Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Bashar Murad steig á svið á Austurvelli – Sjáðu myndbandið

Bashar Murad steig á svið á Austurvelli – Sjáðu myndbandið
Bashar Murad

Palest­ínski tón­list­ar­mað­ur­inn Bashar Murad steig á svið á mót­mæla­fundi Félags­ins Ísland-Palest­ína á Aust­ur­velli í dag. Lag tón­listl­ar­manns­ins í Söngvakeppni sjón­varps­ins verður kynnt á RÚV í kvöld.

Fjöldi fólks mætti á fund­inn.

Fjöldi manns safn­að­ist saman fyrir utan Hall­gríms­kirkju í vetr­ar­kuld­anum, til að mót­mæla árásum Ísra­els­hers á Palest­ínu­menn. Félagið Ísland-Palest­ína stóð fyrir fund­inum en gengið var niður Skóla­vörðu­stíg og niður á Aust­ur­völl. Kröfur fund­ar­ins voru meðal ann­ars þær að íslensk stjórn­völd styðji við kæru Suður Afríku gegn Ísrael fyrir Alþjóða­dóm­stólnum í Haag, að stjórn­mála­sam­bandi verði slitið við Ísrael og við­skipta­banni komið á.

Illugi Jök­uls­son flutti ræðu á fund­inum.

Funda­stjórn var í höndum Þuríðar Blæs Jóhanns­dóttur leik- og söng­konu en Illugi Jök­uls­son fjöl­miðla­maður og rit­höf­undur hélt ræðu þar sem meg­in­málið var það, að þó hægt sé að hafa mis­mun­andi skoð­anir á Hamas og gjörðum þeirra, á Ísra­els­ríki og fleiru í tengslum við átökin fyrir botni Mið­jarð­ar­hafs, sé erfitt að hafa ein­hverja aðra skoðun en að blóð­baðið á Gaza verði að stoppa og það strax. Íslensk-palest­ínski rapp­ar­inn Alex­ander Jarl steig á svið eftir Illuga og flutti nokkur frum­samin lög við mik­inn fögnuð við­staddra.

Alex­ander Jarl

Bashar Murad, palest­ínski tón­list­ar­mað­ur­inn sem keppir í Söngvakeppni sjón­varps­ins í kvöld, steig síð­ast á svið og flutti lagið Mawtini (Heima­land mitt), sem í yfir 70 ár hefur verið óop­in­bert þjóð­lag Palest­ínu að mati margra Palest­ínu­manna en það hefur verið sungið víða í Araba­heim­inum enda talar það til allra kúg­aðra þjóð­ar­brota. Stundin var afar fal­leg en allir Palest­ínu­menn­irnir sem voru að fund­inum tóku undir söng Bashar.

Hér fyrir neðan má sjá söng Bashar:

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi