Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Kafbátaárásin á Fróða ÍS 454: „Strákar, þið verðið að koma upp, það eru særðir menn upp á dekki“

Kafbátaárásin á Fróða ÍS 454: „Strákar, þið verðið að koma upp, það eru særðir menn upp á dekki“
Fróði ÍS 454 Mynd: Trausti Hafsteinsson

Þriðju­dags­morg­un­inn 11. mars árið 1941 var línu­veið­ar­inn Fróði ÍS 454 á leið frá Þingeyri til Englands með ísu­var­inn fisk. Ellefu manna áhöfn skips­ins var grun­laus um að þýski kaf­bát­ur­inn U-74 lá í leyni undir yfir­borð­inu og beið átektar. Klukku­tíma seinna voru fimm áhafn­ar­með­limir látnir eftir miskun­ar­lausa árás kaf­báta­for­ingj­ans Eitel-Friedrich Kentrats.

Árásin var gerð án fyr­ir­vara um morg­un­inn er skipið var um 200 mílur suð-suð­austur af Vest­manna­eyjum og þegar henni lauk, um klukku­stund síðar, lágu fimm áhafn­ar­með­limir í valnum, þar á meðal skip­stjóri Fróða.

Alls lét­ust að minnsta kosti 159 Íslend­ingar af orsökum sem tengj­ast seinni heim­styrj­öld­inni en hæst fer talan upp í 229 en þetta hefur ekki verið rann­sakað til hlýtar sam­kvæmt Vís­inda­vefnum. Þar kemur einnig fram að eina ástæða þess að Fróða var ekki sökkt af nas­istum hafi verið ótti kaf­báta­for­ingj­ans Eitel-Friedrich Kentrats á kaf­bátnum U-74, að skipið væri ein­ungis tál­beita í gildru and­stæð­inga sinna.

Sverrir Torfason var mat­sveinn á Fróða og einn þeirra sem lifðu árás­ina af. Sverrir sagði Alþýðu­blað­inu frá árásinni rétt eftir að hún var gerð og því enn í fersku minni. Hér fyrir neðan má lesa frá­sögn hans en neðst má sjá ljós­myndir af þeim sem féllu:

Árás kaf­báts­ins á Fróða stóð í heila klukku­stund.

Þá var hann búinn að eyði­leggja allt ofan þilja á línu­veið­ar­anum og kveikja í skip­inu.

Frásögn eins af þeim, sem af komst.

KAFBÁTURINN var búinn að lóna kringum okkar í klukku­tíma, og skjóta á okkur bæði úr fall­byssum og hríð­skota­byssum, eyði­leggja allt ofan þil­fars og kveykja í skip­inu, þegar árásinni var hætt“, sagði Sverrir Torfason mat­sveinn á Fróða í við­tali við Alþýðu­blaðið í morgun. „Og senni­lega hefir kaf­bát­ur­inn þá haldið, að úti væri um skipið, ekki þyrfti fleiri skotum á það að eyða og þess vegna farið“.

Árásin var gerð fyr­ir­vara­laust á þriðju­dags­morg­un­inn, þegar skipið var statt um 200 mílur suð-suð­austur af Vest­manna­eyjum. Eins og áður var frá skýrt hér í blað­inu fór­ust fimm menn, en sá sjötti særð­ist. Um nán­ari til­drög skýrir Sverrir Torfason svo frá: — Ég var vak­inn laust fyrir klukkan sex á þriðju­dags­morg­un­inn og sagt, að árás væri hafin á skipið. Fyrst hélt ég, að um flug­véla­árás væri að ræða, en það kom seinna í ljós, hvers kyns var.

Ég var dálitla stund að kom­ast í fötin og útbúa mig í björg­un­ar­bát. En meðan á því stóð heyrði ég skot­dyn og bresti. Það mun hafa verið fall­byssu­kúlan, sem möl­braut brúna. Auk þess heyrði ég stöðugt skot úr hríð­skota­byssum. Tveir hásetar, Gísli Guð­munds­son og Guð­mundur Stef­áns­son féllu stjórn­borðs­megin í brúnni en stýri­mað­ur­inn, Sigurður Jör­unds­son, féll í „bestik“- hús­inu. Rétt á eftir fór skip­stjór­inn aftur á báta­pall, og ætl­aði að setja bát­inn á flot og var bróðir hans, Steinþór Árnason, þar með honum. Var þá skotið úr hríð­skota­byssum á báta­pall­inn og fór bát­ur­inn við það í tvennt. Ég hafði farið tvisvar upp á þil­far, en hörf­aði undir þiljur aftur vegna skot­hríð­ar­innar.  Svein­björn Dav­íðs­son, 1. vél­stjóri, fór inn í klefa sinn, til þess að ná sér í jakka, en í sama bili fékk hann skot í báða hand­legg­ina. Rétt á eftir heyrir Svein­björn, að skip­stjór­inn kallar: „Ég er særður“. Kallar þá Svein­björn til mín og 2. kynd­ara: „Strákar, þið verðið að koma upp, það eru særðir menn upp á dekki“. Hljóp ég þá upp og hitti einn háset­ann. Fórum við til skip­stjór­ans og bárum hann niður í káetu. Því næst fórum við upp aftur og fundum Steinþór Árnason bak­borðs­megin á dekk­inu og hafði hann dottið niður af báta­pall­inum, þegar hann fékk áverk­ann. Bárum við hann líka niður í káetu. Fórum við, sem eftir vorum uppi stand­andi, að reyna að hlynna að hinum særðu. Var Steinþór heit­inn með óráði, en skip­stjór­inn með rænu. Var nú kom­inn ofur­lít­ill léki að skip­inu, en ekki hættu­legur. Spurðum við skip­stjór­ann ráða og sagði hann okkur að stefna í norð-norð­vestur.

Nokkru seinna sáum við skip nálg­ast okkur. Var það Skaft­fell­ingur. Báðum við hann að senda skeyti til Vest­manna­eyja 0g biðja um aðstoð handa okkur. Var sent leit­ar­sveit þaðan á móti okkur, en við fórum á mis við það í fyrr­inótt. i fyrr­inótt var farið að draga af skip­stjór­anum, en Steinþór var lát­inn. Þegar skip­stjór­inn sá að hverju fór kall­aði hann til sín háset­ann, sem eftir var, og fól honum að koma skip­inu til lands. Andaðist skip­stjór­inn kl. 9 um morg­un­inn.  Um klukkan tíu í gær­morgun komum við til Eyja.  Þegar Fróði lagð­ist að bryggju var þar fyrir fjöldi fólks, og stóðu brezkir her­menn þar heið­ursvörð. Byrjaði land­göngu­at­höfnin á því, að lúðra­flokkur lék sorg­ar­lög, en skátar lögðu líkin á flutn­inga­bíla. Sjópróf verða haldin í Vest­manna­eyjum í dag. Línu­veið­ar­inn Fróði er byggður árið 1922, en kom hingað til lands árið 1924. Eigandi hans er Þor­steinn Eyfirð­ingur. Fróði er 123 smá­lestir að stærð.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi