Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Árni sparkar í Össur

Árni sparkar í Össur
Alþingi Íslend­inga

Í nóv­em­ber, árið 1995, átti sér stað upp­á­koma á þingi sem hefði senni­lega sómt sér betur í far­sa­kenndu leik­riti á fjölum ann­ars konar leik­húss. Össur Skarp­héð­ins­son, þáver­andi þing­maður og fyrr­ver­andi ráð­herra, stóð þá í pontu og lét gamm­inn geisa á sinn landskunna hátt.

Segir sagan að ein­hverjir skruðn­ingar hafi heyrst í þing­sal og hafi Össur þá haft á orði að honum heyrð­ist sem hátt­virtur þing­maður, Árni Johnsen, væri að hrista höf­uðið. Hló þá þing­heimur dátt að hnyttni Össurar, ef frá er tal­inn einn þing­maður, áður­nefndur Árni Johnsen.

Eins og í öllum góðum, far­sa­kenndum leik­verkum lauk mál­inu ekki þarna, þótt Össur hafi reyndar lokið sínu máli. Árni beið færis, kom síðan aftan að Össuri, kleip hann í annað eyrað og sneri dug­lega upp á. Össur ku ekki hafa kippt sér upp að nokkru ráði við þennan gjörn­ing kollega síns og kveink­aði sér ekki undan þess­ari lymsku­legu atlögu.

Össur Skarp­héð­ins­son

Árni taldi senni­lega ekki nóg að gert því hann átti eftir að sækja að Össuri aftur áður en langt um liði. Fékk hann kjörið tæki­færi þegar hann sá að Össur var á leið niður stiga þing­húss­ins, sam­ferða Jóni Baldvini Hanni­bals­syni.

„Neyttu meðan á nef­inu stendur“ segir mál­tækið og þarna var komið kjörið tæki­færi til að kenna Össuri lex­í­una. Árni Johnsen kom aðvíf­andi og lét sparkið vaða, kannski líkt og víta­skytta í knatt­spyrnu­leik. Sann­að­ist þarna að Árni var engin óskytja því sparkið rataði í aft­ur­enda Össurar og segir sagan að sá síð­ar­nefndi hafi verið fljót­ari niður stig­ann en hann ætl­aði sér.

Að sögn urðu nokkrir þing­menn vitni að þess­ari leift­urárás Árna og spurðu Össur hvort hann hygð­ist ekki kæra atlög­una til for­seta Alþingis. Össur hefði svarað að bragði, eitt­hvað á þá leið að hann hygð­ist ekki elta ólar við mann sem hefði allt sitt líf verið á greind­ar­stigi sauð­kind­ar­innar. Síðar sagði Árni Johnsen að umfjöllun fjöl­miðla um málið hefði verið „móð­ur­sýki […], hreint blaður og rugl. Við Össur vorum bara að gant­ast“.

Grínið tekur greini­lega á sig ýmsar myndir á Alþingi og sýnir að and­inn þar, þar sem hátt­virtir og hæst­virtir makka um mál­efni lands og þjóðar, getur oft og tíðum orðið lævi bland­inn. Geta hnút­urnar sem þing­menn kasta hver í annan æði oft fram­kallað bjöllu­slátt frá for­seta Alþingis, sem þarf þá að bregða sér í hlut­verk leik­skóla­fóstru og fá „krakk­ana“ til að haga sér skikk­an­lega. Hvort búið sé að bera saman greind­ar­stig þing­manna og sauð­kind­ar­innar er ekki vitað.

Bak­sýn­is­speg­ill þessi birt­ist áður hjá Mannlífi 21. októ­ber 2021 og var í einu af tölu­blöðum Mannlífs um sama leyti.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi