Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Á meðan mennirnir slógust berir í túninu tefldi Hrafn Jökulsson við krakkana í Lækjarbrekku

Á meðan mennirnir slógust berir í túninu tefldi Hrafn Jökulsson við krakkana í Lækjarbrekku

Sumarið 2004 var afar gott á höf­uð­borg­ar­svæð­inu og eins og oft á góð­viðr­is­dögum safn­að­ist fólk saman á Aust­ur­velli og lét sól­ina sleikja sig. Blíðan var það góð í júlí í Reykja­vík það árið að sólsleiktir borg­ar­búar létu ekki blóðug slags­mál tveggja manna trufla sæl­una.

DV gerði frétt þann 19. júlí árið 2004 sem hefði átt að fá Pulitzer-verð­laun en hún fjall­aði um slags­mál sem brut­ust út á milli tveggja hálf nak­inna karl­manna sem höfðu fengið sér aðeins og mikið í báðar tærnar. Fólk sem lá í sól­baði og spjall­aði á gras­inu á Aust­ur­velli virt­ist ekki kippa sig upp við bar­smíð­arnar en það var ekki fyrr en lög­regl­una bar að, sem félagi mann­anna stöðv­aði áflogin. Gekk DV svo langt að segja að fólkið hafi skemmt sér yfir slags­mál­unum en ekki verður lagt mat á það í þessum bak­sýn­is­spegli.

Hér má lesa part úr frétt DV og sjá tíma­móta­ljós­mynd­irnar sem teknar voru af „stemmn­ing­unni“:

Fólk skemmti sér yfir bar­smíðum í blíð­unni

Slagsmál brut­ust út á Aust­ur­velli milli tveggja manna sem virt­ust hafa fengið sér of marga bjóra í góða veðr­inu á dög­unum. Sá eldri hafði betur og lét höggin dynja á félaga sínum eftir að hafa legið með honum í tún­inu allan dag­inn berir á ofan við bjór­drykkju. Nær­staddir horfðu á í mak­indum sínum en gerðu ekk­ert.

Hörku­slags­mál

Túnið var troð­fullt af fólki sem virt­ist ekki brugðið, lá hið róleg­asta og fylgd­ist með mann­inum dúndra hverju högg­inu á fætur öðru í and­litið á hinum mann­inum sem gat sig hvergi hreyft. Ekki var náunga­kær­leik­ur­inn mik­ill þar sem fólk virt­ist skemmta sér ágæt­lega yfir bar­smíð­unum, ein­staka maður stóð upp og tók mynd af félög­unum sem velt­ust um í tún­inu. Ekki virt­ist nokkur hafa áhuga á að reyna að stöðva bar­smíða­mar. Horfðu bara á þetta eins og box á sjón­varps­stöð­inni Sýn. Það var ekki fyrr en félagi „box­ar­ans“ varð var við lög­regl­una að hann rauk upp og reyndi að slíta menn­ina í sundur. Lög­reglan stöðv­aði ofbeld­is­menn­ina og leiddi þá í burtu inn í Veltu­sund þar sem menn­irnir föðm­uð­ust að lokum.

Lög­reglan fylgd­ist svo með mann­líf­inu um stund og öryggi fólks­ins í tún­inu var tryggt á ný. Mið­bær­inn iðaði af lífi enda veðrið frá­bært tæp­lega 20 gráður á Aust­ur­velli. Á meðan menn­irnir slóg­ust í tún­inu seinni part föstu­dags tefldi Hrafn Jök­uls­son við krakk­ana í Lækj­ar­brekku, þar sem var líka fjör­legur bóka­mark­aður.

Á torg­inu safn­að­ist fólk saman í kringum tón­list­ar­menn sem spil­uðu slök­un­ar­tón­list undir klukkna­turn­inum. Fólk var rausn­ar­legt kastaði pen­ingum í menn­ina og keypti af þeim geisla­disk þeirra. Lífið á kaffi­hús­unum blómstr­aði, setið við öll borð. Þeir sem ekki fengu borð fóru í Ríkið, keyptu bjór­inn þar og sett­ust í túnið eða á bekki mið­borg­ar­innar. Fólk hafði orð á því að stemn­ingin væri engu lík eins og í mið­borg stór­borgar í útlöndum, margt skemmti­legt í gangi en svo nátt­úru­lega alltaf eitt­hvað leið­in­legt sem líka er hægt að skemmta sér yfir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi