Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Lífsreynslusaga Mannlífs – Fullkominn dagur fyrir sambandsslit: „Einmitt, já, hún er sæt“

Lífsreynslusaga Mannlífs – Fullkominn dagur fyrir sambandsslit: „Einmitt, já, hún er sæt“

„En hver á að fá múmín­boll­ana?“

Henni datt ekki neitt annað í hug til þess að segja, á þessum heita og sól­ríka júlídegi. Þau sátu hvort á sínum sól­bekknum með birt­una í and­litið og sól­gler­augu á nef­brodd­unum. Í loft­inu var dauf angan af rósarunna og fugl­arnir keppt­ust um að yfir­gnæfa hver annan með skrúð­ugum lag­línum. Tveir loðnir kettir lædd­ust um í djúp­grænu gras­inu í kring í leit að skugga.

Full­kom­inn dagur fyrir sam­bands­slit.

Hún hafði ein­hvern tíma lesið inn­senda grein í tíma­riti, um konu sem upp­lifði algjöran við­snún­ing á lífi sínu eftir ein ára­mótin. Kona sú vildi meina að þetta gamlárs­kvöld hefði verið upp­hafið að enda­lok­unum á hennar fyrra lífi.

Hún og aðrir veislu­gestir höfðu ákveðið að standa öll upp á stólum rétt fyrir mið­nætti og þegar klukkan sló tólf stukku þau öll sam­tímis niður. Þetta átti að vera tákn­rænt, þau væru að stökkva inn í nýja árið, algjör­lega óhrædd við óvissu kom­andi tíma.

Þessari konu brást hins­vegar eitt­hvað boga­listin. Þetta upp­á­tæki fór ekki betur en svo að hún datt af stólnum á mið­nætti og brot­lenti á hörðu gólf­inu með spring­andi flug­elda í eyr­unum. Það leið ekki langur tími eftir þetta gamlárs­kvöld þar til konan sú var skilin og allt líf hennar í frjálsu falli.

Sagan fékk þó far­sælan endi, eins og flestar lífs­reynslu­sögur tíma­rit­anna.

Konan vildi meina að þetta harka­lega fall inn í nýja árið hefði verið afar tákn­rænt og sett af stað breyt­ingar og atburða­rás sem hana hefði stuttu áður aldrei getað órað fyrir. Hún mælti með því að ef fólk vildi dramat­ískar breyt­ingar á lífi sínu ætti það að prófa að stökkva, nú eða detta hrein­lega, inn í nýtt ár að kvöldi 31. des­em­ber.

Nú var þessi saga, sem hún hafði lesið mörgum árum fyrr, eins og greypt inn í huga hennar. Hún hafði jú byrjað þetta árið með óvenju­legum hætti. Í fyrsta sinn hafði hún verið í öðru landi um ára­mót. Hún hafði farið án hans til frænku sinnar í Svíþjóð til þess að þreyta inn­töku­próf í háskóla þar í landi.

Inn­töku­prófið var í byrjun jan­úar, en ódýrasta far­gjaldið út var á gaml­árs­dag. Rétt fyrir mið­nætti hafði hún fengið óvenju­lega til­finn­ingu, eins og eitt­hvað væri í aðsigi. Allt hafði verið öðru­vísi. Önnur, ókunnug lykt í loft­inu. Hún gat hvorki komið angan­inni né til­finn­ing­unni í orð. Hún hafði hugsað með sér að senni­lega staf­aði hvort tveggja af sprengju­leti Svíanna, sem var Íslend­ingnum auð­vitað fram­andi. Á mið­nætti hafði hún skálað í freyði­víni og óvart brotið krist­als­glasið. Um leið og það gerð­ist fannst henni hægj­ast á öllu. Eins og hún væri að fylgj­ast með atburða­rásinni utan frá.

Eftir ára­mótin hafði hún fengið flensu, farið veik í inn­töku­prófið og gengið í sam­ræmi við það.

Þegar hún hafði komið heim höfðu þau spjallað saman tvö og hann látið hana frjáls­lega vita af því að það hefði verið reynt við hann í ára­mótap­ar­tí­inu heima á Íslandi. Hann hefði nú samt ekki tekið undir það.

„Já er það? Sýndu mér hana.“

Hann hlýddi.

Hún hafði sítt dökkt hár og fal­legt bros.

„Einmitt, já. Hún er sæt,“ hafði hún sagt ann­ars hugar. Hún hafði næstum sam­glaðst honum yfir við­reynsl­unni.

Nokkrum dögum síðar hafði snjó­bolt­inn farið að rúlla. Það var eins og kveikt hefði verið á henni í fyrsta sinn í langan tíma. Hún hafði fengið nei­kvætt svar frá skól­anum, en það skipti eig­in­lega ekki neinu máli. Hún hafði verið lif­andi. Spennt. Hátt uppi. Hún hafði stefnt hrað­byri á vegg, en hann hafði verið óum­flýj­an­legur.

Upphafið hafði verið vinnu­staða­partí nokkrum dögum eftir ára­mót. Einhvern veg­inn hafði hún endað alltof seint um kvöld, eftir fleiri drykki en hún kaus að við­ur­kenna, lokuð inni á myrkv­uðu bað­her­bergi.

Með henni.

Og þrátt fyrir að hún vissi að það væri rangt, þá höfðu allar taugar í lík­ama hennar verið á önd­verðum meiði. Hátt uppi, í ein­hverjum hvirf­il­byl spennu, óvissu og losta, höfðu varir þeirra mæst. Með skyn­færin þanin að þol­mörkum höfðu þær deilt kossum í tíma­leysi. Þráin var sekt­ar­kennd­inni yfir­sterk­ari.

Henni fannst sem hún myndi bráðna ofan í nið­ur­fallið. Syk­ur­sætt Paris Hilton ilm­vatn lá í loft­inu og hún hafði ekki gert sér grein fyrir því þá, en þetta ilm­vatn átti alltaf eftir að snúa öllu innra með henni á hvolf í hvert sinn sem hún myndi finna lykt­ina í fram­tíð­inni. Eftir þetta varð ekk­ert eins.

Það var eins og hún vakn­aði loks úr ein­hvers konar transi á þessum júlídegi á sól­bekknum. Þau sátu hlið við hlið en hún sá að þau höfðu myndað gjá á milli sín í öllum jarð­skjálft­unum mán­uð­ina á undan. Og það var ástæðu­laust fyrir þau að reyna að klóra í bakk­ann. Hún trúði því núna, á þessu augna­bliki, að það skipti máli hvernig fólk færi inn í nýtt ár. Hún ætl­aði að muna að stökkva inn í það ef hún vildi umturna lífi sínu aftur eins og hún var í þann mund að gera.

„Við skiptum þeim bara á milli okkar.“

Það vott­aði fyrir brosi á and­liti hans. Þessi nálgun hennar á þetta stóra augna­blik virt­ist ekki koma honum neitt sér­stak­lega á óvart.

„Eigum við að panta pizzu?“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi