Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Sigríður Dögg rýfur þögnina: „Er ekki sek um það sem ég er sökuð um“

Sigríður Dögg rýfur þögnina: „Er ekki sek um það sem ég er sökuð um“
Sigríður Dögg Auð­uns­dóttir

Sigríður Dögg Auð­uns­dóttir svarar loks­ins fyrir svara­leysi sitt gagn­vart skatta­málum sínum. Segir hún einnig að Hjálmar Jónsson, frá­far­andi fram­kvæmda­stjóri Blaða­manna­fé­lags Íslands, hafi marg­ít­rekað neitað að vinna þau verk­efni sem stjórnin fól honum að vinna.

Mannlíf heyrði í Sigríði Dögg Auð­uns­dóttur, for­manni BÍ og ræddi við hana um nýjust vend­ing­arnar hjá félag­inu en fram­kvæmda­stjór­anum, Hjálmari Jónssyni var sagt upp í gær. Þá ræddi hún einnig ástæð­una fyrir því að hún svar­aði aldrei spurn­ingum Mannlífs um skatta­mál hennar.

Uppsögnin

„Ég vísa bara í yfir­lýs­ingu stjórnar frá því í gær þar sem kemur fram að það hafi verið ein­róma sam­þykki stjórnar að fara þessa leið,“ sagði Sigríður Dögg aðspurð um upp­sögn­ina sem skekur blaða­manna­stétt­ina. Og hélt áfram: „Við hefðum vilja fara aðra leið en við vorum búin að vera í við­ræðum við Hjálmar um að bjóða honum annað starf, á óbreyttum kjörum hjá félag­inu. Stjórnin er búin að ræða það síðan í apríl, frá því að Hjálmar var 67 ára, að það fari að stytt­ast í að hann kom­ist á eft­ir­laun, að það eru ýmis verk­efni sem stjórnin er búin að ákveða að ráð­ast í, sem við töldum að við þyrftum meiri aðstoð með hér inn­an­húss, við að vinna og vildum því bæta við starfs­fólki. Og við hófum und­ir­bún­ing fyrir því í apríl og vorum búin að vera í sam­tali við hann um það síðan þá en í þess­ari veg­ferð komu upp staða sem stjórn mat sem svo að eina leiðin til að leysa úr, væri þessi. Að bjóða honum [Hjálmari] starfs­loka­samn­ing sem hann þáði ekki. Þá var ákveðið að segja honum upp.“

Þannig að það teng­ist ekk­ert deilum ykkar á milli?

„Það hafa engar deilur verið okkar á milli. En eins og kemur fram í yfir­lýs­ingu stjórnar, þá varð trún­að­ar­brestur á milli stjórnar og hans. Og eins og kom fram í frétt ykkar áðan, þá felst sá trún­að­ar­brestur meðal ann­ars í því að hann neit­aði að veita stjórn skoð­un­ar­að­gang að reikn­ingum félags­ins því auð­vitað er það stjórnin sem ber end­an­lega ábyrgð á fjár­málum félags­ins. Og stjórn­inni fannst það óhæft að fram­kvæmda­stjóri væri ekki að vinna þau verk­efni sem að stjórn fæli honum og lúta sam­þykktum stjórnar vegna þess að eina hlut­verk fram­kvæmda­stjóra er að vinna þau verk sem stjórnin felur honum. Og þegar hann gerir það ekki, marg­ít­rekað, neitar að verða við ákvörðun stjórnar og vinna þau verk­efni sem stjórnin hefur falið honum, þá getur stjórnin ekki lengur unnið með fram­kvæmd­ar­stjór­anum. Og það er trún­að­ar­brestur. Það er sá trún­að­ar­brestur sem við erum að tala um.“

Hvenær á að aug­lýsa eftir nýjum fram­kvæmd­ar­stjóra?

„Stjórnin hitt­ist aftur á morgun og þá verður tekin ákvörðun um það. Ég geri ráð fyrir að það verði á næstu dögum.“

Skattamálin

Mannlíf spurði Sigríði Dögg út í skatta­mál hennar en hún hefur ekki svarað spurn­ingum fjöl­mið­ils­ins varð­andi alvar­legar ásak­anir Páls Vil­hjálms­sonar fram­halds­skóla­kenn­ara og Mogga­blogg­ara, um meint skatta­laga­brot tengdum Sigríði Dögg og eig­in­manni hennar. Hvers vegna hefur þú ekki svarað spurn­ingum Mannlífs?

„Ástæðan fyrir því að ég hef ekki svarað er sú að allar þessar spurn­ingar eru runnar undan rifjum ein­hvers blogg­ara, sem hafa í raun litla stoð í ein­hverjum stað­reyndum. Þannig að spurn­ing­arnar ykkar voru bara út frá ein­hverjum róg­burði sem ein­hver maður úti í bæ var að bera á mig. Ef að þið væruð með ein­hverjar upp­lýs­ingar sem fjöl­mið­ill, sem þið vilduð fá svör mín við, aðrar en ein­hvern róg­burð frá manni úti í bæ, þá hefði ég örugg­lega svarað þessu.“

Aðspurð hvort það hefði ekki verið auð­veld­ast að svara þessu akkurat svona, strax, ját­aði Sigríður Dögg því.

„Jú, jú, ég hefði alveg örugg­lega geta gert það. En fyrir mig snérist þetta í raun­inni bara um þetta, að mér finnst að mér beri ekki skylda til að svara spurn­ingum sem að vakna út frá ein­hverjum róg­burði sem bor­inn er á mig. Ég vildi ekki gefa þessum róg­burði það mikið vægi að svara.“

En þú þurftir að semja við skatt­inn vegna van­gold­inna skatta, ekki satt?

„Eins og ég hef sagt opin­ber­lega, þá fékk ég end­ur­á­lagn­ingu gjalda eftir að það voru gerðar athuga­semdir um fram­tal mitt og ég ætla ekki að fara í það eitt­hvað efn­is­lega af því að ég var ekki til rann­sóknar hjá Skatt­inum, ég fékk enga sér­með­ferð og er ekki sek um það sem ég er sökuð um þarna. Og þess vegna finnst mér ég ekki bera nein skylda til þess að veita upp­lýs­ingar um mín per­sónu­legu fjár­mál.“

En hef­urðu gert stjórn Blaða­manna­fé­lags­ins grein fyrir mál­inu?

„Já, ég gerði það strax.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi