Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Ahmed missti öll börn sín í sprengjuárás: „Pabbi, hvenær getum við spilað fótbolta á Íslandi?“

Ahmed missti öll börn sín í sprengjuárás: „Pabbi, hvenær getum við spilað fótbolta á Íslandi?“
Ahmad Al-Mamlouk

Ahmed Al-Mamlouk er Palest­ínu­maður sem íslensk yfir­völd vilja senda úr landi. Hann missti konu sína og öll fjögur börn sín í sprengju­árás Ísra­els­hers á hús þeirra á Gaza, á dög­unum.

Mannlíf kíkti í stærsta tjaldið sem stendur á Aust­ur­velli en þar hafa nokkrir örvænt­inga­fullir Palest­ínu­menn sett upp tjald­búðir, í von sinni um að yfir­völd á Íslandi bregð­ist við og komi fjöl­skyldu­með­limum þeirra frá Gaza, sem nú þegar hafa fengið sam­þykki um fjöl­skyldu­sam­ein­ingu við þá sem hér eru. Sumir þeirra sem dvelja þarna eru þar til að biðla til rík­is­stjórn­ar­innar að miskuna sig yfir þeim og leyfa þeim að vera áfram í land­inu, með mann­úð­ar­sjón­ar­miðið í huga.

Það var skít­kalt í gær en í tjald­inu var hlýja og það ekki ein­ungis vegna þeirra hitalampa sem góð­borg­arar hafa fært mönn­unum sem þar dvelja, heldur staf­aði hlýjan einnig frá þeim sem þar voru. Ekki voru allir þar inni Palest­ínu­menn, því þar voru einnig nokkrir Íslend­ingar, sem vanið hafa komu sína í tjaldið að und­an­förnu, til að sýna stuðn­ing í verki. Þá var þar einnig Sýr­lend­ingur, sem hér býr en hann kom þangað til að túlka fyrir við­talið.

Við tjald­búð­irnar

Ahmed Al-Mamlouk er lít­il­látur maður, kurt­eis og við­kunna­legur. En í augum hans er gríð­ar­leg sorg, tóm­leiki. Og ástæðan er ærin. Ahmed missti á dög­unum alla fjöl­skyldu sína á einu bretti. Kona hans, Asmae, Alaa, 14 ára sonur hans, Mohamad, 12 ára sonur hans, Yeaha, 10 ára sonur hans og einka­dóttir hans, hin níu ára Nadia, voru öll sömul á heim­ili sínu á Gaza, ásamt bróður Asmae, hinu fræga skáldi og fræði­manni, Refaat Alareer, þegar ísra­elski her­inn sprengdi húsið í loft upp. Öll dóu þau nema Nadia, sem var flutt illa særð á höfði, á sjúkra­hús. Ahmed reyndi eftir bestu getu að ná sam­bandi við Rauða kross­inn á Gaza, um að koma dóttur hans á örugg­ara sjúkra­hús en fékk engin svör. Þá bað hann Rauða kross­inn á Íslandi um áheyrn en fékk ekki svör fyrr en fjórum dögum síðar. Það var um seinan því Nadia lést af sárum sínum þremur dögum eftir árás­ina.

Blaða­maður Mannlífs sett­ist niður með Ahmed og túlk­inum Muhammad Shawa, frá Sýrlandi, í nokkuð mjúkan sófa í stærsta tjald­inu við Alþing­is­húsið. Og bað Ahmed að segja sögu sína.

Ferðalagið

Ahmed ákvað fyrir fimm árum að flytja frá Gaza í leit að betra lífi fyrir sig og fjöl­skyldu sína. En hann fór einn.

„Ég flutti til Tyrk­lands og bjó þar í tvö ár. Svo flutti ég til Aust­ur­ríkis og var þar í næstum 17 mán­uði og nú hef ég verið hér á Íslandi í næstum því 14 mán­uði. Frá því að ég var ung­lingur og til dags­ins í dag, hefur alltaf verið stríð á Gaza. Á hverju ein­asta ári. En svo kom sá dagur að ég ákvað að í ljósi þess að nú væri ég kom­inn með eig­in­konu og börn, sem ég elska út af líf­inu, að þá verð ég að finna betra líf handa okkur í örugg­ara landi. En því miður reynd­ist það til­gangs­laust.“

En af hverju fórstu einn?

„Aðal­á­stæða þess að ég skildi fjöl­skyld­una eftir er kostn­að­ur­inn en það var mjög dýrt fyrir mig að ferð­ast til Evrópu. En svo var áhættan sem ég tók á ferða­lag­inu einnig of mikil. Ég flutti frá Gaza til Egypta­lands og frá Egypta­landi til Tyrk­lands en það gerði ég lög­lega, með því að kaupa flug­miða þangað. En ég má ekki ferð­ast yfir landa­mæri frá Tyrk­landi, þannig að ég fór sjó­leiðis frá Tyrk­landi til Grikk­lands og þaðan til Aust­ur­ríkis og loks til Íslands. Og nán­ast allt ferða­lagið var ólög­legt og kost­aði heil­mikið og ég hafði ekki efni á að taka alla fjöl­skyld­una með mér. Hvað áhætt­una varðar, þá var hún gríð­ar­mikil. Ég fór oft­ast fót­gang­andi yfir landa­mæri og lög­reglan elti okkur [með honum var annar flótta­maður] út um allt. Við þurftum að ferð­ast fót­gang­andi, í bát og þurftum jafn­vel að synda og í sumum til­fellum að skríða. Ímyndaðu þér að hafa börn með þér í þessum aðstæðum. Við feður, tökum áhættur sjálfir en myndum aldrei leyfa fjöl­skyld­unni að taka þær, þannig að við fórnum okkur fyrir fjöl­skyld­una.“ Ahmed sagð­ist sjálfur ekki hafa orðið vitni af dauða flótta­fólks en heyrði af öðrum hópum þar sem fólk hafði lát­ist á ferða­lagi sínu í átt að betra lífi í Evrópu.

Af hverju fórstu frá Tyrk­landi?

„Ég ákvað að gefa mér tæki­færi og dvaldi í Tyrk­landi um tíma og reyndi mitt besta við að skapa mér líf þar sem ég hefði efni á að koma fjöl­skyldu minni til mín svo við gætum lifað góðu, öruggu lífi. En þrátt fyrir að ég vann 12-13 klukku­stundir á dag, hafði ég ekki efni á að fram­fleyta sjálfum mér, hvað þá fjöl­skyldu minni.“

En af hverju vild­irðu koma til Íslands?

„Það eru þrjár ástæður fyrir því. Í fyrsta lagi af því að Íslend­ingar eru þekktir fyrir mannúð sína og gera sitt besta fyrir rétt­læti til handa fólki í neyð. Í öðru lagi er Ísland þekkt fyrir tján­ing­ar­frelsi og lýð­ræði. Hér get­urðu sagt það sem þú vilt og átt sam­ræðum um alla hluti. Og þriðja ástæðan er sú að Ísland, að minnsta kosti er það minn skiln­ingur, reynir alltaf sitt besta við að bjarga manns­lífum.“

Árásin

„Eftir að stríðið hófst 7. októ­ber, fluttu ætt­ingjar mínir til aust­ur­hluta Gaza en eig­in­kona mín og fjögur börn okkar, náðu ekki að elta þau og koma sér á brott og voru því föst í hús­inu okkar. Við reyndum að hafa sam­band við Rauða kross­inn til að koma þeim í burtu frá því svæði sem var verið að sprengja en fékk þau svör að Rauði kross­inn væri einnig skot­mark Ísra­els­hers og því gæti hann ekk­ert gert. Eftir að Ahmed hafði ekki náð sam­bandi við fjöl­skyldu sína í 25 daga, hafði hann aftur sam­band við Rauða kross­inn og bað um hjálp en fékk sömu svör, það væri því miður ekk­ert sem hann gæti gert.“

En svo komu skelfi­legu tíð­indin.

„Þann 7. des­em­ber fékk ég þær fréttir að árás hefði verið gerð á húsið sem fjöl­skylda mín bjó í. Kona mín dó í árásinni ásamt þremur sonum okkar og tveimur bræðrum hennar. Dóttir okkar, Nadia, var flutt á sjúkra­hús, illa særð á höfði. Ég heyrði aftur í Rauða kross­inum og bað um hjálp við að koma henni frá Gaza og á annað sjúkra­hús, svo hún geti fengið almenni­lega aðhlynn­ingu. Og ég hafði líka sam­band við Rauða kross­inn á Íslandi, til að biðja hann um að þrýsta á Rauða kross­inn á Gaza, um hjálp fyrir dóttur mína. En því miður fékk ég þær fréttir, eftir að hafa reynt í þrjá daga, að Nadia var látin. Fjórum dögum eftir and­lát hennar, hafði Rauði kross­inn í Reykja­vík sam­band og vildi funda með mér. Ég fór á fund­inn og var þar spurður hvað Rauði kross­inn gæti gert fyrir dóttur hans. Þau vissu sem sagt ekki að hún væri látin. Ég sagði þeim að hún væri því miður ekki lengur í þessu jarð­lífi og það væri ekk­ert sem þau gætu gert. Eftir að hafa verið fjarri fjöl­skyldu minni í fimm ár, missi ég hana á einu bretti.“

Börnin dreymdu um betra líf

Mannlíf bað Ahmed að segja aðeins frá eig­in­kon­unni og börn­unum sínum fjórum, ef það væri ekki of erfitt fyrir hann.

Blessuð séu minn­ing þeirra

„Asmae var ein með fjögur börn á Gaza, í gríð­ar­lega erf­iðum aðstæðum. Hún var hetja. Hún var móðir barn­anna og hún var faðir þeirra líka. Hún gerði allt sem hún gat fyrir börnin. Og við vorum alltaf í sam­bandi og töl­uðum um að sam­ein­ast aftur einn dag­inn. En það gerð­ist aldrei, því miður.“

Ahmed lýsti svo börnum sínum laus­lega en þau voru öll full af lífi og draumum um betra líf á meðan þau lifðu. „Ég hafði ekki séð þau í fimm ár en var í stöð­ugu sam­bandi við þau í gegnum WhatsApp og mynda­sím­töl. Alaa, 14 ára sonur minn, var mjög ástríðu­fullur og afar metn­að­ar­fullur og lærði stíft. Hann lang­aði að verða eins og frændi hans, sem er ensku­kenn­ari og var að feta í fót­spor hans. Muhammad, 12 ára, elskaði fót­bolta. Í hvert skipti sem ég var að tala við Asmae í mynd­sím­tali, birt­ist alltaf Mohamad og tók sím­ann af mömmu sinni og spurði „Pabbi, hvenær getum við spilað fót­bolta á Íslandi?“ Yeaha, tíu og hálfs árs, hann átti hjól sem hann not­aði mjög mikið og í hvert skipti sem við töl­uðum saman var hann að biðja mig um að kaupa vespu handa sér. En ég sagði að ég myndi gera það þegar hann kæmi til mín en hann vildi að ég keypti það strax, því kannski myndi ég ekki eiga fyrir því þegar hann fengi loks­ins að kom­ast til Íslands. Nadia, níu ára einka­dóttir mín, var mjög glað­lynd. Hún vildi flytja til Íslands og bað mig um að kaupa handa sér Ipad. Hún hringdi oft í mig og söng fyrir mig ljóð sem hún hafði lagt á minnið í skól­anum. Svo átti hún til að leika sér að því að farða sig og sendi myndir af sér þannig.“

Nadia

Þegar blaða­maður Mannlífs tárað­ist við að hlusta á lýs­ing­arnar á börn­unum baðst Ahmed afsök­unar á að láta hann líða svona illa yfir þessu öllu.

„Árið 2014 var einnig framið stærð­ar­innar þjóð­ar­morð á Gaza og við hjónin vorum að flýja með börnin undan árás­unum. Þetta var skelfi­legt. Við þurftum að klífa yfir lík fólks og ég hjálp­aði við að fjar­lægja lík af göt­unum. Þannig að ég vand­ist því að sjá svo hræði­lega hluti og að vera í slíkum aðstæðum. Þannig að mér þykir leitt að hafa komið þér í upp­nám.“

En hvernig líður þér?

„Ég er algjör­lega nið­ur­brot­inn að innan. Sár mitt er mjög stórt. Ég missti alla fjöl­skyldu mína, öll börnin. En samt sem áður hugsa ég stundum, að ég verði að halda áfram, ég verð að kom­ast yfir það sem gerð­ist og halda áfram með líf mitt. En ég veit að ég mun aldrei gleyma eig­in­konu minni og börnum. Ég man alla góðu dag­ana og alla slæmu dag­ana sem við áttum saman, á Gaza. Ég mun ekki gleyma þeim. Ég mun aldrei gleyma mynd­band­inu þar sem dóttir mín er dregin út úr rústum húss­ins. En mig langar að gefa sjálfum mér tæki­færi á að halda áfram, svo ég geti lifað ein­földu lífi, svo það hvetji mig til þess að ná aftur takti hins venju­lega lífs. Ég er bjart­sýnn maður en ég við­ur­kenni að ég fer upp og ég fer niður, ég flökta. En ég er í grunn­inn bjart­sýnn og jákvæður.“

Ertu einnig bjart­sýnn um ástandið á Gaza og fram­tíð þess?

„Þegar kemur að ástand­inu á Gaza er ég ekki bjart­sýnn. Ég á föður þar sem er gam­all maður og veik­burða. Hann fékk heila­blóð­fall árið 2018 og hefur sótt lækn­is­að­stoð vegna þessa. Ég hef ekki heyrt í honum eða öðrum fjöl­skyldu­með­limum í yfir mánuð og veit því ekki hvort hann sé að taka lyfin sín, býst ekki við því reyndar. Fólkið á Gaza er að deyja vegna lyfja­skorts, mat­ar­skorts, vatns­skorts. Þar er ekk­ert raf­magn né síma­sam­band. Þannig að ég er alls ekki bjart­sýnn um ástandið á Gaza.“

Staðan í dag

En hvernig er staða Ahmeds á Íslandi? Er hann búinn að fá dval­ar­leyfi eða er búið að neita honum?

„Ég fékk fyrstu neit­un­ina eftir að hafa beðið í 14 mán­uði en ég áfrýj­aði en fékk aftur neitun. Ég reyndi svo að áfrýja aftur með hjálp lög­manns en fyrir stuttu fékk ég lokan­eit­un­ina, sem þýðir að ég verð brátt sendur úr landi. Það á að senda mig aftur til Aust­ur­ríkis en þegar ég var þar síð­ast var engin von fyrir mig um að fá hæli þar.“

Ahmed þakk­aði Mannlífi fyrir að ljá sér rödd og vildi koma eft­ir­far­andi á fram­færi til íslenskra yfir­valda. „Ég vil biðla til íslenskra yfir­valda að veita okkur hér dval­ar­leyfi af mann­úð­ar­á­stæðum því við erum eftir allt mann­eskjur, við erum með sál.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi