Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Reyndu vopnað rán í söluturni Þuríðar: „Ég læt ekkert vaða yfir mig, það gengur ekki“

Reyndu vopnað rán í söluturni Þuríðar: „Ég læt ekkert vaða yfir mig, það gengur ekki“
Þuríður Vil­helms­dóttir Mynd: Trausti Hafsteinsson

Þuríður Vil­helms­dóttir eig­andi sölu­turnar á Njáls­götu 1 var heppin að hafa sett við­vör­un­ar­kerfi upp stuttu fyrir laug­ar­dags­vakt sem hún átti í nóv­em­ber 1993.

Um klukkan 18:00 eitt laug­ar­dags­kvöld í nóv­em­ber árið 1993, komu tveir ungir menn inn í sjoppu sem Þuríður Vil­helms­dóttir rak og starf­aði í. Annar þeirra vaktaði dyrnar á meðan hinn beindi skamm­byssu að Þuríði og skip­aði henni að afhenda sér pen­inga úr afgreiðslu­kass­anum. Þuríður, sem var ekki vön að láta vaða yfir sig, kom mönn­unum á óvart og harð­neit­aði að afhenda pen­ing­inn. Og ekki nóg með það heldur ýtti hún umsvifa­laust á við­vör­un­ar­bjöll­una sem hún var nýbúin að setja upp og kall­aði þannig á lög­regl­una. Menn­irnir voru fljótir að láta sig hverfa. Eftir á við­ur­kenndi hörku­tólið Þuríður að hún hafi orðið hrædd, enda var byssu­hlaupi beint að henni.

DV fjall­aði um málið á sínum tíma en hér má sjá þá umfjöllun:

Ræn­ingjar með vopn í hendi í sjoppu við Njáls­götu:



Þetta er vopnað rán og komdu með pen­ing­ana

Það komu tveir strákar inn, stórir slánar, á aldr­inum sextán til átján ára. Þeir otuðu að mér byssu og sögðu: „Þetta er vopnað rán og komdu með pen­ing­ana.“ Ég var ekk­ert á því og sagði „Látið ekki svona.“ í því var annar kom­inn að kass­anum og ég ýtti á bjöll­una. Kerfið fór umsvifa­laust í gang og þeir hlupu út,“ segir Þuríður Vil­helms­dóttir, en hún varð fyrir þeirri óhugna­legu reynslu að tveir ungir menn ógn­uðu henni með skamm­byssu og reyndu að ræna sölu­turn­inn að Njáls­götu 1 rétt fyrir klukkan 18.00 á laug­ar­dag. Þuríður er eig­andi sjopp­unnar og setti við­vör­un­ar­kerfið upp fyrir nokkrum árum. Það er bein­tengt við Securitas og síðan við lög­reglu. Hún hefur aldrei þurft að nota bjöll­una fyrr en hún telur það mikið örygg­is­at­riði. Hún hefur rekið sjopp­una í tæp sex ár og aldrei orðið fyrir neinu slíku fyrr. „Ég var óskap­lega hrædd, ég verð að við­ur­kenna það. Ég hef aldrei séð þessa stráka áður hérna, ekki svo ég muni. Þetta er svaka­legt að horfa framan í byssu­hlaup.“ Þuríður var ein að vinna þegar atburð­ur­inn átti sér stað. Hún seg­ist ekki hafa tekið eftir þeim sem gerði sig lík­legan að ræna kass­ann en gat gefið grein­ar­góða lýs­ingu á þeim sem vaktaði dyrnar. „Hann var í jogg­ingjakka, með hettu og reimað fyrir. Eg veit að hann er dökk­hærður því að hár­brodd­arn­ir­stóðu út úr hett­unni.“ Þuríður hélt áfram vinnu sinni fram á kvöld eftir atburöinn en systir hennar og synir komu til hennar. „Senni­lega eru það fyrstu við­brögð sem réðu því að ég hringdi bjöll­unni án þess að hugsa mig um. Ég læt ekk­ert vaða yfir mig, það gengur ekki,“ sagði Þuríður við DV í gær, en hún var við vinnu eins og ekk­ert hefði í skorist.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi