Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Fjallabræður minnast fallins félaga

Fjallabræður minnast fallins félaga
Fjalla­bræður minn­ast Dýra Guð­munds­son.

„Fallinn er frá fyrsti Fjalla­bróð­ir­inn, en oft hefur verið rætt um það á liðnum árum, að óhjá­kvæmi­lega hlyti að stytt­ast í þá stund, er ein­hver okkar tæki á sig ferð­ina í sum­ar­landið,“ segir í færslu frá með­limum Fjalla­bræðra á sam­fé­lags­miðl­inum Facebook. Greint var frá and­láti Dýra Guð­munds­sonar, með­lims Fjalla­bræðra, á dög­unum.

„Dýri Guð­munds­son (1951-2024) var ein­stakt ljúf­menni og lífskúnstner. Alltaf var hann glað­legur, ein­lægur og nota­legur og hafði sér­stak­lega góða nær­veru. Dýri var Hafn­firð­ingur í húð og hár, honum fannst alltaf mjög vænt um sinn gamla heimabæ og sagði gjarnan sögur úr upp­vext­inum þaðan. Hann var lög­giltur end­ur­skoð­andi og starf­aði sem slíkur um langa hríð. Hann var einnig mik­ill íþrótta­maður á yngri árum og spil­aði m.a. fjölda land­s­leikja í fót­bolta. Músíkin átti einnig hug hans allan og hann lék m.a. á gítar og bassa og þau hjónin Hildur og hann urðu umtöluð og þekkt fyrir árlega mús­ík­veislu og gleð­skap sem þau slógu upp í garð­inum hjá sér við Lind­ar­braut­ina …“ segir í minn­ing­ar­orðum Fjalla­bræðra og að hann hafi ver­ið­samfé list­hneigður mjög.

„Dýri var dug­legur að spila og syngja fyrir eldri borg­ara á Sel­tjarn­ar­nesi og spil­aði einnig reglu­lega fyrir sund­gesti í Sel­tjarn­ar­neslaug síð­ustu árin sem hann bjó á Nesinu. Dýri var einnig list­hneigður með öðrum hætti, hann mál­aði og hafði sér­stak­lega gaman af því að mála „sýnd­ar­málun“ sem blekkir augað og húsið þeirra við Lind­ar­braut skart­aði slíku skrauti.“

„Eftir að sjúk­dómur Dýra fór að gera vart við sig, heim­sótti hann nágranna sína og vini oft, stundum nokkrum sinnum sama dag­inn. Hann stopp­aði stutt í hvert sinn, en alltaf var hann glaður, með jákvæð skila­boð eða fréttir og tal­aði þá gjarnan um Fjalla­bræður og hvað hann væri ánægður með þann félags­skap,“ rita Fjalla­bræður.

„Eftir að þau hjónin Hildur og hann fluttu á dval­ar­heim­ilið í Hafn­ar­firði fórum við bræð­urnir og skemmtum heim­il­is­mönnum og starfs­fólk­inu þar. Það var ógleym­an­legt kvöld, sann­ar­lega súr-sæt minn­ing, en það var mikið áfall að frétta að Hildur væri líka að glíma við Alzheimers sjúk­dóm­inn. Dýri kom og stillti sér upp með hópnum með gít­ar­inn og naut sín vel, en það var sárt að sjá hve honum hafði farið aftur frá því við hitt­umst síð­ast. Nú er hann laus undan allri áþján, kom­inn á hinar enda­lausu veiði­lendur, þar sem engin tak­mörk eru fyrir hvers­konar list­sköpun, vellíðan og leik­ara­skap.“

„Við kveðjum þennan vin og bróðir okkar með hjartað fullt af þakk­læti fyrir þann tíma og stundir sem við áttum saman,“ er skrifað að end­ingu.

Hér að neðan má sjá færslu Fjalla­bræðra í heild:

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi