Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Starfsmenn Boeing efast um sjálfsvíg uppljóstrarans: „Hann eignaðist nokkuð valdamikla óvini“

Starfsmenn Boeing efast um sjálfsvíg uppljóstrarans: „Hann eignaðist nokkuð valdamikla óvini“
John Barnett Mynd: Trausti Hafsteinsson

Starfs­menn Boeing segja að upp­ljóstr­ar­inn John Barnett hafi „eign­ast valda­mikla óvini“ fyrir hans meinta sjálfs­víg en furðu­legt mis­ræmi í lög­reglu­skýrslu hans hefur komið í ljós.

Upp­ljóstr­ar­inn fannst lát­inn í pall­bíl sínum í Charleston í Suður Karólínu þann 9. mars síð­ast­lið­inn en bílnum var lagt á bílaplani hót­els, sama morgun og hann átti að ljúka einka­fram­burði í mál­sókn gegn þotu­fyr­ir­tæk­inu, sem hann hafði starfað hjá lengst af.

Samkvæmt skýrslu lög­regl­unnar í Charleston, hafði hann fram­lengt dvöl sinni á Holiday Inn til 8. mars og sást í örygg­is­mynda­vélum yfir­gefa hót­elið þann morgun. Þrátt fyrir það stað­festi starfs­fólk hót­els­ins við New York Post, að John hefði borðað kvöld­mat á hót­el­inu um kvöldið. Í lög­reglu­skýrsl­unni kemur einnig fram að öku­skír­teini Johns hafi enn verið á hót­el­her­bergi hans er hann fannst með skotsár á höfði og skamm­byssu í hend­inni dag­inn eftir.

Lögmenn Johns fóru að fá áhyggjur þegar þeir náðu ekki í hann í síma og báðu um vel­ferð­ar­at­hugun. Starfs­fólk hót­els­ins fundu líka Barnett í pall­bílnum og lét lög­regl­una vita. Rannsókn á and­láti hans er enn í rann­sókn.

Starfs­menn Boeing verk­smiðj­unnar þar sem Barnett hafði unnið þar til hann hætti árið 2017, segja að sam­fé­lagið sé í sjokki. Einn starfs­mað­ur­inn, sem ræddi við The New York Post en vildi ekki láta nafn síns getið, sagði að starfs­fólk sé skept­ísk á dán­ar­or­sök Barnetts, sem í fyrstu hefur verið sögð sjálfs­víg. „Í fæ í raun verk í mag­ann vegna þess sem hann hefur verið að segja og hann er dáinn núna. Kannski drap hann sjálfan sig,“ sagði heim­ild­ar­mað­ur­inn. Og hélt áfram: „Ég veit ekki hverju ég á að trúa. Við tölum í raun ekki um þetta við færi­bandið. Það eru mynda­vélar á okkur um leið og við komum inn í bygg­ing­una. Þeir heyra í okkur. Þannig að eng­inn talar um þetta í vinn­unni. Fjöldi fólks er skept­ískt, því hann eign­að­ist nokkuð valda­mikla óvini.“

Annar starfs­maður Boeing ræddi við The New York Post. „Ekkert kemur mér á óvart þegar það snýr að Boeing. Þetta er góð vinna en þú verður að halda þér á mott­unni. Ef þú gerir það ekki, þá vinn­urðu þar ekki lengur.“

Boeing brást ekki beint við fyr­ir­spurn fjöl­mið­ils­ins um efa­semdir starfs­mann­anna en sendi frá sér eft­ir­far­andi yfir­lýs­ingu: „Við erum sorg­mædd yfir and­láti herra Barnett og hugur okkar er með fjöl­skyldu hans og vinum.“

Lög­reglan hefur ekki gefið til kynna að Boeing sé rann­sakað eða sé grunað um brot.

Starfs­fólk Holiday Inn, sem ræddi við The New York Post sagði að Barnett hefði borðað quesadilla, drukkið kók, skrollað í síma sínum og virt­ist fínn, kvöldið áður en hann fanns lát­inn. „Ég hugs­aði ekk­ert um hann fyrr en ég heyrði frétt­irnar dag­inn eftir. Hann virt­ist alls ekk­ert í upp­námi,“ sagði hót­el­starfs­mað­ur­inn.

John Barnett var gæða­stjóri hjá Boeing í meira en þrjá ára­tugi, þar til hann hætti árið 2017. Tveimur árum síðar sagði hann BBC frá því að fyr­ir­tækið auð­veld­aði sér lífið með því að flýta sér að koma 787 Dream­liner þotum sínum úr fram­leiðslu­lín­unni og í notkun. Í fjöldi við­tala lýsti hann því hvernig hann hefði kvartað innan fyr­ir­tæk­is­ins um það sem hann taldi vera alvar­lega galla í örygg­is­málum. Sagði hann að Boeing hefði ekki gert neitt í ábend­ingum sínum, sem hafi neitt hann til þess að koma fram opin­ber­lega þar sem hann krafð­ist nákvæmra rann­sókna. „Við þurfum meiri upp­lýs­ingar um það hvað kom fyrir John,“ sögðu lög­menn hans, Robert Turkewitz og Brian Knowles í yfir­lýs­ingu í gær. „Lög­reglan í Charleston þarf að rann­saka þetta að fullu og af nákvæmni og upp­lýsa almenn­ing. Við sáum engar vís­bend­ingar um að hann myndi taka sitt eigið líf. Enginn trúir þessu. Það þarf að snúa við hverjum ein­asta steini.“

Steve Chancellor, sem skrifað hefur tvær bækur um svið­setta glæpa­vett­vanga og rekur þjálf­unar og ráð­gjafa­fyr­ir­tækið Second Look Training and Forensic Concultic, segir að aðeins um 25 pró­sent þeirra sem fremja sjálfs­víg með byssu, haldi á byss­unum eftir and­lát. „Bara sú stað­reynd að byssan var enn í hendi hans, ég myndi draga athygl­ina að því,“ sagði hann við TNP. Og hélt áfram: „Vegna þess að oft þegar ein­hver er að láta morð líta út eins og sjálfs­víg, gera þeir þau mis­tök að setja byss­una í hönd þess látna.“

Í lög­reglu­skýrsl­unni kemur fram að „hvítur pappír sem lík­ist mjög miða“, hafi fund­ist á vel sýni­legum stað í far­þega­sæt­inu en inni­hald þess hefur ekki verið kunn­gjört.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Heimur

Heimur

Dóm­ara­deilan sýður upp úr í Póllandi

Heimur

Skoska lög­reglan rann­sakar tengsl Andrews við Epstein

Heimur

Fá borgað fyrir að ganga með vél­hunda um San Francisco

Heimur

Dul­ar­fullt ákall á net­inu vekur ótta við óeirðir á Tenerife

Heimur

Átta ára drengur skot­inn til bana

Heimur

Beit lög­reglu­hund í háls­inn eftir þriggja tíma flótta