Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Blóðslóð Rússlandsforseta – Um dularfull dauðsföll gagnrýnanda Putins

Blóðslóð Rússlandsforseta – Um dularfull dauðsföll gagnrýnanda Putins
Vladimir Putin Mynd: Trausti Hafsteinsson

Aleksei Navalny dó í fang­elsi í Rúss­landi á dög­unum og telja flestir að Vladimir Putin Rúss­lands­for­seti hafi látið drepa hann, þó stjórn­völd í Kreml neiti því stað­fast­lega. Navalny er ekki eini gagn­rýn­andi Putins sem for­set­inn er grun­aður um að hafa banað.

Stjórn­ar­and­stæð­ing­ur­inn Aleksei Navalny var þyrnir í augum Putin enda tal­aði hann gegn spill­ingu í Rúss­landi og leiddi stærð­ar­innar mót­mæli gegn Kreml. Navalny lést 16. febr­úar síð­ast­lið­inn í fang­els­isný­lendu í Norður-Rúss­landi en þar var hann fluttur fyrir nokkru eftir að hafa verið dæmdur í 19 ára fang­elsi. Samkvæmt fang­els­is­yf­ir­völdum varð hinum 47 ára Navalny, illt í göngutúr í fang­els­is­garð­inum og missti stuttu síðar með­vit­und. Samkvæmt yfir­lýs­ingu yfir­vald­anna kom sjúkra­bíll á vett­vang en gat ekki bjargað honum. Hafa yfir­völd síðar sagt að hann hefði dáið úr blóð­tappa en lang­flestir efast um þá stað­hæf­ingu.

En Navalny er ekki eini þyrn­ir­inn í augum Rúss­lands­for­seta, sem hafa verið fjar­lægður. Hér fyrir neðan má lesa um nokkra aðila sem voru áber­andi í gagn­rýni sinni á stjórn­völdum í Kreml, en hafa svo dáið ofbeld­is­fullum og/eða grun­sam­legum dauðs­föllum, síðan Putin komst til valda fyrir tæpum ald­ar­fjórð­ungi. Hér eru ekki tekin dæmi um þá sem sloppið hafa með skrekk­inn, eins og fyrr­ver­andi leyni­þjón­ustu­maður rúss­neska hers­ins, Sergei Skripal, sem lifði af eitrun, ásamt dóttur sinni, í mars 2018.

Yevgeny Prigozhin

23. ágúst 2023:

Yevgeny Prigozhin, yfir­maður Wagner-mála­liða­hóps­ins, með náin tengsl við Putin, lést í flug­slysi með helstu sam­starfs­mönnum sínum. Yevgeny, sem lengi vel vann í skugg­anum en fór svo skyndi­lega að vera meira áber­andi, stóð á bak við fjölda skugga­legra og óheilla­væn­legra fyr­ir­tækja, allt frá „nettrölla­búi“ sem bland­aði sér í banda­rískar kosn­ingar, til mála­liða­hers sem barð­ist í Sýrlandi og Úkraínu. Þá hefur Wagner-hóp­ur­inn verið virkur í nokkrum Afr­íku­löndum.

Yevgeny Prigozhin

Prigozhin, sem áður var banda­maður Pútíns, hóf upp­reisn gegn Kreml í lok júní á síð­asta ári, tveimur mán­uðum fyrir and­lát sitt. Sagði hann upp­reisn­ina bein­ast gegn rúss­neskum her­for­ingjum en skamm­aði Putin í leið­inni og afhjúpaði tak­markað vald for­set­ans, sem varð til þess að smækka leið­toga Rúss­lands, sem hefur alltaf viljað láta líta á sig sem sterkan og áreið­an­legan vernd­ara fólks­ins. Kreml­verjar tjáðu sig lítið sem ekk­ert um flug­slysið en sér­fræð­ingar hafa sagt að lík­legt hafi sprengja grandað flug­vél­inni og því ekki um slys að ræða.

Boris Nemtsov

2. febr­úar 2015:

Umbótasinn­inn, fyrr­ver­andi svæð­is­stjór­inn og og fyrr­ver­andi aðstoð­ar­for­sæt­is­ráð­herr­ann Boris Nemtsov, er skot­inn til bana á brú nálægt Kreml, en morðið var sagt í „gengja­stíl“ en hann var skot­inn fimm sinnum í bakið. Nemtsov var rísandi stjórn­mála­stjarna á tíunda ára­tug síð­ustu aldar en varð einn af hörð­ustu and­stæð­ingum Putins seinna meir. Hann var 55 ára þegar hann var myrtur.

Boris Nemtsov

Nemtsov, sem var frjáls­lyndur þing­maður snemma í for­seta­tíð Putins, hjálp­aði til við að leiða mót­mæli gegn grun­sam­legum þing­kosn­ingum og end­ur­komu Pútíns í for­seta­emb­ættið árið 2012. Hann var ein­dregið á móti yfir­gangi Rússa gegn Úkraínu árið 2014 og sagði hana „fyr­ir­lit­lega“, „ósvífna“ og „skað­lega fyrir Rússland“.“

Þegar hann var myrtur hafði hann og félagar hans unnið að skýrslu þar sem­finna mátti ítar­legar sann­anir fyrir umfangi afskipta Moskvu af nágranna­land­inu.

Sergei Magnitsky

16. nóv­em­ber 2009: Upp­ljóstr­ar­inn og lög­fræð­ing­ur­inn Sergei Magnit­sky, sem hafði bendlað rúss­neska emb­ætt­is­menn við meint 230 milljón doll­ara skatt­svik, deyr einu ári eftir að hafa verið dæmdur í fang­elsi fyrir svip­aðar sakir. Sergei Magnit­sky þjáð­ist af bris­bólgu og var neitað um lækn­is­að­stoð í gæslu­varð­haldi, sem bar­áttu­fólk fyrir rétt­indum fanga sögðu að jafn­gilti pynt­ingum. Að sögn mann­réttinda­ráðs Kreml­verja var hann illa bar­inn áður en hann lést.

Sergei Magnit­sky

Árið 2012 sam­þykktu Banda­ríkin Magnit­sky-lögin, sem bein­ast að Rússum sem eru bendl­aðir við rétt­inda­brot, og gefur Banda­ríkj­unum kleift að bregð­ast við með vega­bréfs­á­rit­un­ar­banni og fryst­ingu eigna og önnur vest­ræn lönd hafa fylgt í kjöl­farið. Í júlí 2013 fann rúss­neskur dóm­stóll Magnit­sky sekan um skatt­svik í for­dæma­lausum rétt­ar­höldum, sem haldin voru eftir dauða Magnit­sky.

Natalya Estem­irova

16. júlí 2009:

Lík hins virta mann­rétt­inda­fröm­uðar, Natalyu Estem­irovu, finnst í Ingú­setíu, með skotsár á höfði og brjósti, nokkrum klukku­stundum eftir að henni var rænt nálægt heim­ili hennar í höf­uð­borg Tsjet­sjníu, Grosní.

Natalya Estem­irova

Natalya Estem­irova hafði verið að rann­saka hund­ruð grun­aðra rétt­inda­brota í Tsjet­sjníu, þar á meðal mann­rán og morð. Rétt­inda­hóp­ur­inn sem hún starf­aði fyrir, Memorial, sagði að fyrstu rann­sóknir bentu á hugs­an­lega aðkomu lög­reglu­manna á staðnum.

Yfir­maður Memorial, Oleg Orlov, var síðar kærður fyrir meið­yrði eftir að hafa sakað Ramzan Kadyrov, leið­toga Tsjetsjena, sem studdur er af Kreml, um að hafa skipu­lagt morðið á Estem­irovu, en var að lokum sýkn­aður.

Alexander Litvinenko

23. nóv­em­ber 2006: Fyrrum örygg­is­full­trúi í Rúss­landi, Alex­ander Lit­vinenko deyr í Lundúnum eftir að eitrað var fyrir honum með geisla­virku pól­oni-210. Lit­vinenko hafði flúið til Bret­lands árið 2000 eftir að hafa sakað FSB (leyni­þjón­ustu Rúss­lands) um að hafa lagt á ráðin um að drepa ólíg­ar­k­inn Boris Berezovsky. Hann var síðar með­höf­undur bókar þar sem hann kenndi stofn­un­inni um sprengju­til­ræðin í íbúð­ar­hús­næð­unum árið 1999.

Alex­ander Lit­vinenko

Breska rann­sóknin leiddi í ljós að Lit­vinenko hafi drukkið te blönd­uðu pól­on­íum á fundi á hót­eli í Lundúnum, nokkrum vikum áður með Rússunum Andrei Lugovoi og Dmitry Kovtun. Yfirvöld í Moskvu neit­aði að fram­selja menn­ina til Bret­lands. Árið 2017 settu Banda­ríkin báða menn­ina á svartan lista undir Magnit­sky-lög­unum.

Anna Politkovskaya

7. októ­ber 2006:

Einn þekkt­asti blaða­maður Rúss­lands og reglu­legur pistla­höf­undur um rétt­inda­brot í Tsjet­sjníu, Anna Polit­kovskaya, er skotin til bana í íbúð sinni, í aftöku­stíl.

Anna Polit­kovskaya

Tveir karl­menn voru dæmdir í lífs­tíð­ar­fang­elsi og þrír aðrir í langa fang­els­is­vist árið 2014, fyrir aðild sína, en ætt­ingja, sam­starfs­menn og vest­ræn stjórn­völd gruna að rúss­nesk yfir­völd muni aldrei benda á eða refsa höf­uð­paurum morðs­ins vegna þess að ítar­leg rann­sókn myndi tengja rík­is­stjórn Pútíns við morðið, eða til leið­toga í Tjetsníu, sem hafa tengls við Kreml.

Sergei Yushenkov

17. apríl 2003:

Sergei Yus­hen­kov, reyndur stjórn­mála­maður og leið­togi flokks­ins Frjáls­lynda Rúss­lands, sem er í and­stöðu við ráð­andi yfir­völd, var skot­inn til bana fyrir framan heim­ili sitt í Moskvu.

Sergei Yus­hen­kov

Yus­hen­kov hafði verið í far­ar­broddi í við­leitni frjáls­lyndra þing­manna um að rann­saka meinta þátt­töku leyni­þjón­ust­unnar (FSB) í röð mann­skæðra sprengju­árása á borg­ara­legar íbúðir árið 1999. Sprengju­árás­irnar, sem kost­uðu um 300 manns lífið, voru sagðar hafa verið fram­kvæmdar af tsjetsjenska víga­mönnum og voru not­aðar sem ástæður til að hefja síð­ara Tsjetsjen­í­u­stríðið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Heimur

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Heimur

Átta ára drengur skot­inn til bana

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Heimur

Dóm­ara­deilan sýður upp úr í Póllandi

Heimur

Fá borgað fyrir að ganga með vél­hunda um San Francisco

Heimur

Dul­ar­fullt ákall á net­inu vekur ótta við óeirðir á Tenerife