Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Óskar fór af einu hörmungarsvæði á annað í Bandaríkjunum: „Versta reynsla sem ég hef orðið fyrir“

Óskar fór af einu hörmungarsvæði á annað í Bandaríkjunum: „Versta reynsla sem ég hef orðið fyrir“
Jarð­skjálft­inn í Los Angeles 1994 olli gríð­ar­legum skemmdum.

Óskar Magn­ús­son gat varla beðið eftir að kom­ast aftur heim til Íslands í jan­úar 1994 en hann hafði þá verið í ferð í Banda­ríkj­unum.

Þáver­andi for­stjóri Hagkaups, Óskar Magn­ús­son lýsti raunum sínum í við­tali við DV þann 21. jan­úar árið 1994. Hafði hann verið í Banda­ríkj­unum þar sem hann lenti væg­ast sagt í hrakn­ingum. Þann 17. jan­úar vakn­aði Óskar upp á hót­eli sínu í Los Angeles, við ægi­legan jarð­sjálfta en skjálft­inn mikli var 6,7 á Richter og skók Los Angeles um klukkan 04:30. Fímmtíu og sjö lét­ust í skjálf­anum og um 9.000 slös­uð­ust. Sem betur fer slapp Óskar vel þó honum hafi verið brugðið. Eftir að Óskar flúði rústir Los Angeles, fór hann til Chicago en þar tók ekki mikið skárra við. Í Chicago var fimb­ul­kuldi, um 20 til 30 gráðu frost en margir urðu úti í kuld­anum og sagði Óskar borg­ina vera hálf lamaða.

Hér fyrir neðan má sjá frétt DV um ólukk­ans ferð for­stjór­ans.

Óskar Magn­ús­son fór af einu hörm­unga­svæði á annað í Banda­ríkj­unum:



Flúði jarð­skjálfta og lenti í helkulda

– „vona að ég lendi aldrei aftur í öðru eins,“ segir Óskar 1 sam­tali við DV

„Ég held að það sé best að koma sér heim með fyrstu ferð,“ sagði Óskar Magn­ús­son, for­stjóri Hagkaups, í sam­tali við DV í gær­kvöldi. Hann er staddur í Chicago þar sem borg­ar­lífið er nán­ast lamað vegna helkulda. Til borg­ar­innar kom Óskar úr rústum Los Angeles eftir skjálft­ann mikla fyrr í vik­unni og hefur því á fáum dögum flúiö afeinu hörm­unga­svæð­inu vestra á annað. „Jarð­skjálft­inn er ein­hver versta reynsla sem ég hef orðið fyrir. Ég vakn­aði upp við lætin, stökk fram úr rúm­inu og tók mér stöðu í dyra­gætt­inni eins og ráð­lagt er. Mér var hins vegar ekki farið að lít­ast á blik­una þegar skjálft­inn virt­ist aldrei ætla að taka enda. Þá sann­færð­ist ég um að þetta væri sá stóri. Hótelið sem ég bjó á er úr timbri og skemmd­ist ekki mikið en allt laus­legt hrundi niður á gólf og allt brotn­aði sem brotnað gat. Hinum megin við göt­una var stein­hús og það fór mjög illa. Ég vona svo sann­ar­lega að ég lendi aldrei í öðru eins. Skjálfta­kipp­irnir heima eru bara smátitr­ingur á við þetta.“ Óskar komst frá Los Angeles á til­settum tíma þrátt fyrir mikla erf­ið­leika í sam­göngum. í Chicago tók ekki betra við því að þar var allt nán­ast lamað vegna kulda. „Ég tók fyrst eftir því á vell­inum í Chicago hvað allt gekk hægt fyrir sig. Tösk­urnar komu ekki fyrr en seint og um síðir. Skýr­ingin á því var að hlað­menni­mir tóku sér frí á fimmtán mín­útna fresti til að hlýja sér. Öll afgreiðsla gekk mjög hægt fyrir sig. Hér er allt í hæga­gangi vegna kulda og þótt nú virð­ist sem eitt­hvað sé að hlýna. Varla nema 20 til 30 stiga frost. Fólk hefur orðið úti, vinna liggur niðri og umferðin sil­ast áfram en ég efast nú samt um að Íslend­ingar létu svona kulda­kast koma sér úr jafn­vægi,“ sagði Óskar. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi