Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Söfnunarfé ætlað veiku barni endaði í höndum föður: „Ég skammast mín líka gagnvart ykkur“

Söfnunarfé ætlað veiku barni endaði í höndum föður: „Ég skammast mín líka gagnvart ykkur“
Líf Steinunn útskýrir afdrif söfn­un­ar­fés sem ætlað var lang­veiku barni hennar.

„Söfn­un­ar­féð var víst handa pabb­anum en ekki börn­unum,“ ritar Líf Steinunn Lár­us­dóttir í færslu á sam­fé­lags­miðl­inum Facebook. Þar rekur hún raunir sínar eftir skilnað við barns­föður sinn og afdrif þess söfn­un­ar­fjár sem til­kom frá þjóð­inni vegna veik­inda barna hennar, árið 2021.

„Ég vil byrja á að þakka öllu þessu dásam­lega fólki sem tók þátt í söfnun vegna veik­inda barn­anna minna. Á þeim tíma vissi ég ekki hvað þessir pen­ingar áttu eftir að koma í góðar þarfir. Sonur minn var í lífs­hættu og þegar dóttirin veikt­ist líka var mér allri lokið. Hlýjan sem þið sýnduð með fjár­fram­lögum ykkar skipti meira máli en pen­ing­arnir og ég hugs­aði stundum hvort þetta væri ekki orðið gott. Eitthvað sagði mér samt að við myndum þurfa á neyð­ar­sjóði að halda og það rætt­ist því miður,“ segir Líf Steinunn.

Hún seg­ist hafa orðið fyrir hræði­legum von­brigðum með rétt­ar­kerfið á Íslandi og sitji eftir með særða rétt­læt­is­kennd:

„Ég hef barist við reið­ina og skömm­ina. Ég bauð börn­unum upp á óþol­andi ástand allt of lengi og ég skamm­ast mín líka gagn­vart ykkur sem hjálp­uðuð okkur því ég tók þátt í blekk­ingu. Við vorum ekki þessir sam­hentu for­eldrar sem þið sáuð í blöð­unum heldur var ástandið á heim­il­inu væg­ast sagt slæmt.“

Árið 2021 hófst söfnun fyrir fjöl­skyld­una vegna veik­inda sonar hennar sem háði bar­áttu við ill­vígt krabba­mein:

„Ég tók líka þátt í því að láta líta út eins og barns­faðir minn hefði misst tekjur út af veik­indum drengs­ins. Sann­leik­ur­inn er sá að hann var heldur ekki í fastri vinnu áður en barnið fædd­ist og tekjur hans í 14 ára sam­búð okkar voru minna en 11 millj­ónir sam­an­lagt. For­eldrar hans hjálp­uðu til en við lifðum aðal­lega á mínum tekjum. Það er vel þekkt að þolendur ofbeldis taka þátt í lyg­inni en ég finn enn fyrir skömm yfir því.“

Keypti íbúð fyrir söfnunarféð

Líf Steinunn seg­ist hafa verið brotin á sál og barin á lík­ama þegar hún flúði heim­ili sitt rétt fyrir jól árið 2021:

„Ég hafði ætlað að þrauka jólin en á einum tíma­punkti varð ég nógu hrædd til þess að gera það rétta. Ég gat ekki farið með krabba­meins­sjúkt barn í Kvenna­at­hvarfið og hafði í raun engan stað að fara á. Ég hrakt­ist með börnin milli leigu­í­búða í nokkra mán­uði og þrátt fyrir ótt­ann um líf sonar míns fann ég fyrir létti yfir því að geta ein­beitt mér að honum.“

Hún segir það ekki hafa verið börn­unum boð­legt að vera á ver­gangi enda­laust og sonur hennar hafi þurft að fara í stóra og hættu­lega aðgerð erlendis.

„ … þá tók ég söfn­un­ar­féð og keypti litla íbúð svo við hefðum stað til að fara á þegar við kæmum heim. Það hefði eig­in­lega verið fárán­legt að vera með tvö börn í stof­unni hjá pabba með 30 millj­ónir á banka­reikn­ingi,“ útskýrir Líf Steinunn.

Barns­faðir hennar tók því illa og vildi fá helm­ing sjóðs­ins:
„Hann var með íbúð­ina sem við áttum saman og allt inn­búið. Hann neit­aði að afhenda mér leik­föng barn­anna hvað þá meira og skipti um skrá svo ég kæm­ist ekki inn. Ég neydd­ist til að kaupa hús­gögn og helstu heim­il­is­tæki þótt við ættum nóg til þess að kom­ast langt með að fylla tvö heim­ili.“

Líf Steinunn krafð­ist opin­berra skipta. Við tóku dóms­mál, bæði um eignir og for­sjá.

Forsjármálið

„Hjá íslenskum dóm­urum gildir sú regla að þegar pabbi lemur mömmu er best að börnin séu sem mest hjá pabb­anum hvort sem þau vilja það eða ekki. Nið­ur­staða for­sjár­hæfni­mats var að þrátt fyrir áverka­vott­orð og sögu um afskipti barna­verndar, væri ekk­ert að for­sjár­hæfni manns­ins,“ segir Líf Steinunn.

„Vanda­málið var ekki hegðun hans heldur það að börnin vissu hvað hafði gengið á. Auðvitað var það mér að kenna. Þau hefðu aldrei kom­ist að því bara með því að hlusta á hót­an­irnar og öskrin sem nágrann­arnir heyrðu nógu vel til að lýsa því fyrir lög­reglu. For­sjár­málið end­aði með dómsátt.“

„Hann fékk gjaf­sókn af því að hann var svo fátækur. Ég bar minn kostnað sjálf af því ég hafði alltaf haft tekjur. Ég varð líka að gefa eftir með­lags­greiðslur aftur í tím­ann svo hægt væri að ljúka mál­inu. Hann fékk þannig eitt og hálft ár af fram­færslu barn­anna frítt til við­bótar við þessi 14 ár sem ég sá fyrir heim­il­inu.

Opinber skipti

Söfn­un­ar­féð hafði verið lagt inn á banka­reikn­ing Lífar Stein­unnar.  Í sam­búð­inni höfðu þau keypt nokkra dýra hluti til heim­il­is­ins fyrir tekjur sem Líf kom með inn á heim­ilið:

„Nú hélt mað­ur­inn því fram að hlut­irnir hefðu verið keyptir fyrir söfn­un­arfé og vildi fá helm­ing­inn af þeim, líka þeim sem voru keyptir áður en söfnun hófst. Svo vildi hann líka fá helm­ing­inn af pen­ing­unum sem hann sagði að væri búið að eyða í þessa muni. Ég sagði að þið sem gáfuð í söfn­un­ina hefðuð viljað styrkja börnin. Maðurinn sagði að söfn­un­inni hefði verið ætlað að bæta upp fyrir hans tekju­leysi.“

Líf Steinunn útskýrir nið­ur­stöðu dóms­ins:

„Dómarinn taldi að söfn­un­ar­féð kæmi börn­unum ekki við og dæmdi honum helm­ing­inn af öllum pen­ingum sem höfðu verið á mínum banka­reikn­ingi þegar ég fór frá honum. Það var ekki bara söfn­un­ar­féð heldur líka launin mín. Ég fékk hins vegar ekk­ert af hans banka­reikn­ingum. Einnig hafði ég á okkar sam­búð­ar­tíma lagt tæpar 15 millj­ónir inn á hans banka­reikn­ing til að borga af íbúð­ar­lán­inu.“

Fyrir Hér­aðs­dómi var Líf Steinunn dæmd til að greiða mann­inum 2,7 millj­ónir í máls­kostnað: „Í Lands­rétti fékk ég ofur­litla leið­rétt­ingu því þar var ég talin eiga rétt á 2,3 millj­ónum af reikn­ingi sem var skráður á hann og ég hafði lagt 5 millj­ónir inn á.“

Börnin missa heimili sitt

„Nið­ur­staðan af þessu öllu er sú að nú þegar mað­ur­inn er búinn að kaupa minn hlut í sam­eig­in­legri íbúð og ég búin að greiða 7 millj­ónir í máls­kostnað við að berj­ast fyrir öryggi barn­anna minna, þá skulda ég honum 9 millj­ónir sem ég verð að borga í síð­asta lagi 1. mars. Ég á ekki 9 millj­ónir og eina leiðin til að borga þetta er að selja íbúð­ina sem ég keypti fyrir pen­ing­ana sem þið gáfuð til að tryggja öryggi barn­anna minna,“ skrifar Líf Steinunn.

Hún seg­ist loks sjá fyrir end­ann á langri og strangri bar­áttu.

„Ég verð lík­lega blönk og í óör­uggu hús­næði í nokkur ár en við stöndum það af okkur, ég og börnin mín, eins og allt annað. Það sem ég vil núna er að fólkið í land­inu viti hvað rétt­ar­kerfið okkar er gallað og að alþing­is­menn setji lög sem skylda dóm­ara til að lesa gögn í málum áður en þeir dæma þau.“

Að end­ingu segir Líf Steinunn:

„Góðu frétt­irnar eru þær að sonur minn er ekki bara á lífi heldur að öllum lík­indum laus við krabba­meinið. [… ] Ásamt heil­brigð­is­starfs­fólki og vinum og ætt­ingjum get þakkað ykkur öllum fyrir það að ég fæ núna að fylgja honum í skól­ann í stað­inn fyrir að fylgja honum til grafar.“

Hún þakkar öll þeim sem studdu hana og börn hennar og biðlar til almenn­ings:

„Ef ein­hver veit um litla íbúð til leigu í 220 Hafn­ar­firði þá von­ast ég til að fá ábend­ingu.“

Hér að neðan má sjá færslu Lífar Stein­unnar í heild:

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi