Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Íslensk stúlka í skóla þar sem vopnaður maður tók börn í gíslingu: „Það byrjuðu margir að gráta“

Íslensk stúlka í skóla þar sem vopnaður maður tók börn í gíslingu: „Það byrjuðu margir að gráta“
Ungt barn borið út úr skól­anum.

Heim­ur­inn stóð á önd­inni 13. maí árið 1993, þegar atvinnu­laus og þung­lyndur tölv­un­ar­fræð­ingur æddi inn í dag­heim­ili í útjaðri Parísar og tók þar börn og fóstrur þeirra í gísl­ingu. Íslensk stúlka stund­aði nám í skól­anum.

Érick Schmitt, var vopn­aður neyð­ar­byssu og sprengju­efni sem hann hafði vafið utan um sig. Fljót­lega eftir að hann réð­ist inn á dag­heim­ilið, sleppti hann 15 börnum en hélt eftir sex börnum, flestum þriggja ára, og kenn­ara þeirra. Krafðist mað­ur­inn 1,2 millj­arða íslenskra króna.

Schmitt

Í fyrri frétt DV af mál­inu þann 14. maí, en þá stóð gísla­takan enn yfir, hljóð­aði eft­ir­far­andi:

Vopnaður maður réðst inn á dag­heim­ili í Frakk­landi:



Sex ung börn enn í gísl­ingu

Hettu­klæddur og vopn­aður maður réðst inn á dag­heim­ili i Neuilly, útborg Parísar, í gær­morgun. Þegar síð­ast frétt­ist, snemma í morgun, hafði mað­ur­inn nýlega sleppt einu barn­inu en hélt ennþá sem gíslum sex börnum, flestum þriggja ára, og fóstr­unni. Áður hafði hann látið laus 14 önnur börn. Lög­reglan hefur umkringt bygg­ing­una, en yfir­völd reyna að semja við mann­inn sem krefst 100 millj­óna franka í lausn­ar­gjald eða tæp­lega 1,2 millj­arða ísl. kr. For­eldrar barn­anna bíða milli vonar og ótta í nágrenn­inu. Að sögn frönsku lög­regl­unnar er mað­ur­inn á fer­tugs­aldri og mjög rólegur. Hann mun hafa til­kynnt að hann væri með sprengi­efni bundið utan á lík­amann, en yfir­völd vita ekki hvort byssa manns­ins eða sprengi­efnið er ekta. Lög­reglan hættir ekki á neitt og ætlar ekki að reyna að beita valdi til að fá mann­inn til að gef­ast upp. Inn­an­rík­is­ráð­herra Frakk­lands, Charles Pasqua, hélt skyndi­fund um málið seint í gær­kvöldi en öll franska þjóðin fylgist nú grannt með atburði þessum. í gær­kvöldi voru sængur og svefn­pokar borin inn á barna­heim­ilið, einnig matur. Að sögn móður eins barns­ins munu börnin hafa sofið í nótt. „Ástandið er mjög rólegt. Börnunum hefur aldrei verið hótað. Samn­inga­við­ræður standa yfir milli byssu­manns­ins og yfir­valda,“ sagði Charles-Noel Hardy, full­trúi stjórn­valda í Neuilly. Frétta­maður hjá TFl sjón­varps­stöð­inni, sem hafði fengið að fara inn á barna­heim­ilið í gær­kvöldi að ósk byssu­manns­ins, sagði að mað­ur­inn hefði virst sér­stak­lega rólegur og að börnin hefðu leikið sér eins og börn á þeirra aldri gera. Fóstran hefði séð til þess að börnin hefðu nóg fyrir stafni.

Á bak­síðu DV kom svo önnur frétt um gísla­tök­una en þar var upp­lýst að íslensk stúlka að nafni Pauline, væri nem­andi við skól­ann. Móðir hennar, Margrét Bene­dikts­dóttir bjó í úthverfi Parísar. Rætt var við systur Paulinu, hina 18 ára Charlotte Laubari, sem sagð­ist hafa heyrt af gísla­tök­unni í útvarp­inu. Systir hennar, hin 11 ára Pauline sagð­ist hafa verið í frí­mín­útum þegar kenn­ar­arnir til­kynntu um ástandið. For­eldrar hennar sóttu hana um leið og þau heyrðu af mál­inu. Gísla­töku­mað­ur­inn var að lokum skot­inn þremur skotum í haus­inn af stuttu færi en hann hafði sofnað og höfðu börnin og kenn­ar­inn komið sér út  en sér­sveit frönsku lög­regl­unnar sögðu mann­inn hafa vaknað og teygt sig í sprengj­urof­ann, því hafi þeir þurft að drepa hann. Engan annan sak­aði.

Hér má lesa frétt DV um tengsl máls­ins við Ísland:

Íslensk stúlka í gísla­töku­skól­anum

— í frí­mín­útum þegar til­kynnt var um mann­rán

„Pabbi hringdi mjög æstur klukkan hefur í gær­morgun og sagð­ist hafa heyrt um það í útvarp­inu að það væri mann­rán í skól­anum hennar Pauline, systur minnar. Móðir mín var þá að versla,“ sagði Charlotte Laubari, 18 ára dóttir Mar­grétar Bene­dikts­dóttur sem búsett er í úthverfi París. Pauline, 11 ára dóttir Mar­grétar, gengur í sama skóla og skóla­dag­heim­ilið er í Neuilly i úthverfi Parísar, þar sem börnum hefur verið haldið í gísl­ingu í á annan sól­ar­hring. Ekki náð­ist í Margréti í morgun en Pauline dóttir hennar sagði að hún hefði verið í frí­mín­útum í gær þegar kenn­ar­arnir til­kynntu börn­unum hvað væri að ger­ast. „Okkur var sagt að halda kyrru fyrir. Það byrj­uðu margir að gráta því börnin vita hvað mann­rán er,“ sagði stúlkan. Charlotte systir hennar sagði að for­eldrar þeirra hefðu farið í skól­ann til að sækja Pauline jafn­skjótt og fréttir bár­ust af gísla­tök­unni. Hún sagði að fyrst þegar móðir hennar fékk fregnir af gísla­tök­unni hefði hún vart trúað hvað væri að ger­ast. Þegar for­eldr­arnir komu að skól­anum setti lög­reglu­lið og fjöl­miðla­fólk svip sinn á nágrenni skól­ans. Eins og gefur að skilja þurfti Pauline ekki að fara í skól­ann í morgun. Þegar síð­ast frétt­ist í morgun hafði hinn vopn­aði maður sem réðst inn á skóla­dag­heim­ili í Neuilly ennþá sex börn í haldi svo og fóstra þeirra.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi