Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Sjúkraflugvélin sem hvarf – Tíu börn urðu föðurlaus þetta kvöld

Sjúkraflugvélin sem hvarf – Tíu börn urðu föðurlaus þetta kvöld

Snemma árs 1966 óraði dreng nokkrum á Norð­firði ekki fyrir því að hættu­legur leikur hans með sprengjur ætti eftir að setja af stað atburða­rás þar sem tveir fimm­barna feður myndu stuttu síðar láta lífið og aldrei finn­ast.

Það var þann 18. jan­úar að tveir flug­menn Flug­sýnar, þeir Sverrir Jónsson og Hösk­uldur Þor­steins­son lögðu af stað í sjúkra­flug frá Reykja­víkur til Norð­fjarðar í slæmu veðri. Drengur nokkuð hafði fengið stálflís í augað er hann lék sér með sprengjur. Þegar flug­menn­irnir sem báðir höfðu mikla reynslu af flugi, nálg­uð­ust Norð­fjörð hefur eitt­hvað komið fyrir því flug­um­ferða­stjórn missti sam­bandi við flug­vél­ina en eftir helj­ar­innar leit fannst björg­un­ar­vesti í fjöru og olíu­brák í sjónum.

Þessi mynd var tekin er Beechcraftflugvél Flug­sýnar er hún kom í fyrsta sinn til Nes­kaup­staðar. Flug­stjóri í þeirri ferð var Sverrir Jónsson, sem einnig var með vél­ina er hún týnd­ist, og sést hann á mynd­inni ræða við Bjarna Þórð­ar­son þáver­andi bæj­ar­stjóra í Nes­kaup­stað.

Hér fyrir neðan má lesa brot úr umfjöllun Þjóð­vilj­ans um málið á sínum tíma:

Þetta er lítil tveggja hreyfla flug­vél af Beechcraft gerð og var fyrsta flug­vélin, sem notuð var í Norð­fjarð­ar­flugi og ber ein­kenn­is­staf­ina TF-AIS. Beiðni hafði komið frá Nes­kaup­stað í fyrra­kvöld að sækja dreng til flutn­ings á sjúkra­hús og hafði hann fengið stálflís í auga við spreng­ing­ar­leik. Flug­vélin lagði af stað kl. 18.30 frá Reykja­vík­ur­flug­velli og flaug fyrst til Egils­staða vegna ábend­ingar um slæm veð­ur­skil­yrði og tók flug­vélin þar benzín til fimm klukku­stunda flugs. Þegar frétt­ist af upp­rofi á Nes­kaup­stað, þá lagði flug­vélin af stað frá Egils­stöðum og mun brott­far­ar­tími þaðan hafa verið kl. 21.40 og er áætlað flug þaðan um fimmtán mín­útur og stóðst sú tíma­setn­ing, þar sem flug­vélin flaug yfir aðflugsvita á Norð­firði kl. 21.56. Þá var haft sam­band við flug­mann­inn kL 22.12 og bjó þá flug­mað­ur­inn sig undir að lækka flugið til aðflugs og lend­ingar á vell­inum. Þetta er það síð­asta sem spurzt hefur til vél­ar­innar og gerði um þetta leyti dimmt él inn Norð­fjarð­ar­fló­ann. Þraut­reyndir flug­menn hafa verið spurðir um lík­leg við­brögð undir svona kring­um­stæðum og telja þeir lík­legt,að flug­mað­ur­inn hafi tekið stefn­una til hafs og hafi átt að hækka sig í örugga loft­hæð og tekið stefn­una á næstu örugga flug­höfn. Eru þarna þver­hníptar fjalls­hlíðar til beggja hliða. Erfitt er þó að leiða getum að afdrifum flug­vél­ar­innar. Þegar flug­vélin gaf sig ekki fram á nýjan leik, þá var þegar haft sam­band við flug­rad­íóið á Egils­stöðum og til­kynntu þeir flug­um­ferð­ar­stiórn í Reykja­vík um bið­ina og fengu þeir til­kynn­ing­una nálega sam­stundis. Þeir höfðu þegar sam­band við Flug­björg­un­ar­sveit­ina hér í Reykja­vík og voru lagðir af stað með flug­vél frá Flug­fé­lagi Íslands kl. 22,53. — voru það 20 flug­björg­un­ar­menn undir stjórn Sigurðar Þor­steins­sonar, varð­stjóra cg hefur hann stjórnað leit­inni fyrir austan. Þetta er talin úrvals­sveit og vön klifri í fialla­klettum og flugu þeir fyrst til Egils­staða og fóru þaðan með bílum til Nes­kaup­staðar yfir Odds­skarð. Um nótt­ina höfðu allar land­síma­stöðvar opið frá Þórshöfn -að norðan og allt suður að Lóni og hófst þegar við­bún­aður víða um nótt­ina til leitar.

Nokkrum dögum seinna birti Einherji grein um leit­ina að flug­vél­inni:

Flugvél týn­ist með tveim mönnum

Lítil tveggja hreyfla flug­vél, frá Flugsýn, týnd­ist aðfara­nótt 18. jan. sl. Fór hún í sjúkra­flug frá Reykja­vík til Norð­fjarðar. Veður var slæmt, og gat flug­vélin ekki lent á Norð­firði. Flaug hún þá til Egils­staða og tók benzín. Flaug síðan aftur til Norð­fjarðar og ætl­aði að reyna að lenda. Síðast heyrð­ist til vél­ar­innar, er hún til­kynnti, að hún ætl­aði að reyna lend­ingu, en síðan hefur ekk­ert til hennar spurzt. Hafin var víð­tæk leit, sem þátt tóku í margar sveitir á landi, flug­vélar úr lofti og skip á sjó. Má segja, að leitað hafi verið um allt Austur-, Suður- og Norð­ur­land, og með­fram strönd Aust­fjarða. Leitað var í fimm daga, en árang­urs­laust. Fundizt hefur björg­un­ar­vesti úr flug­vél­inni, rekið norðan Gerpis, og því talið víst, að flug­vélin hafi hrapað í sjó á þeim slóðum.

Síðan hefur ekk­ert til flug­vél­ar­innar spurst enda greipar Ægis djúpar og dimmar.

Sverrir Jónsson og Hösk­uldur Þor­steins­son

Með flug­vél­inni voru tveir menn: Sverrir Jónsson, aðal flug­stjóri Flug­sýnar. Hann var kvæntur Sólveigu Þor­steins­dóttur og lét eftir sig 5 börn. Og Hösk­uldur Þor­steins­son, kenn­ari flug­skól­ans, sem lét eftir sig konu, Krist­fríði Krist­mars­dóttur og 5 börn.

Bak­sýn­is­speg­ill þessi birt­ist áður hjá Mannlífi þann 10. febr­úar 2023.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi