Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Gagnrýnir mikla hækkun á sorphirðugjaldi á Seltjarnarnesi: „Skortur á faglegum vinnubrögðum“

Gagnrýnir mikla hækkun á sorphirðugjaldi á Seltjarnarnesi: „Skortur á faglegum vinnubrögðum“

Guð­mundur Ari Sig­ur­jóns­son, bæj­ar­full­trúi Sam­fylk­ing­ar­innar á Sel­tjarn­ar­nesi gagn­rýnir bæj­ar­stjórn­ina vegna mik­illar hækk­unar á sorp­hirðu­gjaldi í sveit­ar­fé­lag­inu. Bæj­ar­stjór­inn segir von á útboði.

Mikil óánægja er í íbúum Sel­tjarn­ar­ness eftir að sorp­hirðu­gjald hækk­aði mikið um ára­mótin. Guð­mundur Ari Sig­ur­jóns­son, bæj­ar­full­trúi Sam­fylk­ing­ar­innar á Sel­tjarn­ar­nesi og með­limur stjórnar Sambands íslenskra sveit­ar­fé­laga, er einn þeirra sem gagn­rýnir málið. „Þjón­ustu­sam­ing­ur­inn rann út og bæj­ar­stjóri var ekki til­bú­inn með útboð á nýjum, þannig að gjöldin hækk­uðu um rúm 100 pró­sent,“ segir Guð­mundur Ari í sam­tali við Mannlíf. „Þetta gerð­ist líka með skólamat­inn síð­asta haust, það var bara það nákvæm­lega sama, þá rann samn­ing­ur­inn út og þá þurfti að fram­lengja hann og þá varð 40 pró­sent hækkun,“ sagði Guð­mundur enn­fremur og bætti við: „Þetta er bara skortur á fag­legum vinnu­brögðum.“ Aðspurður hvort minni­hlut­inn hafi mót­mælt þessu með ein­hverjum hætti sagði Guð­mundur að við fjár­hags­á­ætl­un­ina hafi minni­hlut­inn mót­mælt og bókað að ekki ætti að ráð­ast í gjald­skrár­hækk­an­irnar.

Þór Sig­ur­geirs­son bæj­ar­stjóri Sel­tjarn­ar­ness segir í skrif­legu svari til Mannlífs að unnið sé útboðs­gögnum fyrir Sel­tjarn­ar­nesbæ, auk ann­arra sveit­ar­fé­laga á Höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Þá segir hann eði­legt að samn­ingar séu fram­lengdir á meðan útboðs­gögn eru útbúin.

„Varðandi sorpið þá rann samn­ingur okkar við okkar þjón­ustu­að­ila sl. sumar. VSÓ hefur verið að vinna að útboðs­gögnum fyrir Sel­tjarn­ar­nesbæ auk ann­ara sveit­ar­fé­laga á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Nú eru þau loks til­búin og fram undan útboð á sorp­hirðu. Vonandi næst hag­felld nið­ur­staða. Það er algegnt að samn­ingar séu fram­lengdir á meðan útboðs­gögn eru útbúin. Sér í lagi nú fyrir glæ­nýtt kerfi sem hefur tekið drjúgan tíma. Þannig var það hjá okkur. Engu að síður hækk­aði þjón­ustu­aðli okkar sín verð um ríf­lega helm­ing við fram­leng­ing­una. Nýjar kröfur til að mynda um raf­drifna sorp­bíla og þess háttar hafa tafið fyrir gerð útboðs­ganga. Þessi tæka­bún­aður er ekki til nægj­an­legum mæli hjá öllum sorp­hirðu­að­ilum.“

Bendir Þór svo á Umhverf­is­ráðu­neytið varð­and hina nýju flokkun sem nýlega tók gildi. Segir hann að við laga­setn­ing­una hafi verið full­yrt um að breyt­ingin yrði ekki íþyngj­andi fjár­hags­lega en að annað hafi komið á dag­inn.

„Hitt er svo alveg annað mál sem þú ættir að Umhverf­is­ráðu­neytið að en ekki okkur. Það er hin nýja flokkun þar sem los­anir á sorp­í­látum aukast um 60% sam­kvæmt laga­setn­ing­unni. Við laga­setn­ing­una var full­yrt að breyt­ing þessi yrði ekki íþyngj­andi fjár­hags­lega. Annað hefur sann­ar­lega komið á dag­inn og fyr­ir­tæki á þessum mark­aði hafa hækkað verð á sinni þjón­ustu upp úr öllu valdi. Það lítur út fyrir að gleymst hafi við gerð laga­setn­ingar að ræða við þjón­ustu­að­il­ana. Þetta nýja kerfi var engan veg­inn til­búið. Okkar sorp­hirðu­gjöld hafa snar­hækkað í sam­ræmi við þetta, en þannig er það nú hjá öllum sveit­ar­fé­lögum höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins og bæj­ar­full­trú­inn sem þú nefnir ætti að vita þetta sem full­trúi í bæj­ar­ráði og stjórn Sambands íslenskra sveit­ar­fé­laga.“

Varðandi skólamat­inn svarar Þór því til að samn­ingur hafi verið fram­lengdur, „á sama hátt og önnur sveit­ar­fé­lög gerðu á nákvæm­lega sama tíma“ og að bæj­ar­stjórn hafi hækkað nið­ur­greiðslur sveit­ar­fé­lags­ins á móti hækk­unar birgj­ans.

„Hvað mat í skóla­stofn­anir varðar var einnig fram­lengt samn­ingi á sama hátt og önnur sveit­ar­fé­lög gerðu á nákvæm­lega sama tíma. Okkar birgi hækk­aði sín verð um 33% vegna hækk­ana aðfanga til sín auk vísi­tölu. Við hækk­uðum nið­ur­greiðslu sveit­ar­fé­lags­ins á móti.

Hér er unnið að útboðs­lýs­ingu á þessum þjón­ustu­lið sem og öðrum. Við vonum sann­ar­lega að útkoman verði hag­felld fyrir okkur hjá bænum og for­eldra.

Engin athuga­semd var gerð við fram­leng­ingu þessa samn­ings á 148. fundi bæj­ar­ráðs þar sem þetta var sam­þykkt.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi