Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Spáð í spilin fyrir EM í handbolta: „Styrkleikar liðsins eru óumdeilanlega sóknarleikur liðsins“

Spáð í spilin fyrir EM í handbolta: „Styrkleikar liðsins eru óumdeilanlega sóknarleikur liðsins“

Evr­ópu­mót karla í hand­bolta hefst í Þýska­landi í kvöld. Mannlíf ræddi við Davíð Már Krist­ins­son hand­knatt­leiks­þjálf­ara út í mögu­leika íslenska lands­liðs­ins og fleira tengdu mót­inu.

Mannlíf sett­ist niður með hand­knatt­leiks­þjálf­ar­anum Davíð Má Krist­ins­syni og spurði hann út í EM karla í hand­bolta sem hefst í kvöld.

Byrjum á þessu týpíska, hvernig lýst þér á íslenska landsliðið fyrir EM?

„Líkt og land­inn allur er maður alltaf spenntur fyrir stór­móti hjá Íslandi. Enn eina ferð­ina glæðir stór­mót í Hand­bolta lífi í leið­in­leg­asta og dimmasta mánuð árs­ins. Þessi við­burður sam­einar þjóð­ina líkt og Eurovision og Skaupið enda sanna áhorfs­tölur það. Mér lýst nokkuð vel á liðið. Við eigum flott lands­lið. Ég reyni að vera bjart­sýnn fyrir gengi liðs­ins en er að sama skapi raun­sær.“

Hvernig lýst þér á nýja landsliðsþjálfarann og þjálfarateymið?

„Ótrúlega vel. Snorri Steinn var búinn að gera frá­bæra hluti með Val í nokkur ár og lét liðið spila blússandi sókn­ar­bolta. Hann átti því skilið að fá þetta starf. Það var kom­inn tími á breyt­ingar í brúnni og Snorri er réttur maður á réttum stað og tíma. Aðstoð­ar­menn hans þeir Arnór Atlason og Óskar Bjarni Ósk­ars­son eru líka frá­bærir þjálf­arar og mynda gott tríó þarna með honum. Allir þessir þrír menn koma með ferskan and­blæ inn í liðið og ná að sam­eina hóp­inn og höfða vel til manna. Mórall­inn er algjör­lega frá­bær í hópnum hef ég heyrt.“

Hverjir eru styrkleikar og veikleikar liðsins?

„Styrk­leikar liðs­ins eru óum­deil­an­lega sókn­ar­leikur liðs­ins. Liðið er með mikla og góða breidd. Í lið­inu eru margir leik­menn sem geta opnað læstar dyr sókn­ar­lega. Leikmenn með mikil gæði, slag­kraft, leikskiln­ing og útsjón­ar­semi. Liðið á að geta spilað hraðan og skemmti­legan bolta sem á að geta skemmt þjóð­inni. Eins á styrk­leiki Íslenska lands­liðs­ins í hand­bolta alltaf að vera með meiri sam­heldni, meiri bar­áttu, meira þjóð­arstolt og ætt­jarð­ar­ást en and­stæð­ing­ur­inn. Auk þess að vera ófyr­ir­leitnir og heið­ar­legir í allri sinni nálgun. Án allra þess­ara gilda verður róð­ur­inn oft þungur hjá lið­inu.

Veik­leik­arnir eru hins vegar varn­ar­leik­ur­inn og mark­varslan. Því miður gam­al­kunn­ugt stef það. Í þessum æfinga­leikjum á móti Aust­ur­ríki er liðið á köflum mjög glopp­ótt varn­ar­lega og það verður því miður raunin á þessu móti held ég. Við ráðum til að mynda mjög oft illa við stóra og þunga línu­menn og náum ekki að leysa það. Mark­varslan á því miður að öllum lík­indum eftir að verða mjög óstöðug.“

Hvað ertu spenntastur að sjá hjá Íslenska liðinu?

„Fyrst og fremst að sjá liðið undir stjórn nýs þjálf­ara sem er með öðru­vísi áherslur en for­veri hans. Hlakka til að sjá hvort liðið fari ekki eitt­hvað í 5-1 vörn sem gæti gefið fleiri hraða­upp­hlaup en hefur oft verið síð­ustu ár. Hlakka líka til að sjá hvernig Snorri dreifir og stýrir álag­inu á lið­inu með róter­ingum á mann­skap. Held að það verði allir með sín hlut­verk á hreinu og það verði allir ferskir. Eins hlakka ég líka til að sjá hvort Aron Pálm­ars­son spili ekki bara ca. 30-40 mín­útur í leik. Reynslan hefur sýnt það að það er ekki hægt að keyra hann alveg út í fyrstu þremur leikj­unum. Einnig vona ég að Kristján Örn Krist­jáns­son eða „Donni“ eins og hann er kall­aður verði leik­fær en hann er tæpur vegna meiðsla. Hann kemur með öðru­vísi ógn hjá lið­inu. Hann er lítið í horna- eða línu­spili líkt og aðrar skyttur en er bara gam­al­dags lang­skytta. Liðið þarf að eiga hann upp í erminni til að fá lang­skot utan af velli.“

En hvaða leikmaður gæti komið mest á óvart hjá liðinu?

„Einar Þor­steinn Ólafsson. Ungur og efni­legur leik­maður sem er sífellt að bæta sig. Gríð­ar­lega lof­andi varn­ar­maður með nokkra góða eig­in­leika og algjör­lega frá­bær að bera bolt­ann upp völl­inn og taka rétta ákvörðun í kjöl­farið. Með mikla leik­greind eins og pabbi sinn Ólafur Stef­áns­son. 

Eins verður gaman að sjá Hauk Þrast­ar­son. Langt síðan hann spil­aði með lands­lið­inu vegna meiðsla. Spurning hvort hann gæti orðið óvæntur „Jóker“ þó að allir viti hvað hann geti þrátt fyrir til­tölu­lega ungan aldur ennþá.“

Var einhver leikmaður eða leikmenn sem þú hefðir viljað sjá komast í lokahópinn?

„Það hefði verið gaman að sjá Þorstein Leó í UMFA kom­ast í loka­hóp. En það er auð­vitað alltaf spurn­ing á kostnað hvers. Við höfum ekki átt leik­mann eins og hann síðan Héðinn Gilsson var upp á sitt besta. Yfir 2 metra skytta er afar sjald­gæft hér á Fróni. Hans tími kemur seinna. Það væri betra fyrir hann að taka sitt fyrsta stór­mót á HM þar sem and­stæð­ing­arnir eru oft mun lak­ari og meira svig­rúm fyrir mis­tök. Í milli­tíð­inni getur hann haldið áfram að þróa sinn leik sókn­ar­lega og bæta sig varn­ar­lega.“

Hvar endar Íslenska liðið?

„Liðið nær Ólymp­íu­sæti sem verður að telj­ast fínn árangur. Liðið mun toppa seinna.“

En hver verður markahæstur?

„Ómar Ingi Magn­ús­son“

Hverjir vinna mótið?

„Danmörk“

Er það eitthvað sem þú vilt segja að lokum?

„Ég vil hvetja alla til að hlusta á hlað­varps­þáttin Hand­kastið á meðan á móti stendur. Frábærir þættir hjá þeim félögum Arnari Daða Arn­ars­syni, Theódór Inga Pálma­syni og Styrmi Sig­urðs­syni. Þeir fara vel í saumana á íslenska lið­inu og mót­inu öllu. Það verður ekk­ert á mót­inu sem fer fram­hjá þeim kump­ánum og þeir munu kryfja allt til mergjar. Toppmenn.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi