Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Rannsóknarblaðamaðurinn John Pilger er látinn: „Hans verður sárt saknað“

Rannsóknarblaðamaðurinn John Pilger er látinn: „Hans verður sárt saknað“
Blessuð sé minn­ing John Pilger Mynd: Lubbi

Einn virt­asti rann­sókn­ar­blaða­maður heims, John Pilger er lát­inn, 84 ára að aldri. Kristinn Hrafns­son minn­ist hans á Facebook.

Hinn marg­verð­laun­aði ástr­alski rann­sókn­ar­blaða­maður John Pilger, sem var harður gagn­rýn­andi á „heims­valda­hyggju“ Vest­ur­landa, er lát­inn, 84 á að aldri. Þekkt­astur var hann fyrir frétta­mennsku sína í Víetnam­stríð­inu, sem og fyrir heim­ild­ar­myndir sínar á borð við The War You Don´t See, Breaking the Silence: Truth and Lies in the War on Terror og Palestine is Still the Issue.

Fjöl­skylda Pilger sendi frá sér stutta til­kynn­ingu í gær þar sem sagt var frá and­láti hans en hann lést í Lundúnum.

„Blaða­mennsku hans og heim­ild­ar­myndum var fagnað um allan heim, en fyrir fjöl­skyldu hans var hann ein­fald­lega hinn ótrú­leg­asti og elskaði pabbi, afi og félagi. Hvíldu í friði,“ segir í til­kynn­ing­unni.

Lætur hann eftir sig lífs­föru­naut sinn, blaða­kon­una Yvonne Roberts og börn hans tvö, Sam og Zoe.

Þúsundir minnt­ust Pilger á sam­fé­lags­miðlum eftir fregn­irnar.

„Heim­ur­inn hefur misst einn sinn allra besta blaða­mann og mann af fyllstu ráð­vendi,“ skrif­aði einn á X-inu.

„Frábær blaða­maður, góður maður og gríð­ar­legt afl, er nú fallið,“ skrif­aði annar not­andi mið­ils­ins.

Þá minnt­ist Kristinn Hrafns­son, rit­stjóri Wikileaks, John Pilger á Facebook í dag en þeir tveir voru félagar. Hér má lesa færslu Kristins:

„Fékk þær sorg­legu fréttir í gær­kvöld að John Pilger væri lát­inn. Þá er fall­inn frá einn af allra merk­ustu blaða­mönnum síð­ari tíma, mað­ur­inn sem var ódeigur fram í and­látið að beita gagn­rýnni blaða­mennsku til að afhjúpa mis­beit­ingu valds­ins ekki síst í styrj­öldum. Hann vissi hversu illa valdið gat brugð­ist við blaða­mönnum sem afhúp­uðu sann­leik­ann og var ötull bar­áttu­maður fyrir frelsi Julian Assange í meira en ára­tug. Hann var alltaf boð­inn og búinn að mæta á alla við­burði sem hann gat, til að tala máli Julians og rita greinar til gagn­rýna aðför­ina að þessum landa sínum.Við áttum góð sam­skipti og það var ánægju­legt að stuðla að því að hann kæmi til Íslands fyrir nokkrum árum á kvik­mynda­há­tíð­ina í Reykja­vík. Hann skerpti þann skiln­ing minn að blaða­mennska sem hefur ekki rétt­læti að leið­ar­ljósi er ekki mik­ils virði. Því miður er oft dauft yfir þeim skiln­ingi í stétt­inni. Hann var manna harð­astur á því að alvöru blaða­mennska væri gagn­rýnin og aðgangs­hörð á valdið. Allt annað er bara stef af áróðri valda­stétta eða í skársta falli afþrey­ing.Ég er þakk­látur fyrir að hafa kynnst John Pilger og mun minn­ast góðra stunda. Hans verður sárt saknað.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Heimur

Heimur

Dóm­ara­deilan sýður upp úr í Póllandi

Heimur

Skoska lög­reglan rann­sakar tengsl Andrews við Epstein

Heimur

Fá borgað fyrir að ganga með vél­hunda um San Francisco

Heimur

Dul­ar­fullt ákall á net­inu vekur ótta við óeirðir á Tenerife

Heimur

Átta ára drengur skot­inn til bana

Heimur

Beit lög­reglu­hund í háls­inn eftir þriggja tíma flótta