Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Hönd dauðans yfir Grindavík – Stanslaust niðurrifstal og framtíðin óskrifað blað

Hönd dauðans yfir Grindavík – Stanslaust niðurrifstal og framtíðin óskrifað blað
Fasteign í Grinda­vík Mynd/ Reynir Trausta­son

Þegar komið er inn í Grinda­vík blasa við trosn­aðir fánar Nettó og bens­ín­ris­ans N1. Blakt­andi fánar eru venju­lega vís­bend­ing um að opið sé á við­kom­andi stöðum. En svo er ekki í þessu til­viki. Hér er eng­inn og allt harð­læst. Líklegt er að starfs­fólkið hafi farið í slíku snar­hasti að ekki hafi gef­ist tími til að taka niður flöggin. Bens­ín­dæl­urnar er kirfi­lega læstar og til­kynn­ing um lokun blasir við. Þar sem áður voru bornir fram ham­borg­arar og aðrar kræs­ingar er ekk­ert að ger­ast kyrrðin ein. Hinum megin göt­unnar er sama sagan á veit­inga­staðnum Hjá Höllu. Allt harð­læst. Sæl­ker­a­stað­ur­inn góði er sál­ar­laus og engum til gleði lengur.

Grinda­vík.

Ryðgað steypujárn

Víða í bænum má sjá afgirtar sprungur. Áminning um þann háska sem er ríkj­andi á staðnum. Örfáar hræður eru á ferli í bænum. Starfs­menn hita­veitu eru að basla við að tengja rör til að fyr­ir­byggja frekara tjón. Eldgosið sem kom upp innan varn­ar­garð­anna varð til þess að gló­andi hraunið gleypti hús og stór­skað­aði önnur. Bless­un­ar­lega stöðv­að­ist hraunið áður en það lagði fleiri hús undir sig. Í göt­unni sem hrauntröðin lokar eru hús­grunnar. Ryðgað steypu­járnið stendur upp úr steyp­unni. Þarna er allt til­búið í að reisa veggi en ólík­legt að neitt ger­ist þar næstu árin.

Fjölskylda með hund

Í næsta húsi við þau sem urðu eld­unum að bráð er fjöl­skylda með hund að huga að eigum sínum. Framtíð þeirra er óskrifað blað. Við ökum um auðar göt­urnar. Í sumum húsum er ennþá búslóð en önnur eru tóm. Það er eins og að horfa inn í tómar augn­tóftir. Dap­ur­leik­inn svífur yfir yfir­gefnum hús­unum. Sum­staðar er miði í glugga. Húsið hefur verið yfir­gefið. Önnur skila­boð eru ein­föld og slá­andi. „Farin,“ stendur á einum mið­anum. Húsið er kross­sprungið og ber­sýni­lega ónýtt. Þannig er einnig komið fyrir öðrum húsum.

Grinda­vík 2024.Þorbjörn í bak­sýn.

Einn línubátur

Grinda­vík er eini stað­ur­inn á Reykja­nesi sem hefur staðið af sér kvóta­kerfið. Á meðan líf­vana og tómar hafnir blaða við í Keflavík, Njarðvík, Höfnum og Vogum hefur allt annað verið uppi á ten­ingnum í Grinda­vík.  Stór­fyr­ir­tæki á staðnum hafa blómstrað og höfnin hefur bók­staf­lega iðað af lífi og fjöri. Þar mátti sjá frysti­tog­ara, línu­báta og drag­nót­ar­báta sem báru verð­mætan afla að landi. Nú er aðeins einn bátur í höfn­inni í Grinda­vík. Línu­bátur sem er að landa. Eitt fisk­vinnslu­fyr­ir­tæki heldur úti vinnslu. Eig­and­inn er þrjóskur og vill ekki sætta sig við að stað­ur­inn hans legg­ist í auðn. Bent hefur verið á Bláa lónið sem fyr­ir­mynd. Þar er haldið úti starf­semi þrátt fyrir ógn­irnar í nágrenn­inu. Þessi ábend­ing er rétt­mæt. Menn verða að læra að lifa með ástand­inu.

Afgirtar sprungur í Grinda­vík.

Niðurrifstal

Enginn veit hver fram­tíð Grinda­víkur verður. Augljóst er að mis­tök hafa verið gerð eftir að eld­gosið færð­ust nær bænum í haust og ógn­uðu byggð­inni. Stans­laust nið­ur­rifs­tal hefur orðið til þess að fólk hefur misst móð­inn og vill fara fyrir fullt og allt. Yfirvöld hafa farið offari við að banna fólki að vera á heim­ilum sínum. Öfga­stjórnun. Von­leysið er ríkj­andi. Það vantar þann tón að stað­ur­inn munu rísa upp að nýju. Ísland er eld­fjalla­eyja og víða hætta eld­gosum og jarð­skjálftum. Svo eru það snjó­flóðin, Við höfum lifað og aðlag­ast þessum ósköpum hingað til og eigum að gera það áfram. Grinda­vík í dag getur orðið Hafn­ar­fjörður á morgun.

3000 á vergangi

Við ökum sem leið liggur um bæinn. Sprungu­svæðin hafa verið afgirt og umhverfið er eins öruggt og það getur orðið. Það sváfu 20 manns í bænum í nótt. Rúmlega 3000 manns á eins­konar ver­gangi með bráða­birgða­bú­setu hér og þar. Það ástand er óboð­legt, Sumir hlutar bæj­ar­ins virð­ast vera nokkuð öruggir til búsetu en öllum var gert að yfir­gefa bæinn. Eðlilega þarf að fara rólega í að flytja í bæinn aftur. Fram­vinda jarð­eld­anna á Reykja­nesi þarf að skýr­ast. Þessa dag­ana er staðan ein­fald­lega sú að beðið er eftir eld­gosi.

Fram­tíðin verður von­andi sú að Grinda­vík nái vopnum sínum og byggð­ar­lagið verði blóm­legt á ný. En það eru vissu­lega blikur á lofti. Óvissan er nán­ast algjör og það ræðst af við­brögðum dyntóttrar nátt­úru og mis­vit­urra manna hvernig fer.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi