Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Hjálmar vísar sögusögnum um handtöku á bug: „Ég veit að þetta bitnar á börnunum mínum“

Hjálmar vísar sögusögnum um handtöku á bug: „Ég veit að þetta bitnar á börnunum mínum“
Hjálmar Hall­gríms­son Mynd: Víkurfréttir

Hjálmar Hall­gríms­son, lög­reglu­maður og for­maður bæj­ar­ráðs Grinda­víkur, vísar sögu­sögnum um ástæðu þess að hann fór í leyfi hjá lög­regl­unni, algjör­lega á bug.

Æsilegar sögu­sagnir hafa verið í gangi um Hjálmar Hall­gríms­son, lög­reglu­mann og for­mann bæj­ar­ráð Grinda­víkur sem nýlega fór í leyfi, vegna hags­muna­á­rekstra sem upp eru komin vegna þeirra tveggja starfa sem hann hefur. Sögu­sagn­irnar hafa ekki farið fram­hjá Hjálmari og fjöl­skyldu hans en önnur þeirra gengur út á að hann hafi hleypt vinum og vanda­mönnum inn í Grinda­vík þann 10. nóv­em­ber, svo þeir gætu sótt vöru­bíla og fleiri eignir, á meðan aðrir íbúar máttu ekki koma inn í bæinn. Hin sögu­sögnin snýr að rým­ingu úr Grinda­vík­urbæ, dag­inn sem gaus síð­ast á svæð­inu, 14. jan­úar. Átti Hjálmar að hafa neitað að yfir­gefa bæinn og að Sérsveit rík­is­lög­reglu­stjór­ans hafi þurft að sann­færa hann um að koma sér úr bænum.

„Fyrra atvikið, það er algjör fjar­stæða að ég hafi verið settur af,“ sagði Hjálmar í sam­tali við Mannlíf og hélt áfram: „Ég var í vett­vangs­stjórn og ég tók ákvörðun um að hleypa þarna ákveðnum aðilum til að sækja bíla en þarna voru miklir hags­munir í húfi og ég gaf þetta leyfi og ég var gagn­rýndur fyrir það. Ok, þá er það bara þannig og þá er það afgreitt.“

Sú saga sem snýr að rým­ing­unni 14. jan­úar, segir Hjálmar vera algjöra þvælu en hann hafði heyrt af því að hann hefði verið hand­tek­inn en aðspurður um Sér­sveit­ina sagð­ist hann ekki hafa heyrt það fyrr. „Ég get eig­in­lega ekki sagt af hverju ein­hverjir eru að reyna að níða af mér skó­inn en ég er svo sem búinn að vera lög­reglu­maður í 37 ár þannig að ég hef nú heyrt ýmis­legt. Varðandi rým­ing­una, þá hringdi í mig blaða­maður dag­inn eftir, það kom mér á óvart. En staðan var sú að við söfn­uð­umst saman, fjöl­skyldan mín. Ég var með þrjú barna minna og barna­börn, móður mína 85 ára gamla og systur mína. Við vorum öll á heim­il­inu mínu, með bíl­ana í gangi og vorum að klæða okkur í. Einu afskiptin sem voru höfð af okkur voru tveir kurt­eisir lög­reglu­menn sem bönk­uðu upp á og sögðu „Eruð þið ekki að fara?“, „Jú, við erum bara að klæða okkur í jakk­ana og erum bara að fara, hún mamma er hérna með mér.“ „Ekkert mál, þið eruð bara með þeim síð­ustu að fara út úr bænum“. Þar með fórum við bara í bíl­ana okkar og keyrðum öll út á Suð­ur­strand­ar­veg og end­uðum á Selfossi og í Reykja­vík. Þetta er nú öll sagan.“

Hjálmar segir að svona dylgjur trufli hann lítið en að börnin hans taki þessu illa. „Þetta káfar ekk­ert upp á mig, ég veit alveg hvernig menn eru. En ég veit að þetta bitnar á börn­unum mínum. Þau voru þarna og þau eru brjáluð. Ég er að reyna að segja þeim að vera róleg, svona er þetta bara, svona er fólk og við munum aldrei ráða við það, en þau voru á staðnum og eru þess vegna svona reið. Þetta eru bara gróu­sögur og maður á enga vörn í þessu.“

Mannlíf spurði Hjálmar út í hinar raun­veru­legu ástæðu þess að hann er nú í leyfi hjá lög­regl­unni. „Málið er það að ég er búinn að vinna í öllum gos­unum, við vett­vangs­stjórn og annað og það hefur oft verið þægi­legt og stytt boð­leiðir, til dæmis þegar bær­inn hefur komið að fram­kvæmd, lok­unum og fleira. Þá var ágætt að vera beggja megin. Nú er atburð­ur­inn orð­inn miklu alvar­legri, nú er farið að sækja að rétt­indum Grind­vík­inga og ég verð að beita mér meira, mér ber skylda, sam­kvæmt 24. grein sveit­ar­stjórn­ar­laga, að verja íbúa mína og hugsa um hags­muni þeirra. Þannig að það er miklu betra að ég sé í leyfi og fái að starfa sem bæj­ar­stjórn­ar­maður og tali fyrir fólkið mitt.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi