Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Haraldur Erlendsson geðlæknir – Hugvíkkandi efni gætu orðið algjör bylting í geðlæknisfræði

Haraldur Erlendsson geðlæknir – Hugvíkkandi efni gætu orðið algjör bylting í geðlæknisfræði
Haraldur Erlends­son Mynd: Trausti Hafsteinsson

Haraldur Erlends­son geð­læknir segir gríð­ar­lega spenn­andi þróun í gangi þegar kemur að hug­víkk­andi efnum. Haraldur, sem er nýjasti gest­ur­inn í podcasti Sölva Tryggva­sonar hefur kynnt sér allar helstu rann­sóknir á hug­víkk­andi efnum og segir margt bendi til þess að þessi efni geti markað bylt­ingu í geð­lækn­is­fræð­inni:

„Nú erum við komin á þann stað að bæði MDMA og Psilosi­ben eru búin í þriðja fasa rann­sóknum. Það er stutt í að bæði þessi efni komi á markað sem lög­leg aðferð til að eiga við áfallastreitu, kvíða og þung­lyndi. Vanda­málið eins og staðan er núna að það er mjög dýrt að fram­kvæma þessar með­ferðir ef það er gert sam­kvæmt bestu stöðlum. Til dæmis MDMA, sem virð­ist gefa mjög góða raun varð­andi áfallastreitu, þá þarf helst að hafa tvo heil­brigð­is­starfs­menn sem sitja yfir ein­stak­lingnum í 6-8 klukku­tíma. Svo er bæði fyrir- og eft­ir­með­ferð, þannig að ein alvöru með­ferð gæti kostað 1-2 millj­ónir. Og stundum þarf fleiri en eina með­ferð. En það er margt hægt að gera til að draga úr kostn­að­inum og nú er verið að kanna leiðir til þess. Svo má ekki gleyma því að það spar­ast gríð­ar­legur kostn­aður ef fólk fær bót sinna meina, auk þess sem það er mann­úð­legt og rétt að veita fólki bestu mögu­legu aðstoð. Lyk­il­at­riðið er með­ferðin sam­hliða efn­unum og eft­ir­fylgnin, þannig að fólk nái að kom­ast í gegn og vinna úr áfall­inu. Efnin ein og sér virð­ast ekki gera mikið ef það er engin hand­leiðsla eða vinna sam­hliða. Eina lög­lega hug­víkk­andi efnið núna er Ketamín, sem er mjög gott efni, en rann­sóknir benda til þess að  það geri lítið sem ekk­ert gagn ef ekki fer fram sál­ræn með­ferð sam­hliða. Ein og sér gera efnin sama og ekk­ert ef fólk gefur sér ekki rými bæði á undan og eftir til þess að vinna sál­ræna vinnu,“ segir Haraldur, sem segir ákveðna bylt­ingu í gangi núna þegar kemur að hug­víkk­andi efnum, eftir ára­tugi þar sem ekki mátti einu sinni fram­kvæma rann­sóknir:

„Saga hug­víkk­andi efna er mjög áhuga­verð. „War on Drugs“ sem varð til á Nixon tím­anum stöðv­aði alla fram­þróun í rann­sóknum á þessum efnum. En það sem er nú að koma betur og betur í ljós er að þessi efni eru neð­ar­lega yfir fíkn og ávana­bind­ingu og eiga ekki heima í sama flokki og fíkni­efni. Sum þess­arra efna gætu átt eftir að verða eitt stærsta skref geð­lækn­inga frá upp­hafi. En það þarf að sjálf­sögðu að fram­kvæma þetta í réttum aðstæðum með hand­leiðslu. Við höfum dæmi um ein­stak­linga sem hafa glímt við alvar­legt þung­lyndi í áraraðir sem fá skammt af þessu undir réttri hand­leiðslu og nokk­urra klukku­tíma með­ferð og eru orðnir miklu betri strax á eftir og líður enn vel ári seinna. Það er ekk­ert í mínu fagi sem nálg­ast verkun af þessu tagi. Það hafa verið gerðar þús­undir rann­sókna á psilociben, sem benda til þess að þetta virki vel á fíknir, áföll, kvíða og þung­lyndi. Það er ekki búið að gera nógu mikið af stórum rann­sóknum til að þetta sé orðið að lög­legum lyfjum, en það á eftir að ger­ast innan ein­hverra ára og valda bylt­ingu. Það mun verða ummyndun á geð­lækn­is­fræð­inni sem fagi. Þetta er nátt­úru­legt og það hafa allir aðgang að þessu, sem þýðir að lyfj­arisarnir geta ekki eign­ast þetta einir. Þetta er dæmi um það þegar nátt­úru­leg aðferð getur orðið menn­ing­ar­leg lausn og það eru margar aðrar slíkar lausnir í til­ver­unni sem þarf að rann­saka.“

Haraldur, sem hefur í ára­tugi starfað sem geð­læknir segir stöð­una í geð­heil­brigð­is­kerf­inu aldrei hafa verið eins og nú. Kerfið sé sprungið og að það sé engin leið að ráða við vanda­mál tengd geð­heilsu ef fram heldur sem horfir:

„Þetta er flókið mál og hluti af vand­anum er að við erum farin að skilja þessa hluti betur og greina meira en áður. En geð­heil­brigð­is­kerfið er sprungið og við sem sam­fé­lag verðum að finna nýjar lausnir ef ekki á illa að fara. Vandinn er orð­inn of dýr til þess að það sé hægt að sinna honum eins og best væri á kosið. Hefð­bundin geð­heilsu­þjón­usta mun aldrei ráða við að sinna vanda­mál­unum ef þessi þróun heldur áfram. Vinnu­fram­lag í þjóð­fé­lag­inu er að með­al­tali skert um nærri 30 pró­sent vegna geð­rænna vanda­mála og bið eftir geð­lækni er talin í mörgum árum ef þú ert ekki með bráða­vanda. Það bendir fátt til ann­ars en að vanda­málin séu bara að aukast, þannig að það er frekar aug­ljóst að við verðum sem sam­fé­lag að finna nýjar leiðir til að takast á við þennan nútíma far­aldur. Það er aug­ljós­lega eitt­hvað að í því hvernig við lifum lífi okkar miðað við það hve hratt geð­rænni heilsu okkar sem þjóðar er að hraka,“ segir Haraldur, sem telur að mikið upp­lýs­inga­flóð og áreiti almennt vera hluta af vand­anum:

„Ein stærsta ógnin við heilsu okkar í nútím­anum er of mikið áreiti á heil­ann. Hvort sem það eru sam­fé­lags­miðlar, sjón­varp, útvarp eða annað. Skyn­færin og heil­inn eru stöðugt að taka við upp­lýs­ingum án þess að geta unnið almenni­lega úr þeim. Við þurfum öll mjög reglu­lega ró og næði og að vera í stað og stund án þess að vera stans­laust að taka á móti upp­lýs­ingum. Svefninn er að verða eini stað­ur­inn þar sem heil­inn fær tæki­færi á ein­hvers konar úrvinnslu. En nú er staðan orðin þannig að margir ná ekki einu sinni að sofa almenni­lega, meðal ann­ars vegna þess hve áreitið yfir dag­inn er mikið. Annað sem er að ger­ast er að það er ákveð­inn ein­manna­leika-far­aldur í gangi, þar sem mikið af fólki hefur ein­angrað sig, en við þurfum öll sam­skipti og sam­veru með fólki til þess að funkera almenni­lega. Oft verður þetta víta­hringur, því að þeir sem þjást af kvíða, þung­lyndi eða kulnun hafa til­hneig­ingu til að ein­angra sig, en það sem þetta fólk þyrfti mest á að halda til að ná bata væru mikil sam­skipti og tengsl við annað fólk.“

Haraldur segir aug­ljóst að þörfin eftir aðstoð vegna geð­rænna vanda­mála hafi auk­ist mjög mikið eftir Covid-far­ald­ur­inn. Þeir sem hafi verið í vanda fyrir hafi margir hverjir lent í miklu meiri vanda eftir að far­ald­ur­inn skall á:

„Það er að verða til stór hópur af full­orðnu fólki í sam­fé­lag­inu sem er orðið nær ósjálf­bjarga og kann ekki að takast á við lífið. Þetta fólk lifir nán­ast eins og börn þó að það sé komið vel á þrí­tugs­aldur og skortir bæði þraut­seigju og til­gang. Ef fólk er aldrei sett í erf­iðar aðstæður getur það endað mjög illa. Við þurfum öll á því að halda að takast á við verk­efni sem okkur finn­ast fyrst um megn til þess að styrkj­ast og þroskast. Við erum ekki hönnuð fyrir að fest­ast í þæg­ind­ara­mma þar sem reynir aldrei á okkur. Í gegnum tíð­ina hefur menn­ingin sveifl­ast á milli mildi og hörku og það er auð­vitað hægt að fara of langt í báðar áttir. Harkan sem var oft og tíðum í gangi hérna á árum áður er ill­mennska ef hún gengur of langt, en að sama skapi er of mikil góð­mennska bara með­virkni sem hjálpar engum,” segir Haraldur, sem seg­ist þeirrar skoð­unar að far­ald­ur­inn hafi einnig sýnt okkur hætt­urnar sem geta skap­ast þegar til verður of mikil múgsefjun:

„Það er aldrei gott þegar það mynd­ast þannig ástand að það sé bara ein skoðun leyfð og rétt­indi tekin af fólki og engin opin­ská umræða tekin. Það er lífs­nauð­syn­legt í lýð­ræð­is­legu sam­fé­lagi að uppi séu and­stæðar skoð­anir og að tek­ist sé á um þær. Á sínum tíma var búin til þrí­skipt­ing valds­ins og svo hafa fjöl­miðlar tekið að sér hlut­verk fjórða valds­ins. En fjöl­miðl­arnir hafa í raun ekki staðið undir því hlut­verki. Við þurfum að eiga alvöru umræðu um hvernig við getum búið til alvöru fjórða vald sem veitir ríkj­andi vald­höfum aðhald.“

Hægt er að nálg­ast við­talið við Harald og öll við­töl og podcöst Sölva Tryggva­sonar inni á sol­vi­tryggva.is

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi