Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Siðfræðingur um Hemma Gunn í Skaupinu: „Þarna vakna ótal spurningar“

Siðfræðingur um Hemma Gunn í Skaupinu: „Þarna vakna ótal spurningar“
Auddi Blö, „Hemmi Gunn“ og Steindi Jr. Mynd: RÚV-skjáskot

Sið­fræð­ingur segir að verk­efnið framundan varð­andi gervi­greind­ina, sé að sam­fé­lagið komi sér saman um sið­ferði­leg við­mið um hvernig við ætlum að lifa með þess­ari nýju tækni. Segir inn­koma Hemma Gunn í Skaupinu hafa í raun verið virð­ing­ar­vott.

Henry Alex­ander Henrys­son, sið­fræð­ingur og doktor í heims­speki, sagð­ist hafa búist við því strax að atriðið í Ára­mótaskaup­inu þar sem Hermann Gunn­ars­son birt­ist með hjálp gervi­greind­ar­innar, að atriðið yrði umdeilt. Mannlíf ræddi við Henry og spurði hann nokk­urra spurn­inga um atriðið og gervi­greind­ar­tækn­ina.

Henry Alex­ander Henrys­son

Mannlíf spurði fyrst hvað Henry þætti um að það að Hermann Gunn­ars­son hafi verið not­aður í þessu sam­hengi, ver­andi lát­inn og því ófær um að gefa leyfi og að ekki hafi allir fjöl­skyldu­með­limir hans hafi vitað af þessu fyr­ir­fram.

Henry: „Maður bjóst nú strax við að þetta yrði býsna umdeilt atriði. Eins og kom á dag­inn er flókn­ara heldur en að segja það að fá leyfi frá fjöl­skyld­unni þar sem ekki er auð­velt að skil­greina nákvæm­lega hverja ber að biðja um leyfi. Líklega er það ein­fald­lega óraun­hæft og eitt­hvað sem við verðum að hugsa um enda verður það bara auð­veld­ara og auð­veld­ara að láta tækn­ina aðstoða okkur með svona atriði þar sem látnir ein­stak­lingar koma við sögu.“

Þá spurði Mannlíf hvort það sé munur á að nota þessa tækni til að herma eftir látnum manni og svo lif­andi, hvort sem það sé gert í þökk eða óþökk þess lif­andi og þá í hverju sá munur felist.Henry: „Vanda­málið felst í því að það er algjör grund­vall­ar­munur á því að nota tækn­ina þegar um lát­inn ein­stak­ling er að ræða eða lif­andi. Lifandi ein­stak­lingur hefur allt önnur tæki­færi til að svara fyrir sig eða standa á rétti sínum. Og það er líka grund­vall­ar­munur á því að nýta þessa tækni eða ein­fald­lega fá leik­ara til að leika per­són­una, eins og hefur verið gert í Skaupinu frá ómuna tíð.“

Að lokum spurði Mannlíf Henry hvort sam­hengið skipti máli, að þarna hafi verið um skemmti­þátt að ræða og hvort allt sé leyfi­legt í gríni.

Henry: „Auðvitað skiptir sam­hengið máli þegar maður veltir því fyrir sér hvort eitt­hvað sé sið­ferði­lega ámæl­is­vert. Það hefði til dæmis verið stór­kost­lega ámæl­is­vert, og lík­lega lög­brot, ef lát­inn ein­stak­lingur væri settur inn í ein­hvers konar aug­lýs­ingu. Hér var um skemmti­þátt að ræða og atriðið með Hemma Gunn í raun og veru smekk­lega unnið og í hans anda, ef svo má segja. Ég hugsa að fólk hefði tekið þessu verr ef atriðið hefði verið mjólkað og haft of langt.

Að vissu leyti er allt leyfi­legt í gríni og við verðum að hafa aðra mæli­kvarða reiðu­búna þegar við veltum fyrir okkur hvort eitt­hvað sé sið­ferði­lega ámæl­is­vert. Hug­leikur Dagsson má til dæmis spila á alls konar smekk­leysi opin­ber­lega – og gerir það frá­bær­lega – sem ég gæti sjálfur ekki gert þegar ég tjái mig. Við skulum svo ekki gleyma því að þetta var ekki brand­ari í Skaupinu á kostnað Hemma Gunn á nokkurn hátt heldur fremur ein­hvers konar virð­ing­ar­vottur. Stærri sið­ferði­legar spurn­ingar munu vakna ef atriði verður búið til þar sem í anda Skaups­ins er gert grín að lát­inni per­sónu með því að láta hana – í vissum skiln­ingi – leika sjálfa sig.“

Henry bætti svo við sínum pæl­ingum sið­ferðið á bak­við málið og segir að nú þurfi sam­fé­lagið að koma sér saman um við­mið hvað sið­ferðið snertir, varð­andi tækn­ina sem er komin til að vera, svo allt „fari bara ekki í vit­leysu.“

„Stóra spurn­ingin núna er hins vegar ekki hvað mér finnst. Siðferði er ekki eitt­hvað sem ein­stak­lingar ákveða fyrir aðra. Verk­efnið framundan er að sam­fé­lagið komi sér saman um sið­ferði­leg við­mið um hvernig við ætlum að lifa með þess­ari nýju tækni sem, eins og við höfum séð, getur fært okkur látna ein­stak­linga inn í alls konar miðla og umhverfi. Tækni­lega væri hægt að láta frá­bæra lista­menn, sem mikið myndefni er til af, í raun leika að eilífu. Þarna vakna ótal spurn­ingar um rétt­indi lát­inni ein­stak­linga og skyldur okkar við þá.

Ennþá er gerð svona myndefnis ekki fyrir nema örfáa aðila og á meðan höfum við skjól til að taka þessa umræðu. Fljót­lega verður þetta hins vegar svo aðgengi­legt að það verður ómögu­legt að fylgj­ast með eða hafa yfir­sýn yfir allt það efni sem skapað er. Og þá þarf sam­fé­lagið að vera til­búið með bæði sið­ferði­legan ramma, og lög­gjöf byggða á þessum ramma, til þess að þetta fari bara ekki í vit­leysu, svo maður tali bara hreint út. Ein afleið­ing af inn­leið­ingu þess­arar tækni er mögu­lega sú að leik­arar hætti að koma við sögu í Skaupinu í atriðum sem byggja á opin­berum per­sónum. Við látum þær bara sjálfar segja og syngja það sem höf­undum finnst skondið. Kröfur og verk­föll hand­rits­höf­unda og leik­ara í Banda­ríkj­unum á síð­asta ári voru ekki bara út í blá­inn heldur svör við nýjum veru­leika.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi