Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Refsigjald á foreldra í Árborg hækkar um helming – 3000 kr fyrir að sækja barnið mínútu of seint

Refsigjald á foreldra í Árborg hækkar um helming – 3000 kr fyrir að sækja barnið mínútu of seint
Um ára­mótin kostar 3000 krónur að sækja barn of seint í leik­skólum Árborgar. Myndin er samt­sett

Sveit­ar­fé­lagið Árborg hefur sent út til­kynn­ingu til for­eldra leik­skóla­barna vegna rúm­lega helm­ings­hækk­unar á leik­skóla­gjaldi er lúta að frá­vikum umsam­ins dval­ar­tíma. Kostar hvert korter nú 1.911 krónur en hækkar upp í 3.000 krónur.  Breyt­ingin á gjald­skránni tekur gildi 1. jan­úar 2024. Gjaldið sem um ræðir er óþekkt í sveit­ar­fé­lögum innan höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins og víðar.

Mannlífi bár­ust ábend­ingar frá ósáttum for­eldrum og for­ráða­mönnum á svæð­inu, sem jafn­framt fetta fingur út í óná­kvæmar tíma­skrán­ingar sem við­haf­ast hjá leik­skól­unum. Foreldri sem hafði sótt eina mín­útu of seint hafði fengið skrá­setta þriggja mín­útna seinkun. Óná­kvæmni tíma­skrán­ing­ar­innar er fylgi­fiskur þegar börnin eru sótt í úti­veru, bendir for­eldrið á. Þá þarf kenn­ar­inn sem fylgd­ist með barn­inu úti að fara inn til að skrá það út úr kerf­inu sem tekur ein­hverjar mín­útur.

Ef barn er sótt meira en 15 mín­útum of seint eru rukk­aðar aðrar þrjú þús­und krónur fyrir næsta korter. Þannig getur það kostað for­eldri eða for­ráða­mann 9000 krónur að sækja barnið þrisvar sinnum of seint. Það sama gildir ef mætt er of snemma með barnið í dag­vist­un­ina.

Tilkynningin

Í til­kynn­ing­unni sem barst for­eldrum barna sem nýta sér leik­skóla­þjón­ustu sveit­ar­fé­lags­ins segir:

„Á 30. fundi bæj­ar­stjórnar, 13. des­em­ber 2023, var sam­þykkt að hækka gjald­skrá fyrir leik­skóla í Árborg frá og með 1. jan­úar 2024. Gjald­skráin er aðgengi­leg á heima­síðu Árborgar og í við hengi í þessum pósti.

Gjald fyrir dvöl umfram umsaminn vistunartíma

Í reglum um leik­skóla í Árborg kemur fram að áður en leik­skóla­dvöl barns hefst geri við­kom­andi leik­skóli og for­eldrar með sér dval­ar­samn­ing. Með und­ir­ritun sinni stað­festa for­eldrar að þeir hafi kynnt sér gjald­skrá leik­skóla Árborgar og reglur um leik­skóla í Árborga og skuld­binda sig til að hlíta þeim eins og þær eru á hverjum tíma. Í gjald­skrá leik­skóla Árborg er heim­ild fyrir því að inn­heimta gjald fyrir dvöl umfram umsam­inn vist­un­ar­tíma.

Frá og með 1. jan­úar 2024 hækkar gjald fyrir hverjar byrj­aðar 15 mín­útur umfram umsam­inn vistu­ar­tíma upp í 3000.- krónur. Þetta á við ef að börn mæta fyrir umsam­inn vist­un­ar­tíma eða eru sótt eftir að vist­un­ar­tíma lýkur sam­kvæmt dval­ar­samn­ingi“

Slæm fjárhagsstaða Árborgar

Árborg er á barmi gjald­þrots en í apríl síð­ast­liðnum var fjallað um erf­iða fjár­hags­stöðu sveit­ar­fé­lags­ins og fjölda­upp­sagnir hjá Árborg. Álykta má að gjald­takan og helm­ings­hækkun hennar sé liður í að rétta slæma fjár­hags­stöðu sveit­ar­fé­lags­ins við.

Mannlíf fjall­aði um málið í októ­ber þegar gjaldið var tekið upp. Sjá nánar:

Upp­sagnir hjá Árborg: 57 starfs­menn missa vinn­una – Laun bæj­ar­stjóra lækka um 5 pró­sent

Upp­sagnir hjá Árborg: 57 starfs­menn missa vinn­una – Laun bæj­ar­stjóra lækka um 5 pró­sent

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi