Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Víða byggt á sprungum á höfuðborgarsvæðinu – Ný hverfi á sprungusvæðum

Víða byggt á sprungum á höfuðborgarsvæðinu – Ný hverfi á sprungusvæðum

Í Grinda­vík er nú unnið hörðum höndum að því að kort­leggja og ná utan um stærð og umfang sprungna á svæð­inu. Jarð­hrær­ingar á Reykja­nesi og staðan í Grinda­vík hafa fengið marga íbúa höf­uð­borg­ar­svæð­ins til að velta fyrir sér hvort við­líka ham­farir geti raun­gerst innan borg­ar­markanna. Í nóv­em­ber 2018 birt­ist greinin, Berg­sprungur og bygg­ingar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, í Verk­tækni – Tímariti Verk­fræð­inga­fé­lags Íslands í henni segir:

„Því er stundum haldið fram að „það séu sprungur alls staðar á Íslandi og því engin leið að byggja nema undir sé sprunga“. Þetta er rangt. Vissu­lega eru berg­sprungur algengar á Íslandi, en þær skipa sér oft­ast í ákveðin kerfi sem hægt er að kort­leggja, sjá mynd 1. Sprungur sem eru lík­legar til að hagg­ast á næstu öldum, er flestar tengdar fleka­skil­unum sem liggja í gegnum landið.“

Höfundar vís­inda­grein­ar­innar Dr. Páll Ein­ars­son, pró­fessor, Dr. Haukur Jóhann­es­son og Dr. Ásta Rut Hjart­ar­dóttir, hafa öll á sínum ferli verið kall­aðir til ráð­gjafar við mann­virkja­gerð þar sem berg­sprungur koma við sögu.

Bergsprungur og byggingar á höfuðborgarsvæðinu

Myndin er úr grein­inni Berg­sprungur og bygg­ingar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu.

Austasti hluti höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins liggur innan sprungu­sveims Krýsu­víkur.

„Á sein­ustu ára­tugum hefur byggð og mann­virkja­gerð færst lengra inn á svæði þar sem virkar berg­sprungur eru algengar. Þetta á sér­stak­lega við um höf­uð­borg­ar­svæðið en önnur þétt­býl­is­svæði má einnig nefna, t.d. Húsavík, Kópasker, Selfoss og Grinda­vík. Í umfjöllun fram­kvæmda­að­ila um sprung­urnar og þau atriði sem var­ast ber gætir stundum nokk­urrar óná­kvæmni og stundum vantar á að þeir sem um málið fjalla hafi fylgst með breyttum hug­myndum og auknum skiln­ingi sem feng­ist hefur með rann­sóknum hin síð­ari ár,“ segir í grein­inni.

Á næstu mynd má ber­sýni­lega sjá hvernig ný hverfi hafa risið á þekktum sprungu­svæðum á höf­uð­borg­ar­svæð­inu.

Afstaða þétt­býlis við sprung­urnar. Mynd/ skjá­skot úr grein­inni Berg­sprungur og bygg­ingar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu

Víða byggt á þekktum sprungusvæðum

Eins og sjá má á kort­inu hefur víða verið byggt á þekktum sprungu­svæðum. Ber þar að nefna við Urriða­kots­vatn, Elliða­vatn, Norð­linga­holt og við Rauða­vatn.

„Á bygg­inga­svæð­inu við Urriða­kots­vatn hafa komið í ljós opnar sprungur þegar grafið var fyrir hús­grunnum. Mjög dregur af þess­ari grein sveims­ins þegar norðar dregur. Þó má
lík­lega rekja til hans til­vist sprungna sem komið hafa í ljós í hús­grunnum í Hóla­hverfi í Breið­holti. Meg­in­grein sprungu­sveims­ins heldur áfram til NA um Heiðmörk og liggur Elliða­vatn í dæld­inni þar sem sigið hefur mest. Aust­ur­mörk sprungu­svæð­is­ins eru þar
nokkuð óljós vegna ungra hrauna sem runnið hafa austan frá Blá­fjalla­svæð­inu og yfir sprung­urnar,“ skrifa greina­höf­undar.

Flokkun sprungna á virku svæði

„Það er sjálf­sögð var­úð­ar­að­gerð að byggja mann­virki ein­ungis á óbrotnum spildum milli sprungna. Með því má koma í veg fyrir slys og draga úr tjóni í nátt­úru­ham­förum fram­tíð­ar­innar. Kostn­að­ar­aukn­ing er hins vegar óveru­leg. Það er stundum lögð umtals­verð vinna í að flokka þekktar sprungur í „virkar“ og „óvirkar“ sprungur. Aðferðir byggja oft­ast á því að grafa skurði þvert yfir sprung­urnar og athuga jarð­vegs­snið. Þessi flokkun orkar tví­mælis í besta falli,“ segir í grein­inni.

Erfitt er að flokka sprung­urnar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu sem óvirkar á virku hreyfi­kerfi:

„Sprungu­sveimur Krísu­víkur er ótví­rætt virkur enda er hann hluti af aflög­un­ar­svæði meg­in­fleka­skil­anna í gegnum landið. Það er engin leið að flokka ein­stakar sprungur innan sveims­ins sem „óvirkar“ og aðrar sem „virkar“. Þær verða allar að telj­ast virkar í þeim skiln­ingi að þær eru hluti af hreyfi­kerfi sem er sann­an­lega og mæl­an­lega á hreyf­ingu.“

Sprungusvæði ónothæf eða ekki

Vanga­veltur og skoð­anir hafa verið uppi um að sprungu­svæði séu ónot­hæf til bygg­inga og/eða ann­arra nota. Er skoðun greina­höf­unda að:

„Þetta er að okkar mati fjarri lagi. Sprungu­svæðin á höf­uð­borg­ar­svæð­inu og í nágrenni þess eru flest hlutar af sprungu­sveimum eld­stöðv­ar­kerf­anna á Reykja­nesskaga. Þessi sprungu­kerfi eru virk fyrst og fremst í tengslum við kviku­virkni kerf­anna. Miklar færslur á sprungum eru lík­leg­astar þegar gangainn­skot verða innan sveims­ins. Þeim fylgja skjálftar en þeir verða sjaldan stórir.“

Greina­höf­undar segja hætt­una sem stafar af sprung­unum vera aðal­lega vegna sprungu­hreyf­inga. Mann­virki innan sprungu­sveimanna ættu því ekki að verða fyrir meira tjóni en ella nema þau standi á sprung­unum og séu tengd berggrunn­inum báðum megin.

„Við teljum skyn­sam­legt ákvæðið í reglu­gerð að „óheim­ilt sé að byggja á þekktum jarð­sprungum, mis­gengi eða nálægt hverum“. Sprung­urnar og næsta nágrenni þeirra má hins vegar nýta til ann­arra hluta, sem úti­vist­ar­svæði, fyrir lagna­stokka, gang­stíga, bíla­stæði, akbrautir o.s.frv“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi