Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Yfirlýsing frá stjórn Blaðamannafélags Íslands um uppsögn framkvæmdastjóra

Yfirlýsing frá stjórn Blaðamannafélags Íslands um uppsögn framkvæmdastjóra

Yfir­lýs­ing frá stjórn Blaða­manna­fé­lags­ins barst fjöl­miðlum rétt í þessu.

Árétta stjórn Blaða­manna­fé­lags Íslands að ákvörðun um upp­sögn fram­kvæmda­stjóra félags­ins, Hjálmars Jóns­sonar, hafi verið sam­þykkt ein­róma í stjórn félags­ins og að ástæðan sé trún­að­ar­brestur milli hans og stjórn­ar­innar.

Hér fyrir neðan má lesa yfir­lýs­ing­una í heild sinni:

Stjórn Blaða­manna­fé­lags Íslands áréttar að ákvörðun um starfs­lok fram­kvæmda­stjóra félags­ins, Hjálmars Jóns­sonar, var ein­róma sam­þykkt í stjórn félags­ins og kemur til vegna trún­að­ar­brests milli hans og stjórnar sem hefur verið við­var­andi um nokk­urra mán­aða skeið. Yfir­lýs­ingar fram­kvæmda­stjór­ans fyrr­ver­andi á opin­berum vett­vangi und­an­farna daga opin­bera þann trún­að­ar­brest – að hann vildi ekki vinna með stjórn félags­ins eða í sam­ræmi við ákvarð­anir stjórnar. Eins og fram hefur komið var síð­asta atvikið sem birti þann trún­að­ar­brest í síð­ustu viku. Stjórn hafði sam­þykkt að for­maður skyldi fá skoð­un­ar­að­gang að reikn­ingum félags­ins, en fram­kvæmda­stjóri neit­aði að fram­fylgja þeirri ákvörðun. Auk þess hefur fram­kvæmda­stjóri ekki unnið fjöl­mörg þeirra verk­efna sem stjórn hefur falið honum, ásamt því að hann hefur neitað að mæta á fund með for­manni og vara­for­manni. Var stjórnin ein­róma um það í fram­hald­inu að óhjá­kvæmi­legt væri að binda enda á ráðn­ing­ar­sam­band hans og félags­ins. Stjórn áréttar að full­kom­lega eðli­legt er að for­maður, og eftir atvikum fleiri stjórn­ar­menn, hafi skoð­un­ar­að­gang að reikn­ingum félags­ins. Í því felst nauð­syn­legt aðhald enda segir í lögum félags­ins að stjórn hafi yfir­um­sjón með starf­semi félags­ins og beri á henni fulla ábyrgð. Almennt fer stjórn enda með æðsta vald í mál­efnum félags­ins á milli félags­funda. Fram­kvæmda­stjóri starfar svo í umboði stjórnar og sam­kvæmt þeim fyr­ir­mælum og stefnu sem stjórn ákveður. Svo stjórn geti sinnt hlut­verki sínu og fylgst með því að rekstur sé í réttu horfi þarf hún að hafa aðgang að bók­haldi og banka­yf­ir­litum. Stjórn­ar­menn eru að sjálf­sögðu bundnir sama trún­aði og fram­kvæmda­stjóri um per­sónu­grein­an­legar upp­lýs­ingar sem kann að vera að finna í bók­haldi eða banka­gögnum félags­ins.

Ákvörð­unin um að segja Hjálmari upp var engum stjórn­ar­manni létt­væg, var vel ígrunduð af hálfu stjórnar og hefur átt sér langan aðdrag­anda. Stuttu eftir að Hjálmar komst á eft­ir­launa­aldur, í apríl sl., ákvað stjórn að aug­lýsa starf nýs fram­kvæmda­stjóra sem taka myndi við verk­efnum Hjálmars þegar hann léti af störfum sökum ald­urs. Í því fólst einnig sú fyr­ir­ætlun að starfið myndi breyt­ast og að nýr fram­kvæmda­stjóri myndi sinna nýjum verk­efnum sem stjórn hafði ákveðið að ráð­ast í í sam­ræmi við breyttar áherslur í starfi félags­ins. Samhliða því fór fram sam­tal við Hjálmar um nýtt starf, sem stjórnin vildi bjóða honum, þar sem hann myndi áfram sinna verk­efnum í þágu félags­manna á sömu kjörum og hann hefur notið. Sú vinna, sem var unnin með fullri vit­und Hjálmars, var með aðkomu ráðn­ing­ar­skrif­stofu. Í tengslum við það ferli afhjúpað­ist sá trún­að­ar­brestur sem að ofan greinir með fyrr­greindum afleið­ingum.

Á sama stjórn­ar­fundi og stjórn tók ákvörðun um starfs­lok Hjálmars var ákveðið að aðal­fundi félags­ins yrði flýtt svo sem verða má. Svo fljótt sem end­ur­skoð­andi félags­ins getur lokið við að ganga frá árs­reikn­ingum sem þá þurfa að liggja fyrir verður boðað til fund­ar­ins, en sam­kvæmt lögum félags­ins skal það gert með minnst mán­aðar fyr­ir­vara. Vonast er til að hægt verði að halda aðal­fund í byrjun mars. Þar verður kosið um helm­ing stjórnar til tveggja ára, líkt og lög félags­ins gera ráð fyrir. Þá lýkur einnig kjör­tíma­bili for­manns og því kosið um for­mann til næstu tveggja ára.

Stjórn sam­þykkti á fundi sínum í morgun að setja starfs­reglur fyrir skrif­stofu félags­ins og hefja sam­hliða vinnu við nán­ari stefnu­mótun í sam­vinnu við félags­menn. Ákveðið var að halda félags­fund fyrir lok mán­að­ar­ins þar sem stefna félags­ins til fram­tíðar verður rædd.

Stjórn Blaða­manna­fé­lags Íslands

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi