildrum og geta ekki fjár­magnað ein­falda inn­viði svo sam­herjum megi úthluta almanna­gæðum til að stinga í eigin vasa.“

Segir Atli Þór að stjórn­máli hafi gert þetta vilj­andi, vit­andi hverjar afleið­ingar yrðu. Segir hann að við­brögð SFS sé leik­rit. „Það er ótrú­lega sorg­legt að sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra þykj­ist ætla að búa til enn eina sátt­ina til þess eins að auka völd þess manna. Grátur og nöldur SFS vegna þessa frum­varps er leik­rit. Það er ekk­ert í því sem kallar eftir ósætti útgerð­ar­innar. Veiði­gjöld hækka um 800 millj­ónir ef frum­varpið fer í gegn í núver­andi mynd. Rentan var metin 51 millj­arður 2020. Veiði­gjöld ná ekki fyrir rekstri sam­fé­lags­ins á innviðum vegna sjáv­ar­út­vegs. Þetta er stéttapóli­tík hinna ríku en ekki getu­leysi til að skilja hvaða afleið­ingar þetta hefur.“

Segir hann enn­fremur að útgerðin hafi „leiki sama leik gagn­vart Íslend­ingum og tók­baks­fram­leið­endur og olíu­fyr­ir­tæki gerðu gagn­vart heim­inum ára­tugum saman.“ Og hann heldur áfram. „Gríð­ar­legum pen­ingum og orku hefur verið eytt í að þvæla málum, þykj­ast leita sátta, birta vil­hallar rann­sóknir og láta eins og málið sé miklu flókn­ara en þegar er vitað. Þau vita alveg skað­semi gjörða sinna og hafa gert það ára­tugum saman. Þetta er skipu­lögð áróð­urs­her­ferð gegn almenn­ingi, gegn þekk­ingu. Mark­miðið er og hefur alltaf verið að kenna fólki að efast um eigin getu til að skilja nokkurn hlut.“ Þá hæð­ist Atli Þór að orða­lagi frum­varps­ins en þar er talað um að kenna almenn­ingin „haflæsi“. „Það heldur áfram í frum­varpi Svan­dísar þar sem áhersla er lögð á að kenna almenn­ingi ‘haflæsi’ eins og vand­inn sé enn einu sinni aðal­menn­ingur skilji ekki neitt. Bjarni Ben vill líka sífellt kenna okkur fjár­mála­læsi og nú kannski ‘utan­rík­is­læsi’. Þetta er bull og ekki bara það heldur aróður gegn okkur fjár­magn­aður af okkur.“

Í loka­orðum sínum hvetur Atli Þór Íslend­inga til að standa saman gegn spill­ingu. „Stöndum saman gegn spill­ingu! Rentuna alla til sam­fé­lags­ins! Útgerð­ar­menn verða ekk­ert illa staddir með hagn­að­inn einan. Hagnað sem þeir sann­ar­lega þurfa að vinna fyrir.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi