Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Segir engan orkuskort í landinu: „Þessi aðferð er vel þekkt …hún er kölluð túrbínutrixið“

Segir engan orkuskort í landinu: „Þessi aðferð er vel þekkt …hún er kölluð túrbínutrixið“

Marinó G. Njálsson segir að eng­inn orku­skortur sé í land­inu, þvert á það sem ráða­menn hafa sagt að und­an­förnu. Segir hann að of mörgum hafi verið lofað óskerð­an­legri orku.

Marinó G. Njálsson, ráð­gjafi og sér­fræð­ingur í áhættu­stjórnun, örygg­is­málum og per­sónu­vernd, sem og fyrrum for­maður Hags­muna­sam­tök Heim­il­anna, heldur því fram í Facebook-færslu að í raun sé eng­inn orku­skortur á land­inu, þrátt fyrir tal um slíkt.

Færslan hefst svo: „Mikið er kvartað yfir erf­iðu ástandi á raf­orku­mark­aði. Sagt er að orku­skortur sé í land­inu, en eins og ég sé þetta, þá hefur of mörgum verið lofuð orka sem ekki er fram­leiðslu­geta fyrir í lélegu vatns­ári. Í góðum vatns­ár­unum á síð­asta ára­tug hafa selj­endur raf­orku látið freist­ast að selja meiri raf­orku í því trausti að aldrei komi slæm vatnsár. Stundum hefur virkj­unum verið fjölgað og þannig hægt að auka fram­boðið. Svo koma slæm vatnsár og þá kemur í ljós að búið er að selja of mörgum örugga raf­orku. Það kemur því ekk­ert við hve virkj­unum hefur verið (eða verður) fjölgað mikið, slæm ár eru slæm ár. Ekki verður hægt að tryggja meira raf­magn frá nýrri virkjun en afkasta­geta hennar er í slæmu ári.“ Og Marinó heldur áfram: „Ég er alveg hand­viss um að Lands­virkjun veit þetta. Þess vegna er hún með eina verð­skrá fyrir for­gangsorku og aðra fyrir afgangsorku (skerð­an­lega orku). Mér virð­ist hins vegar, að hluti af afgangsorkunni hafi verið seld sem óskerð­an­leg orka, þó hún sé það ekki. Í lélegu ári er ekki hægt að pína fram nægan gras­vöxt á túni, alveg sama hvað maður gerir. Eins er með vatns­föllin, sé ekki farið gæti­lega með það vatn sem rennur í lónin, þá lækkar yfir­borð þeirra hraðar en þörf er á.“

Með færsl­unni birti hann mynd sem hann birti einnig í haust, eftir að hann benti á að vatns­bú­skapur sum­ars­ins hafi verið lélegur og að mögu­lega stefndi í skerð­ingar. „Á mynd­inni sést, að yfir­borðs­staða Þór­is­vatns var í lok sept­em­ber í haust svipuð (fjólu­blá lína hægri endi) eða jafn­vel lak­ari en fyrir tveimur árum (blá lína vinstri endi), þegar síð­ast var gripið til skerð­inga. Vandinn er ekki orku­skortur, heldur að of mörgum var lofuð óskerð­an­leg orka, þó fram­leið­endur gætu ekki lofað þeirri orku í lélegum vatns­árum. Alveg eins og að bónd­inn fær ekki eins væna dilka þegar gróð­ur­far er lélegt.“

Þór­is­vatn

Segir Marinó að allir fram­leið­endur raf­orku með vatns­afli viti að sveiflur séu í vatns­bú­skap og að öruggt fram­leiðslu­stig sé ekki til, þó reikna megi með ein­hverju lág­marki. Segir hann alveg sama hve mikið virkj­unum fjölgar, það eina sem ger­ist sé að sveifl­urna verða hjá fleiri virkj­unum. „Vandi okkar í dag er í sjálfu sér ekki raf­orku­skortur, heldur að búið er að lofa of mörgum að fá ork­una afhenta til sín. Við erum að selja raf­magn til aðila sem ættu ekki að fá það nema í með­al­góðum og góðum vatns­árum. Þegar Lands­virkjun átt­aði sig á því, að afkoma sum­ars­ins yrði lík­lega ekki nógu góð (sem var, skv. mynd­inni, ca. 1. júní), þá átti fyr­ir­tækið strax að gera áætl­anir að draga úr afhend­ingu á skerð­an­legri raf­orku og sú skerð­ing átti að byrja meðan enn var verið að fylla á Þór­is­vatn og áður en miðlun úr lón­inu hófst. Myndin sýnir að lík­lega var byrjað að miðla úr Þór­is­vatni í ágúst og yfir­borð þess lækk­aði veru­lega fram til 1. októ­ber.“

Þá segir Marinó að Lands­virkjun hafi komið sér í klemmu. „Það er rangt að tengja það tvennt saman, að ekki sé hægt að verða við allri eft­ir­spurn og að það sé orku­skortur. Lands­virkjun hefur í mjög mörg ár (fyrir utan vet­ur­inn 2021-2022) búið við góðan og mjög góðan vatns­bú­skap og því geta fram­leitt mikið af umframorku. Þ.e. orku sem er umfram það sem er nokkurn veg­inn öruggt að fyr­ir­tækið geti að lág­marki afhent í lélegu vatns­ári. En lélega vatns­árið er við­miðið. Að Lands­virkjun sé búin að koma sér í þá klemmu, að geta hugs­an­lega ekki afhent allt það raf­magn sem fyr­ir­tækið er búið að selja, hvort heldur til stórnot­enda eða end­ur­sölu­að­ila, sem for­gangsorku, er ekki því að kenna, að það skorti virkj­anir, heldur að fyr­ir­tækið of mat fram­leiðslu­getu virkj­anna sinna í lélegu vatns­ári eða van­mat hve slæm vatns­árin gætu orðið.“

Segir hann að bog­inn hafi ein­fald­lega verið spenntur of hátt, „of mörgum lofuð raf­orka, sem ekki var öruggt að hægt væri að afhenda.“ Að lokum segir Marinó að aðferðin sé þekkt undir nafn­inu „túrbínutrixið.“

„Þessi aðferð er vel þekkt. Hefur verið notuð í ára­tugi og á sér meira að segja sér­stakt nafn. Hún er kölluð túrbínutrixið og felst í því að fá leyfi fyrir eina túrbínu í virkjun, byggja virkj­un­ina þannig að pláss sé fyrir fleiri, selja meiri raf­orku en ein túrbína ræður við og segja svo að það sé algjör fásinna að setja ekki niður fleiri túrbínur fyrst það sé hægt. Í þetta sinn er „túrbínutrixið“ byggt á því að selja meiri raf­orku en kerfið ræður við í lélegum vatns­árum og segja það valda tjóni að reisa ekki fleiri virkj­anir.

„Túrbínutrixin“ hafa verið nýtt um allt þjóð­fé­lag hin síð­ari ár. Sér­stak­lega í bygg­ing­ar­iðn­að­inum. Sumum finnst þetta alveg svaka­lega snið­ugt og aðrir falla fyrir þessu kylli­flatir. Innan raf­orku­geirans verður haldið áfram að beita „túrbínutrix­inu“ alveg þar til síð­asta virkj­an­lega sprænan hefur verið virkjuð, nema þetta rugl verði stoppað. Kunni fram­leið­endur og sölu­að­ilar raf­orku ekki fótum sínum for­ráð, þá gerir það ekk­ert annað en að sanna, að ramma­á­ætlun er nauð­syn­leg og hugs­an­lega þurfum við stíft leyfis­kerfi vegna sölu á raf­orku ofan á hana. Þar sem sölu­að­ila þurfa að fá leyfi frá opin­berri stofnun fyrir hverjum ein­asta við­skipta­vini sem sölu­að­il­inn tekur í við­skipti. Frekar en slíkt leyfis­kerfi myndi ég kjósa að sölu­að­ilar kunni fótum sínum for­ráð.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi