Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Umsátursástand þegar sérsveitin umkringdi verbúð: „Það var bíómyndarstæll á þessu“

Umsátursástand þegar sérsveitin umkringdi verbúð: „Það var bíómyndarstæll á þessu“
Stórsá á ver­búð­inni eftir táragas­sprengju sér­sveit­ar­innar Mynd: Trausti Hafsteinsson

Umsát­urs­á­stand mynd­að­ist á Bíldudal í apríl árið 1991, þegar lög­reglan, ásamt sér­sveit rík­is­lög­reglu­stjóra, umkringdu ver­búð.

Lög­reglan á Pat­reks­firði reyndi, ásamt sér­sveit rík­is­lög­reglu­stjóra, reyndi í fjóra klukku­tíma að sann­færa 26 ára mann frá Höf­uð­borg­ar­svæð­inu, sem hafði unnið í fiski á Bildudal í um mánuð, um að leggja frá sér hlaðna hagla­byssu og riffil sem hann var vopn­aður, inni í verbú á Bíldudal. Að lokum neydd­ist sér­sveitin að leggj­ast til atlögu en ekki tókst betur en svo í byrjun, en að táragas­sprengju sem fleygja átti í gegnum rúðu á hús­inu, lenti fyrir utan húsið og sprakk fyrir utan. Vitni að atgang­inum lýsti honum sem svo að þetta hafi verið eins og „Ram­bó­mynd“. Að lokum rudd­ist sér­sveitin inn í húsið og yfir­bug­aði mann­inn. Var hann fluttur til Reykja­víkur til yfir­heyrslu.

Frétt um málið birt­ist í DV á sínum tíma en hér má lesa hana:

Umsát­urs­á­stand á Bíldudal þegar lög­reglan umkringdi ver­búð:



„Var eins og í Ram­bó­mynd“

– rúður brotnar og kúlna­göt á hús­inu, sagði Rúnar Gunn­ars­son, einn áhorf­enda

„Ég varð fyrst var við ástandið um klukkan átta þegar ég var að fara í vinn­una. Þá var lög­reglan að vísa öllum í burtu. Skömmu síðar kom vík­inga­sveitin og fór að raða sér í kringum húsið. Lög­reglu­menn­irnir köll­uðu á mann­inn í gegnum gjall­ar­hom – báðu hann um að leggja vopnin frá sér og koma út en án árang­urs. Það var svo klukkan hálf ell­efu sem hlut­irnir fóm að ger­ast og lætin byrj­uðu,“ sagði Rúnar Gunn­ars­son, versl­un­ar­maður í Edinborg í Bíldudal, í sam­tali við DV í gær. Rúnar fylgd­ist með umsát­urs­á­stand­inu þegar sér­sveit lög­regl­unnar í Reykja­vík reyndi að fá 26 ára karl­mann frá höf­uð­borg­ar­svæð­inu til að leggja frá sér hagla­byssu og riffil sem hann hafði undir höndum í ver­búð að Dalbraut 32 í Bíldudal í gær­morgun. Maðurinn, sem hafði verið í fisk­vinnu í Bíldudal í um einn mánuð, átti ekki vopnin. Þau voru í eigu ann­ars manns sem ekki var í hús­inu, að sögn heima­manna. Maðurinn var fluttur til Reykja­víkur og er nú í haldi hjá Rann­sókn­ar­lög­reglu rík­is­ins. Óvíst var í morgun hvort hann yrði settur í gæslu­varð­hald og lát­inn sæta geð­rann­sókn.

Hleypti ekki af skotum

Sjón­ar­vottar sem DV ræddi við í gær telja að mað­ur­inn hafi hleypt af skotum. Lög­reglan á Pat­reks­firði segir hins vegar að það sé mis­skiln­ingur enda hafi það komið í ljós þegar vopnin voru skoðuð á eftir. Þau voru þó hlaðin og var þeim á tíma­bili beint að lög­reglu­mönnum fyrir utan. Lög­reglan ræddi við mann­inn meira og minna í fjórar klukku­stundir í síma á meðan vík­inga­sveit­ar­menn voru á leið vestur og þegar þeir voru búnir að stilla sér upp fyrir utan ver­búð­ina við Dalbraut 32. „Vík­inga­sveit­ar­menn voru við hús­gafl­inn. Síðan heyrð­ist hljóð eins og í hagla­byssu og það heyrð­ist líka riffil­hljóð,“ sagði Rúnar. „Það var bíó­mynd­ar­stæll á þessu. Maðurinn var inni með ein­hleypu og átján skota riffil. Vík­inga­sveit­ar­menn­irnir reyndu að skjóta inn táragas­sprengju og rúður brotn­uðu í hús­inu. Fyrst tókst það þó ekki hjá þeim. Þeir hittu ekki á glugg­ann, sprengjan lenti fyrir utan og mik­ill reykur bloss­aði upp,“ sagði Rúnar.

Skutu upp að glugganum

„Okkur sýnd­ist mað­ur­inn skjóta út í gegnum glerið. Þetta var orðið virki­lega spenn­andi og stóð yfir í nokkrar mín­útur. Það voru tveir vík­inga­sveit­ar­menn alveg við hús­gafl­inn en mað­ur­inn var í glugg­anum fyrir ofan þá. Þegar skotið kom tóku vík­inga­sveit­ar­menn­irnir við sér og hlupu niður fyrir húsið. Við sáum þá beina byss­unum upp. Síðan skutu þeir upp að glugg­unum. Eftir smá tíma kom svaka­leg spreng­ing fyrir utan húsið og mik­ill blossi – það var svo mik­ill hávaði að það berg­mál­aði á milli fjall­anna. Eftir þetta rudd­ust vík­inga­sveit­ar­menn­irnir inn. Þeir fóru upp tröppur á annarri hæð­inni með gas­grímur á sér og með skjöld fyrir framan sig. Þetta var eins og í Ram­bó­mynd. Svo komu þeir með mann­inn út. Þetta voru mikil læti,“ sagði Rúnar. Hann sagði jafn­framt að nán­ast allar rúður væru að ein­hverju leyti brotnar í hús­inu, kúlna­göt voru í gluggum, körmum og á úti­hurð. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi