Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Leitin að nýjum forseta hefst – Guðni Th. ekki í framboði

Leitin að nýjum forseta hefst – Guðni Th. ekki í framboði
Guðni Th. Jóhann­es­son, fyrrum for­seti Íslands, er alls ekki hrif­inn af ananas á pít­sur

Guðni Th. Jóhann­es­son, for­seti Íslands, hyggst ekki gefa kost á sér til áfram­hald­andi setu á Bessa­stöðum. Þetta upp­lýsti hann í nýársávarpi sínu, rétt í þessu.

Guðni hefur notið fádæma vin­sælda í emb­ætti sínu. Hann þykir hafa sinnt emb­ætti sínu af alúð og verið sannur og alþýð­legur. Þessi ákvörðun Guðna kemur nokkuð á óvart en margir töldu að í ljósi mik­illa vin­sælda myndi hann gefa kost á sér áfram.

Nú hefst bar­áttan um það hver verður arf­taki hans á Bessa­stöðum í sumar.

Ávarp Guðna í heild sinni:

Kæru lands­menn.
Fyrir hönd okkar Elizu óska ég ykkur öllum gleði­legs nýs árs. Megi það færa
ykkur far­sæld og fagn­að­ar­stundir. Sem betur fer bjuggu mörg okkar við þannig
blessun á því ári sem nú er liðið. Um leið vitum við að sums staðar knúði sorgin
dyra, sums staðar erf­iði og þrautir. Hugsum hlýtt til þeirra sem syrgja og sakna,
til þeirra sem eiga um sárt að binda í dags­ins önn.
Árið var um margt sögu­legt. Í byrjun þess var hálf öld liðin frá upp­hafi
eld­goss í Vest­manna­eyjum og snemma vetrar þurfti að rýma Grinda­vík, aðra
blóm­lega byggð, eftir hrika­lega skjálfta­hr­inu og hættu á jarð­eldum. Síðan gaus
og við verðum víst að búa okkur undir óróa á Reykja­nesskaga um ára­bil.
Ég færi Grind­vík­ingum hlýjar kveðjur og þakka öllum sem hafa sýnt þeim
sam­hug í verki. Í jóla­kveðju til síns heima­fólks kvaðst Fannar Jónasson
bæj­ar­stjóri dást að þeirri þraut­seigju sem sá sam­heldni hópur hefur sýnt síð­ustu
vikur. Undir þau góðu orð hljótum við öll að taka.
Frá und­an­förnum árum má minn­ast fleiri ham­fara; veð­urofsa sem olli
raf­magns­leysi og öðrum vanda norð­an­lands, skriðu­falla og snjó­flóða fyrir vestan
og austan, og er þá aðeins það helsta talið. Við hemjum ekki ægi­mátt
nátt­úru­afl­anna en við ráðum eigin við­brögðum. Þegar í nauðir rekur getum við
reitt okkur á öfl­ugar björg­un­ar­sveitir og aðra sem sinna hjálp á vett­vangi. Í því
liggur mikil gæfa.
Svo eru það mann­anna verk. Um víða ver­öld hækkar með­al­hiti og öfgar í
veð­ur­fari aukast. Þessum vanda getur mann­kyn mætt með breyttum
lifn­að­ar­háttum, minni notkun jarð­efna­elds­neytis og minni mengun. Á
alþjóða­vett­vangi virð­ist ein­hugur um aðgerðir í þá veru og þótt okkar fram­lag
muni aldrei ráða úrslitum þurfum við Íslend­ingar að leggja okkar af mörkum.

2

Enn geisa líka stríð úti í heimi. Í hitti­fyrra réðst Rúss­lands­her með offorsi
inn í Úkraínu og fyrir skömmu var hryðju­verka­árás í Ísrael svarað með inn­rás á
Gasa. Þar liggja nú tug­þús­undir manna í valnum, þeirra á meðal þús­undir
blásaklausra barna.
Því miður eru þær veikar, vonir um var­an­legan frið á þessum slóðum en
hann verður að kom­ast á. Slíka kröfu hljótum við að styðja en sam­hliða því
megum við muna hversu dýr­mætt það er að búa í landi án átaka eða hat­rammra
illinda frá degi til dags; að búa í landi þar sem við njótum frelsis, öryggis og
ann­arra mann­rétt­inda.
Og nú bíður nýtt ár, með öllum sínum tæki­færum og þrautum ef svo ber
undir. Auðvitað vitum við aldrei til fulls hvað fram­tíðin ber í skauti sér en í því
felst einmitt hin fagra óvissa lífs­ins. Þannig komst ég að orði vorið 2016, þegar
ég bauð mig fyrst fram til for­seta. Þá sagði ég að næði ég kjöri og svo end­ur­kjöri
vildi ég ekki sitja lengur á Bessa­stöðum en átta til tólf ár. Hafði ég þá til
hlið­sjónar eigin sjón­ar­mið og ýmissa ann­arra í tím­ans rás.
Hvern ein­asta dag hef ég fundið hversu ein­stakur sá heiður er að gegna
þess­ari stöðu. Þess vegna neita ég því ekki að ég íhug­aði vand­lega að sækj­ast
eftir stuðn­ingi til frek­ari setu eitt kjör­tíma­bil enn. Aftur á móti komst ég ætíð að
þeirri nið­ur­stöðu að betra væri að láta hjartað ráða en fylgja öðrum rökum sem
hljóta að telj­ast veik­ari þegar allt kemur til alls.
Í sam­fé­lagi liggja skyldur sér­hvers víða en höfum þó ætíð í huga að vilji
fólk styðja aðra þarf það einnig að gæta að eigin líðan. Þetta nefndi skáldið
Gerður Kristný í hug­vekju á nýlið­inni aðventu og bætti við þeim sann­indum að
þær stundir sem við eigum ein með sjálfum okkur eða þeim sem okkur þykir
vænst um eru jafn­vel mik­il­væg­ari en okkur grunar.
Í öfl­ugu lýð­ræð­is­sam­fé­lagi kemur maður líka í manns stað. Engum er
hollt að telja sig ómissandi og skyldu­rækni á mis­skildum for­sendum má ekki
ráða för, því síður eigin hégómi eða sér­hags­munir.
Kæru landar, kæru vinir: Af öllum þessum sökum hyggst ég ekki vera í
fram­boði í því for­seta­kjöri sem verður í sumar, kýs frekar að halda sáttur á braut
innan tíðar og er þess full­viss ‒ ef ég má nefna það sjálfur ‒ að Íslend­ingum
muni eins og fyrri dag­inn auðn­ast að kjósa sér for­seta sem þeir una við.
Eftir sem áður hlakka ég til að fylgj­ast með íslensku sam­fé­lagi vaxa og
dafna. Þekktu sjálfan þig og þekktu þína þjóð. Þannig hef ég viljað mæta
hverjum degi hér og segi hik­laust að við Íslend­ingar megum svo sann­ar­lega
horfa björtum augum fram á veg. Ég þarf þó að nefna sitt­hvað sem getur valdið
áhyggjum eða ama: sífelldur ys og þys sem ýtir jafn­vel undir sýnd­ar­mennsku
eða kvíða nema hvort tveggja sé, harka og heift í dómum á líð­andi stundu,
gáleysi um mál okkar og menntun, fátækt sumra í sam­fé­lagi allsnægta.

3

En allt þetta getum við samt lagað. Grunn­stoð­irnar eru traustar og
heim­ur­inn er ekki á helj­ar­þröm. Þrátt fyrir allt sem betur má fara er það svo
margt sem getur fyllt okkur stolti og gleði, bjart­sýni og von.
Eflum það sem sam­einar okkur, ekki síst þann grund­völl fram­fara að hver
mann­eskja fái að sýna hvað í henni býr, sjálfri sér og öðrum til heilla, en
sömu­leiðis að öll þau sem þurfa á aðstoð að halda fái notið hennar í krafti
sam­vinnu og sam­kenndar. Virðum gömul og góð gildi en fögnum líka ferskum
straumum – þannig treystum við þann þráð sem þarf að liggja milli þess sem
var, er og verður.
Og látum okkur þykja vænt um landið okkar. Næstu kyn­slóðir eiga það
skilið. Þetta land á það skilið. ‒ Land, það er heiti ljóðs eftir Ingi­björgu
Har­alds­dóttur sem lýsir svo vel heil­brigðri ætt­jarð­ar­ást, á tímum þegar víð­sýni
og vænt­um­þykja verða að ein­kenna alla okkar þjóð­ern­is­kennd, ekki illska eða
dramb, ekki tor­tryggni eða ótti við nýmæli og fjöl­breytni. Ljóðið er svona:

Ég segi þér ekk­ert um landið
ég syng engin ætt­jarð­ar­ljóð
um hell­ana, foss­ana, hver­ina
ærnar og kýrnar
um bar­áttu fólks­ins
og barn­ing í válegum veðrum
nei. En stattu við hlið mér
í myrkr­inu. Andaðu djúpt
og finndu það streyma
segðu svo:
Hér á ég heima.

