Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Köttur svæfður eftir að brot úr byssukúlu fannst í honum: „Elsku fallegi strákurinn okkar“

Köttur svæfður eftir að brot úr byssukúlu fannst í honum: „Elsku fallegi strákurinn okkar“
Kött­ur­inn Garðar Mynd: Facebook

„Því miður er ekki alltaf góður endir á málum sem við förum í og langar mér að segja frá einni nýlegri sorg­ar­sögu. En það er sagan hans Garðars.“ Þannig hefst færsla sem með­limur í sjálf­boða­sam­tök­unum Villi­kettir Reykja­ness og nágrenni, birti í Facebook-hópnum Katta­vaktin.

Sagan byrj­aði þannig að sjálf­boða­sam­tökin fengu ábend­ingu um haltan kött í júní 2023 en í byrjun júlí náð­ist hann í búr. „Hann virt­ist þá vera alveg snældu­vit­laus, hvæsti bara og urraði á okkur og vorum við ekki viss um tíma hvort um væri að ræða vill­ing eða ver­gang­skisa,“ segir í færsl­unni. Dýra­læknir kíkti á kött­inn en taldi mögu­legt að hann væri með smá gigt sem versn­aði í kulda. Eftir að hann fór í geld­ingu mán­uði seinna fór hann að sýna á sér betri hlið „og á end­anum brotn­aði þessi skel sem hann var búinn að setja upp og úr henni kom þessi svaka kúru­bangsi sem bræddi alla.“

Um tíma haltr­aði kött­ur­inn ekk­ert en fór svo að bera á skrít­inni hegðun. „Hann virt­ist ekk­ert haltur eða neitt um tíma en fór svo að naga á sér fót­inn og sína svona pínu skrítna hegðun og var ein­hver grunur um að mögu­lega væri hann með eitt­hvað ofnæmi og væri sem­sagt að naga sig því honum klæj­aði.“

Sjálf­boða­liði fann svo fyrir ein­hverju hörðu undir húð­inni á kett­inum og var dýra­læknir feng­inn til að fjar­lægja „eitt­hvað stykki“ undan húð­inni á honum. „Fékk hann svo alls­konar lyf með sér heim (sýkla og verkja­lyf). Þegar sjálf­boða­liðar fara að skoða þetta stykki betur þá vakn­aði grunur um að þetta væri partur af byssu­kúlu og eftir örstutt googl fannst mynd af kúlu þar sem partur af henni leit nákvæm­lega eins út og þetta stykki sem var tekið úr honum.“

Röntgen mynd af sár­inu.

Eftir þetta fór kött­ur­inn á fóst­ur­heim­ili til að byrja með svo hægt væri að hafa meira eft­ir­lit með honum varð­andi lyfja­gjafir og fleira en svo fékk hann á end­anum fram­tíð­ar­heim­ili. En svo fór heilsan versn­andi. „En nú fyrir stuttu byrj­aði hann að haltra, slapp­ast upp og vildi alls ekki vera einn. Þá var farið með hann á aðra dýra­lækna­stofu sem skoð­aði hann og sendi í röntgen, sem hin stofan hafði ekki gert og kom þá í ljós að “öxlin” á honum hefur stór­skadd­ast af völdum höggsinns af kúl­unni og hefur elsku kall­inn verið alveg sár­kval­inn í allan þennan tíma en kettir eru svo miklir naglar að þeir láta oft seint sjást að þeir séu eitt­hvað veikir. Þarna var tvennt sem kom mögu­lega til greina og það var að skoða hvort hann þyldi aðgerð þar sem fót­ur­inn yrði tek­inn af eða yrði svæfður. Var svo farið á enn eina stof­una og fengið annað álit þar sem sér­fræð­ingur í beinum er og skoðað betur hvort hann væri í standi fyrir svona stóra aðgerð en því miður var hann orð­inn of slappur og var því ekk­ert annað í stöð­unni en að hann fengi svefn­inn langa“

Að lokum hvetur með­limur sjálf­boða­sam­tak­anna fólk til þess að til­kynna um ofbeldi gegn köttum.

„Elsku fal­legi strák­ur­inn okkar sem átti svo allt það besta skilið en ein­hver illa inn­rættur ein­stak­lingur rústaði lífi hans með því að skjóta hann.Þetta er ekki í fyrsta skipti sem við fáum í hend­urnar kött ( af svip­uðu svæði) sem finn­ast byssu­kúlur / högl í og viljum við vekja athygli á þessu. Það er ekki lög­legt að skjóta ketti og vil ég biðja ykkur sem vitið til ein­hvers sem gerir svo­leiðis að til­kynna það til lög­reglu!“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi