Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Illugi minnist móður sinnar: „Þá tókst henni að bæta svolítið veröldina. Já, bara heilmikið“

Illugi minnist móður sinnar: „Þá tókst henni að bæta svolítið veröldina. Já, bara heilmikið“
Illugi Jök­uls­son.

„Mamma hefði orðið 84 ára í dag en hún dó úr lungna­krabba­meini fyrir sjö árum af því þó hún væri ham­hleypa til flestra verka þá tókst henni aldrei að hætta að reykja. Í dag langar mig að minn­ast mömmu sem fram­kvæmda­mann­eskju í þágu kvenna og ein­stæðra for­eldra.“ Þannig hefst Facebook-færsla Illuga Jök­uls­sonar, rit­höf­unds og fjöl­miðla­manns en þar minn­ist hann móður sinnar, Jóhönnu Krist­jóns­dóttur, blaða- og bar­áttu­konu.

Illugi talar sér­stak­lega í færsl­unni, um bar­áttu móður sinnar fyrir mál­efnum ein­stæðra for­eldra en Jóhanna varð for­maður í þá nýju Félagi ein­stæðra for­eldra árið 1969. „Þegar hún stóð uppi ein­stæð móðir um þrí­tugt með þrjú börn og síðan fjögur og komin í afar krefj­andi starf sem blaða­maður á Morg­un­blað­inu, þá hefði henni vel fyr­ir­gef­ist þó hún hefði látið gott heita og snúið sér að því að hlú að sjálfri sér. En ekki hún mamma. Hún gerð­ist for­maður í nýju Félagi ein­stæðra for­eldra 1969. Ef ein­stæðir for­eldrar (aðal­lega mæður) glíma við for­dóma og mis­rétti og erfið kjör núna, þá ætt­uði að vita hvað var við að glíma fyrir 50 árum, en FEF lyfti sann­köll­uðu Grettistaki við að bæta stöðu þeirra.

Mamma var als ekk­ert ein á ferð en allir sem þekkja til vita þó að hún var lífið, sálin, drif­fjöð­urin og jarð­ýtan í starfi FEF fyrstu 20 árin.“Illugi nefnir sér­stak­lega opnun skóla­dag­heim­ila í Reykja­vík upp úr 1970, sem nú eru nefnd frí­stunda­heim­ili og segir það hafi gerst fyrir áhrif móður hans og félaga hennar í FEF. „Skóla­dag­heim­ilin ollu bylt­ingu sér í lagi fyrir ein­stæða for­eldra,“ skrifar Illugi og nefnir einnig það mikla „afrek“ þegar FEF keypti árið 1981, hús í Skerja­firð­inum sem var neyð­ar­hús­næði fyrir ein­stæða for­eldra í fjöldi ára og 1986 þegar annað hús bætt­ist við á Öldu­göt­unni. „Og þessi húsa­kynni FEF voru ekki þak yfir höf­uðið fyrir ein­stæða for­eldra (nær ein­göngu mæður) heldur fún­ker­uðu líka sem eins­konar for­veri kvenna­að­hvarfs­ins, því margar konur sem þar fengu í skynd­ingu inni voru að flýja ofbeld­is­menn.“Illugi minn­ist svo á í færsl­unni að þegar út kom bók fyrir nokkrum árum um bar­áttu­sögu kvenna á 20. öld­inni – Konur sem kjósa, sem honum finnst bæði „stór­glæsi­leg“ og „sér­lega skemmti­leg“, en að höf­undum hafi ekki fundið „pláss á öllum sínum blað­síðum til að minn­ast einu orði, ekki einu orði, á starf mömmu og Félags ein­stæðra for­eldra, og var þó víða seilst í þeirri bók og að vonum.“

En Illugi segir að móðir hans hefði bara blásið á pirr­ing­inn í honum. „En mamma hefði bara blásið á svo­leiðis pirr­ing í mér. Hún gekk bara í verkin.“

Að lokum óskar Illugi vinum og ætt­ingju móður sinna til ham­ingju með dag­inn.

„Til lukku með dag­inn kæru ætt­ingjar og vinir mömmu. Margt gerði mamma og það má með sanni segja að með starfi sínu og félaga í FEF, þá tókst henni að bæta svo­lítið ver­öld­ina. Já, bara heil­mikið.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi