Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Júlíus sá tvö skrímsli í Kleifarvatni: „Ég hef verið að reyna að kryfja þetta til mergjar“

Júlíus sá tvö skrímsli í Kleifarvatni: „Ég hef verið að reyna að kryfja þetta til mergjar“
Júlíus telur sig hafa séð skrímsli í Kleif­ar­vatni – Myndin teng­ist frétt­inni ekki beint

Rjúpna­skyttur töldu sig sjá skrímsli árið 1984.

Júlíus Ásgeirs­son varð vitni að ótrú­legri sjón við Kleif­ar­vatn árið 1984 en hann var þar á rjúpna­veiðum með frænda sínum. Þeir höfðu komið sér fyrir í hlíð austan við vatnið þegar þeir komu augu á eitt­hvað sér­kenni­legt í vatn­inu. Þeir héldu fyrst að um væri ræða steina sem stóð upp úr vatn­inu.

„En svo fór þetta að hreyfast,“ sagði Júlíus við Dag­blaðið um málið. „Þá sáum við að þarna voru á ferð­inni ein­hverjar skepnur sem léku sér góða stund í vatns­borð­inu. Síðan tóku þær stefn­una á land og skokk­uðu nokkum tíma í fjör­unni. Þá hlupu þær út með hlíð­inni og hurfu bak við höfð­ann. Við höfðum ekki af þeim augun allan tím­ann sem þær voru í sjón­máli. Skömmu síðar komu dýrin svo til baka og skelltu sér í vatnið. Þau léku sér á sundi tölu­vert lengi en syntu svo í land hinum megin. Þá röltu þau upp í Sveiflu­háls og hurfu sjónum okkar.“

Þegar frænd­urnir komu til baka úr rjúpna­veiðum fóru þeir nær vatn­inu til að athuga hvort þeir finndu ein­hver ummerki þess að dýr hefðu verið þar sem þeir sáu skepn­urnar.

„Við fundum þá spor eftir tvö kvik­indi,“ sagði Júlíus. „Þau voru lík förum eftir hests­hófa en bara stærri. Dýrin sjálf virt­ust okkur helst líkj­ast selum þegar þau vora á sundi. En komin upp úr vatn­inu minntu þau einna helst á hunda. Þau vora bara miklu stærri. Okkur virt­ust þau vera eitt­hvað stærri en með­al­hestur. Þau voru dökk á lit. Það kemur ekki til greina að þetta hafi verið hestar sem létu svona í vatn­inu. Hiti var um frost­mark og það er óhugs­andi að hross séu að damla svona við þær aðstæður. Ég hef verið að reyna að kryfja þetta til mergjar en ekki fundið neina við­hlít­andi skýr­ingu á fyr­ir­bær­unum.“ 

„Ég hef nú ekki verið trú­aður á skrímsli en ég geri ekki grín að mönnum sem trúa á þau eftir þetta,“ sagði Júlíus að lokum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Mannlífið

Myndir
Mannlífið

Novasvellið rís á Ing­ólfs­torgi

Jólin nálgast óðfluga
Mannlífið

Opn­un­ar­veisla Bryggju­húss­ins að hefj­ast

Mannlífið

Mæður sem taka sjálfur eiga dætur sem vilja frekar fegr­un­ar­að­gerðir

Mannlífið

Hvers vegna eru börn oft að segja þessa setn­ingu?

Mannlífið

Bæj­ar­há­tíðin Í tún­inu heima stendur með miklum blóma í Mos­fellsbæ

Mannlífið

Bangsa­fé­lagið heldur upp á afmæli með stór­há­tíð og nýrri keppni