Kæru sam­landar: Þetta er ekki kveðju­stund en ég leyfi mér samt að þakka
ykkur öllum við þetta tæki­færi, þakka þeim fjölda fólks sem ég hef kynnst á
for­seta­stóli, hér á Bessa­stöðum, úti um allt land og erlendis, oft­ast við ljúf til­efni
en einnig á erf­iðum stundum. Við vitum að þær verða aldrei með öllu umflúnar.
„Það er tál­sýn og eft­ir­sókn eftir vindi að halda að lífið geti orðið eða eigi að vera
einn dans á rósum, sam­felld hlátra­buna.“ Þannig mælt­ist Vigdísi Finn­boga­dóttur
í einu sinna ávarpa við ára­mót og eru það orð að sönnu.
Já, ég færi fram þakkir. Ég þakka vinum og fjöl­skyldu stuðn­ing í hví­vetna
og ég þakka ykkur eldri í hópi lands­manna, ykkur sem með viti og striti lögðuð
grunn að vel­ferð­ar­ríki okkar daga. Saman verðum við að tryggja að þið megið
njóta nota­legs ævi­kvölds.

4

Ég þakka kynni við þau ykkar sem standið höllum fæti í sam­fé­lag­inu af
ein­hverjum völdum, viljið sann­girni og rétt­læti en eruð æðru­laus í and­byr lífs­ins.
Af því má margan lær­dóm draga.
Ég þakka þeim sem hafa helgað því krafta sína að sinna öðrum; starfs­liði
heil­brigðis- og mennta­stofn­ana og þeim sem stuðla á ýmsa vegu að bættri líðan
okkar á lík­ama og sál. Öðrum vinn­andi stéttum eigum við líka skuld að gjalda;
bændum, sjó­mönnum og fisk­vinnslu­fólki, fjöl­breyttri sveit á sviði iðn­aðar og
við­skipta, nýsköp­unar, versl­unar og ferða­þjón­ustu, og er þá ekki allra getið sem
færa björg í bú.
Ég þakka gott sam­starf við emb­ætt­is­menn og kjörna full­trúa. Hér hef ég
einkum í huga for­sæt­is­ráð­herra og aðra í rík­is­stjórnum minnar tíðar, auk þeirra
sem sitja og setið hafa á Alþingi Íslend­inga þau ár. Jafn­framt hugsa ég hlýtt til
þeirra kirkj­unnar þjóna og full­trúa trú- og lífs­skoð­un­ar­fé­laga sem ég hef rætt við
og kynnst. Trú getur verið svo traust hald­reipi þótt þar verði hver og einn að
finna sína þörf án boðs eða banna. Við skulum hafa ein lög en megum hafa fleiri
siði.
Sömu­leiðis þakka ég for­verum mínum góða við­kynn­ingu, Ólafi Ragnari
Gríms­syni og Vigdísi Finn­boga­dóttur. Eins hef ég notið arf­leifðar fyrri for­seta,
þeirra Sveins Björns­sonar, Ásgeirs Ásgeirs­sonar og Krist­jáns Eldjárns.
Þá lýsi ég aðdáun minni á þeim sem skara fram úr í þjóð­líf­inu og bera
hróður Íslands víða, frum­kvöðlum í heimi vís­inda og tækni, snill­ingum á sviði
menn­ingar og lista, íþrótta­fólki og öllum öðrum sem fylla okkur stolti og gleði
yfir því að vera smá­þjóð sem getur unnið stóra sigra.
Svo met ég þau mik­ils sem flytja hingað að utan, hafa jafn­vel flúið stríð
og hungur, þurfa að fóta sig á fram­andi velli en eru stað­ráðin í að vinna
sam­fé­lag­inu gagn, skipa sér verð­ugan sess hér, læra tungu­málið ef því er að
skipta; og hjálpum þeim þá til þess.
Loks þakka ég öllum þeim börnum og ung­mennum sem ég hef kynnst
und­an­farin ár, í skólum, á sam­komum og víðar. Krakkar, þið eruð frá­bær! Þið
fyllið okkur bjart­sýni sem eldri erum. Ef það er eitt­hvað sem á bjátar í ykkar
umhverfi og upp­eldi er það okkur að kenna, ekki ykkur. En bætum það þá
saman. Ég vona að þið berið gæfu til að vera ætíð trú ykkar sann­fær­ingu, að þið
eign­ist drauma og setjið ykkur mark­mið, fyllist metn­aði og sjálfs­trausti og finnið
hvernig ykkur líður best í sál og sinni. Veljið samt ekki alltaf létt­ustu leið­ina.
„Eitt er að finna til þreytu og annað að gef­ast upp,“ sagði Kristján Eldjárn á sinni
tíð hér á Bessa­stöðum. Sýnið seiglu og þrjósku ef þarf.
Ágætu lands­menn. „Nú er ég glaður á góðri stund,“ kvað séra Hall­grímur
Pét­urs­son á sínum tíma og svo færði hið merka sálma­skáld djúpa speki í fal­leg

5

orð, íslensk orð sem lifa vel þótt aldir líði: „Gott er að hætta hverjum leik, þá
hæst fram fer.“
Fyrir hönd okkar hjóna þakka ég enn þá vel­vild og hlýju sem við höfum
notið. Ég óska ykkur öllum heilla, ham­ingju og vel­farn­aðar. Gleði­legt nýtt ár!

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi