Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Margrét Tryggvadóttir svarar gagnrýni Braga Páls: „Ég engist út af þessu máli“

Margrét Tryggvadóttir svarar gagnrýni Braga Páls: „Ég engist út af þessu máli“
Margrét Tryggva­dóttir bók­mennta­fræð­ingur, fyrrum alþing­is­kona og rit­höf­undur.

Margrét Tryggva­dóttir segir það hafa verið mis­tök af Rit­höf­unda­sam­band­inu að dreifa í þeirra nafni, ályktun evr­ópska rit­höf­unda­sam­bands­ins, þar sem árás Rússa á Úkraínu var for­dæmt. Sam­bandið afþakkar að sína Palest­ínu stuðn­ing.

Bragi Páll Sig­urð­ar­son rit­höf­undur og skáld, gagn­rýndi Rit­höf­unda­sam­band Íslands harð­lega á Facebook í gær fyrir að afþakka það að flagga fána Palest­ínu við skrif­stofur sínar en það gerðu nýlega aðilda­fé­lög Raf­iðn­að­ar­sam­bands Íslands. Færsluna má lesa hér fyrir neðan:

„Frábært að sjá fag­fé­lögin mót­mæla þjóð­ar­morð­inu.

Athugið samt að það RSÍ sem þarna flaggar er ekki Rit­höf­unda­sam­band Íslands, heldur Raf­iðn­að­ar­sam­band Íslands. Rit­höf­unda­sam­bandið afþakk­aði nefni­lega að flagga með vísun í þriðju grein sam­bands­ins, þar sem segir: „Rit­höf­unda­sam­band Íslands tekur ekki þátt í bar­áttu stjórn­mála­flokka né hlut­ast til um lista­stefnur, stjórn­mála­skoð­anir eða trú­ar­brögð.“ Vissu­lega er mik­il­vægt að skerða ekki rétt þeirra félags­manna sem eru með þá stjórn­mála­skoðun að þjóð­ar­morð sé rétt­læt­an­legt. Nema félagið líti svo á að þjóð­ar­morð falli undir lista­stefnu eða trú­ar­brögð?Hefði samt haldið að sú stað­reynd að rit­höf­unda­sam­bandið for­dæmdi árásir Rússa á Úkraínu hefði nægt til þess að grípa til svip­aðra aðgerða núna. Eða sú stað­reynd að innan rit­höf­unda­sam­bands­ins er Palest­ínskur með­limur. Eða að í þess­ari sömu þriðju grein sem sam­bandið ber fyrir sig sem ómögu­leika stendur líka skrifað að til­gangur þess sé meðal ann­ars að „…verja frelsi og heiður bók­mennta og rit­listar og standa gegn hvers kyns ofsóknum á hendur rit­höf­undum og hindr­unum í starfi þeirra.“

Ísrael hefur nú þegar myrt rit­höf­unda, ljóð­skáld, þýð­endur og blaða­fólk í algjör­lega sögu­legu magni. En það er kannski bara for­dæm­an­legt þegar hvítt fólk deyr en ekki brúnt?“

Mannlíf heyrði í for­manni Rit­höf­unda­sam­bands Íslands, Margréti Tryggva­dóttur og spurði hana út í gagn­rýn­ina. Margrét hafði ekki heyrt af henni en sagði sam­bandið ekki vera póli­tískt. „Það er ekki vilji, það er bara sam­þykkt okkar að taka fyrir að við gerum þetta,“ svar­aði hún aðspurð af hverju það væri ekki vilji innan stjórnar Rit­höf­unda­sam­bands­ins, til að flagga fána Palest­ínu. Segir Margrét að á síð­ustu miss­erum hafi stjórn­inni margoft borist beiðnir um að álykta „um hitt og þetta“ og að stjórnin hafi fundað oft vegna þessa. „Íslenskir rit­höf­undar eyddu stórum hluta tutt­ug­ustu ald­ar­innar í að ríf­ast um póli­tík, þannig að þegar okkar sam­band var stofnað fyrir tæpum fimm­tíu árum, var sett inn klausa í lög félags­ins um að þau eigi ekki að skipta sér að póli­tík eða taka afstöðu.“

En nú tókuð þið afstöðu með Úkraínu, ekki satt?

„Já, það var reyndar ekki alveg þannig því að það sem við gerðum var þannig, og senni­lega voru það mis­tök, en við dreifðum, en í okkar nafni, ályktun Evrópsku rit­höf­unda­sam­tak­anna, og á ensku.“

Mun stjórnin gera slíkt hið sama ef Evrópsku rit­höf­unda­sam­tökin álykti um þjóð­ar­morðið á Gaza?

„Nei, veistu ég held ég hrein­lega, þetta er reyndar ekki alveg sama stjórn og var fyrir nokkrum árum, en við erum bara búin að fara yfir þessi mál, vegna þess að í hverjum ein­asta mán­uði ber­ast okkur beiðnir. Og ef við hefðum orðið við öllum beiðn­unum út af Gaza, þá hefðum við örugg­lega verið búin að senda út fjórar, eða fimm álykt­anir, vegna þess að þær eru bara mjög mis­mun­andi.“

Margrét segir að ályktun Evrópsku rit­höf­unda­sam­tak­anna hafi aðeins snúið að tján­inga­frelsi. „Í okkar sam­þykktum er okkur líka gert að berj­ast fyrir tján­inga­frelsi og auð­vitað fer þetta ekki alveg saman, að okkur sé ann­ars vegar óheim­ilt að taka póli­tíska afstöðu og hins vegar for­dæma rit­skoðun og árásir á blaða­menn og rit­höf­unda og aðra lista­menn. Þannig að þetta er ekki alveg sam­rým­an­legt í lög­unum. Og þessi ályktun hjá Evrópsku rit­höf­unda­sam­tök­unum, sem vísað er í, snýst ein­göngu um tján­ing­ar­frelsi. Mér finnst hins vegar ekki við hæfi að smækka þjóð­ar­morð niður í ein­hverja ályktun um tján­ing­ar­frelsi rit­höf­unda þar. Því það hefur líka verið áskorun um það, við tökum þá þann vinkil á það en mér finnst það bara ótrú­leg hræsni og alls ekki koma til greina. Það er bara ekki hægt að smætta það sem er að ger­ast á Gaza niður í ályktun um skoð­ana­frelsi eða rit­frelsi eða mál­frelsi.“

Bragi Páll bendir á í sinni gagn­rýni á allan þann fjöldi rit­höf­unda, ljóð­skálda, þýð­enda og blaða­fólks, sem myrtir hafa verið á Gaza und­an­farna mán­uði.

„Já, en samt er nú meiri hluti þeirra sem eru fallnir bara börn og ung­menni. En já, maður hefur heyrt ýmis­legt og það er bara margt hræði­legt sem sagan geymir og ég held að við ættum ekki að fara í ein­hverja keppni í hvað er mest og hrika­leg­ast því mann­kyns­sagan er stút­full af hrika­legum dæmum. Og ég er ekki að segja þetta til að gera lítið úr þessu, ég eng­ist út af þessu máli. Þetta er algjör­lega hrylli­legt og ég held að það velk­ist eng­inn í vafa hvar ég stend í póli­tík en ég hef ekki umboð sem for­maður Rit­höf­unda­sam­bands­ins og við sem stjórn, til að álykta um þetta, okkur er hreini­lega meinað það í lög­unum. Þannig er bara þessi staða.“

En meinar eitt­hvað ykkur að setja upp fána Palest­ínu?

„Mér finnst það vera póli­tísk yfir­lýs­ing, já.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi