Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Yfirlýsing frá Tómasi Guðbjartssyni lækni: „Hefur valdið mér og fjölskyldu minni ómældum sársauka“

Yfirlýsing frá Tómasi Guðbjartssyni lækni: „Hefur valdið mér og fjölskyldu minni ómældum sársauka“

Tómas Guð­bjarts­son biðst afsök­unar á þeim atriðum plast­barka­máls­ins sem snýr að honum og segir málið hafa haft afar slæm áhrif á fjöl­skyldu sína.

Í yfir­lýs­ingu frá Tómasi Guð­bjarts­syni lækni fer hann yfir nokkur atriði tengdu plast­barka­mál­inu svo­kall­aða og frétta­flutn­ingi af því und­an­farið. Segir hann umræð­una hafa verið á köflum óvægna og að stundum hafi verið farið „frjáls­lega með stað­reyndir“ og því vilji hann árétta nokkra hluti.

Tómas útskýrir að hann hafi ekki verið sendur í leyfi frá störfum á Land­spít­ala, heldur hafi hann fylgt ráðum kollega sinna og farið í sjúkra­leyfi. „Það geri ég bæði heilsu minnar vegna og með hags­muni sjúk­linga minna í huga,“ segir Tómast og segir að í starfi hjarta- og lungna­skurð­læknis, geti mis­tök auð­veld­lega ógnað lífi sjúk­ling­anna og segir hann að ein­beit­ing­una hafi skort hjá honum í þeim „stormi“ sem „geisað hafi und­an­farið.“

Einnig segir Tómas að hann hafi tíu sinnum borið vitni í mál­inu og haft frum­kvæði á að afhenda öll gögn sem hann hafði um málið, jafn­vel þó það kæmi niður á honum sjálfum. Þá segir hann að alla tíð hafi hann verið afar opinn við fjöl­miðla og að það hafi „orkað tví­mælis“ hjá sumum kollega hans og að hann muni taka þá gagn­rýni til greina.

Að lokum biðst Tómas afsök­unar á þeim þáttum máls­ins sem snéru að hans starfi sem læknir og fræði­maður og að hafa látið Paolo Macchiarini plata sig þetta lengi. Segir hann að málið hafi elt sig í 12 ár og haft gríð­ar­leg áhrif á fjöl­skyldu sína. „Þetta mál hefur nú fylgt mér í rúm­lega 12 ár og valdið mér og fjöl­skyldu minni ómældum sárs­auka, sárs­auka sem mun fylgja mér ævina á enda. Meiri er þó vita­skuld sárs­auki og missir ekkj­unnar og barn­anna tveggja, sem mér verður ítrekað hugsað til.“

Yfir­lýs­ing­una má lesa í heild sinni hér fyrir neðan:

Und­an­farið hefur aðkoma mín að fyrstu plast­barka­að­gerð­inni á Kar­ólínska sjúkra­hús­inu í Stokk­hólmi í júní 2011 verið á ný í fréttum. Umræðan hefur á köflum verið óvægin og stundum farið frjáls­lega með stað­reyndir. Ég vil því árétta eft­ir­far­andi:

  • Ég hef ekki verið sendur í leyfi frá störfum á Land­spít­ala, heldur hef ég fylgt ein­dregnum ráðum lækna og farið í sjúkra­leyfi. Það geri ég bæði heilsu minnar vegna og með hags­muni sjúk­linga minna í huga. Í starfi hjarta- og lungna­skurð­læknis geta mis­tök í aðgerð auð­veld­lega ógnað lífi þeirra, en í þeim stormi sem hefur geisað und­an­farið hef ég ekki haft þá ein­beit­ingu sem starfið krefst. Stjórn­endur á Land­spít­ala hafa stutt þessa ákvörðun mína.
  • Á sl. 10 árum hef ég verið kall­aður til sem vitni hjá 10 inn­lendum og erlendum rann­sókn­ar­að­ilum plast­barka­máls­ins, m.a. rann­sókn­ar­nefndum Karol­insku stofn­un­ar­innar, Karol­inska sjúkra­húss­ins, sænsku lög­regl­unnar og síð­ast en ekki síst  óháðri rann­sókn­ar­nefnd Land­spít­ala og Háskóla Íslands sem Páll Hreins­son stýrði og skil­aði ítar­legri skýrslu um 2017, sem má sjá hér: https://www.hi.is/frettir/skyrsla_nefndar_um_plastbarkamalid_kynnt. Nafn mitt kemur oft fyrir í öllum þessum skýrslum, enda ákvað ég að eigin frum­kvæði að afhenda öll gögn sem ég hafði undir höndum til sænsku lög­regl­unnar, þegar hún hóf form­lega rann­sókn á störfum Paolo Macchiarini fyrir tæpum ára­tug síðan. Gögnin inni­halda m.a. nákvæma tíma­línu og per­sónu­lega tölvu­pósta, og hafa verið lyk­il­heim­ildir við að upp­lýsa málið. Að afhenda slík gögn var ekki sjálf­gefið, enda afhjúp­uðu þau í sumum til­vikum ófull­komin vinnu­brögð af minni hálfu.
  • Í gegnum tíð­ina hef ég verið mjög opinn fyrir sam­skiptum við fjöl­miðla og litið á það sem hluta af starfi mínu sem pró­fessor í skurð­lækn­is­fræði. Ég hef einnig lagt í vana minn að svara fjöl­miðlum þegar til mín hefur verið leitað. Þetta hefur greini­lega orkað tví­mælis hjá sumum kol­legum mínum og ég mun taka þá gagn­rýni til greina. Ég er mann­legur, oft á tíðum fyr­ir­ferða­mik­ill og hvat­vís, en eflaust líka hégóm­legur, ekki síst þegar ég hef komið fram í fjöl­miðlum til að ræða mál­efni sem standa hjarta mínu nærri. Ég hef þó ávallt, og eftir bestu vit­und, reynt að greina rétt frá stað­reyndum.
  • Ég biðst afsök­unar á þeim atriðum í þessu máli sem hefðu betur mátt fara og sneru að mínum störfum sem læknir og fræði­maður, og hversu langan tíma það tók mig að sjá í gegnum Paolo Macchiarini og þann blekk­ing­ar­vef sem hann skóp, og er vel lýst í þátt­unum Bad Surgeon á Netflix. Þetta mál hefur nú fylgt mér í rúm­lega 12 ár og valdið mér og fjöl­skyldu minni ómældum sárs­auka, sárs­auka sem mun fylgja mér ævina á enda. Meiri er þó vita­skuld sárs­auki og missir ekkj­unnar og barn­anna tveggja, sem mér verður  ítrekað hugsað til.

Að lokum óska ég eftir að  fjöl­miðlar virði það að ég er í sjúkra­leyfi og mun hvorki svara tölvu­póstum né koma í við­töl.

Virð­ing­ar­fyllst, 

Reykja­vík, 8. jan­úar 2024 

Tómas Guð­bjarts­son

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi