Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Kveikti sér í pípu og var skotinn af lögreglunni – Falsfrétt um andlát Íslendings í Hull

Kveikti sér í pípu og var skotinn af lögreglunni – Falsfrétt um andlát Íslendings í Hull
Myndin teng­ist ekki bak­sýn­is­spegl­inum beint. Mynd: Mehmet Itil – Pexels.com

Þann 17. jan­úar árið 1915 birt­ist frétt á Vísi þar sem sagt var frá manns­láti hins þrí­tuga Gísla Odds­sonar skip­stjóra í Hull, rétt fyrir jól 1914 en hann var sagður hafa verið skot­inn af lög­reglu­manni. Fyrri heim­styrj­öldin stóð yfir og njósn­arar á hverju horni og lög­reglan því víða á varð­bergi. Í Hull var bannað að ganga um bæinn að kvöldi til og sam­kvæmt frétt Vísis hafði Gísli skroppið út til að kveikja í pípu sinni. Lög­reglu­maður hafi svo talið að um merkja­send­ingu að ræða á milli njó­sn­ara og skaut hann kald­ann. En raunin reynd­ist önnur.

Svona er frétt Vísis frá 17. jan­úar 1915:

Íslend­ingur skot­inn í Hull

Íslenskur maður að nafni Gísli Oddsson Gísla­sonar frá Sæbóli bók­bind­ara á ísa­firði, var skot­inn í Hull skömmu fyrir jól. Hann var á gangi fyrir utan bæinn um kvöld og kveykti þar í pípu sinni, en mönnum er bannað að vera utan bæjar úr því að dimt er orðið. Lög­reglan hefir því haldið er hún sá ljósið að njósn­ar­menn væri að gefa merki og hleypt af. Gísli þessi var skip­stjóri á enskum botn­vörpung, mesti dugn­aðar og atgervis­maður. Hann var um þrí­tugt og ókvæntur.

Þann 25. febr­úar 1915, birti Morg­un­blaðið stutta frétt þar sem efast var um þær stað­hæf­ingar að Gísli Oddsson hafi verið skot­inn í Hull, en skip­stjóri Great Admiral, Þórarinn Olgeirs­son kvaðst hafa átt sam­tal við Gísla, sem virt­ist alls ekki hafa orðið fyrir skoti.

Hér er frétt Morg­un­blaðs­ins:

Íslend­ingur skot­inn í Hull.

Sú fregn var breidd út hér um bæinn að Íslend­ing­ur­inn, sem skot­inn var í Hull fyrir óvar­kárni sína, hefði verið Gísli Oddsson skip­stjóri. Þegar »Great Admiral« var í Englandi núna fyrir fáum dögum, átti Þórarinn skip­stjóri tal við Gísla og sá þess þá engin merki á honum að hann hefði verið skot­inn. Trúum vér því ekki að Þórarni hafi mis­sýnst.

Að lokum kom það á dag­inn að Gísli Oddsson skip­stjóri, var sprell­lif­andi en pabbi hans er sagður í litlu frétta­skoti í Lögréttu í febr­úar 2015, hafa leið­rétt frá­sögn­ina af and­láti sonar síns í blað­inu Vestra.

Hér má sjá frétta­skotið:

Íslend­ing­ur­inn, sem skot­inn var í Húll, er ekki Gísli Oddsson skip­stjóri, eins og áður var sagt. Faðir hans á Ísafirði hefur fengið fulla vissu um þetta og leiðrjett frá­sögn­ina í „Vestra“.

Þrátt fyrir nokkuð ítar­lega leit fann Mannlíf ekki téða leið­rétt­ingu föður Gísla, né upp­lýs­ingar um það hver það var sem skot­inn var af lög­reglu­manni í Hull, rétt fyrir jól 1914, það er að segja ef það var ekki flökku­saga en á þessum tíma bár­ust fréttir stundum seint og voru kannski ekki alltaf þær áreið­an­leg­ustu.

Hafi ein­hver frek­ari upp­lýs­ingar um hið áhuga­verða mál, má endi­lega senda tölvu­póst á Mannlíf.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi