Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Baltasar Kormákur: „Ógeðslega sárt að vera gerður að einhverju andliti hestaníðs“

Baltasar Kormákur: „Ógeðslega sárt að vera gerður að einhverju andliti hestaníðs“

Baltasar Kormákur er mjög ósáttur við að vera gerður að and­liti hesta­níðs.

Sjá einnig: Spænsku hesta­níð­ing­arnir í þætti Baltasars ekki reknir frá Ing­ólfs­hvoli

Leik­stjór­inn og leik­ar­inn Baltasar Kormákur hefur verið í fréttum um helg­ina vegna með­ferðar spænskra hesta­þjálf­ara sem Baltasar réði til að þjálfa hesta fyrir þætt­ina King and Conqueror, en hann er bæði leik­stjóri fyrsta þátt­ar­ins og aðal­fram­leið­andi. Líkt og fram hefur komið í fréttum rak Baltasar Kormákur hesta­þjálf­ar­ana eftir að hafa séð mynd­skeið sem tekið var af þjálfun­inni en þar þóttu þjálf­ar­arnir beita ansi harka­legum aðferðum við þjálfun­ina. Hesta­sam­fé­lagið logar vegna máls­ins en dýra­læknir sem sá mynd­skeiðið kall­aði með­ferð­ina á hross­unum „mis­þyrm­ingar“ í sam­tali við Mannlíf.

Ósáttur við umfjöllunina

Baltasar Kormákur seg­ist mjög ósáttur við umfjöllun Mannlífs og að vera bendl­aður við hesta­níð enda hafi hann stundað hesta­mennsku í meira en 40 ár. „Ég er búinn að vera í hestum í 40 til 50 ár og það er ógeðs­lega sárt að vera gerður að ein­hverju and­liti hesta­níðs,“ sagði Baltasar í sím­tali við Mannlíf. Segir hann málið byggja að mörgu leyti á „dylgjum“ en að hesta­þjálf­ar­arnir sjö hafi beitt harka­legum reið­að­ferðum. „Þetta er á stórum hluta dylgjur“ sagði Baltasar og að dýra­lækn­ir­inn sem skoð­aði hrossin geti stað­fest það. Segist hann hafa rætt við hesta­þjálf­ar­ana um reglur MAST um með­ferð á hestum hér á landi, eftir að hafa heyrt af því frá stað­ar­hald­ara á Ing­ólfs­hvoli að ekki væri alveg rétt staðið að málum. Á þeim tíma­punkti hafi dýra­læknir verið kall­aður til en gefið jákvæða skýrslu um heilsu hross­anna en gaf þau fyr­ir­mæli að best væri að hvíla þau í nokkra daga. Baltasar seg­ist hafa rætt þá við þjálf­ar­ana. „Ég kall­aði á fund, setti regl­urnar hjá MAST fyrir framan nefið á þeim og ræddi við þá í detaila en maður vissi ekki hvort þetta væri class á menn­ing­ar­heimum, ólíkar aðferðir skil­urðu. Þetta er fólk sem er með feyki­leg með­mæli og feyki­lega reynslu, þó þetta líti illa út, þetta mynd­band, þá er þetta fólk búið að vinna við risa prodúsjónir. Þannig að manni bregður við að heyra svona. Og tók alvar­lega á því.“ Segist Baltasar hafa síðan orðið sleg­inn við að sjá mynd­skeiðið því þjálf­ar­arnir hefðu fengið fyr­ir­mæli um að hvíla hest­ana. Þá þótti hann reið­mennskan vera of harka­lega. Hafi hann því tekið þá ákvörðun að reka þjálf­ar­ana.

Tók ákvörðunina

Baltasar segir einnig í sam­tal­inu við Mannlíf að „nún­ingur“ hafi verið á milli manna á Ing­ólfs­hvoli enda álag og pláss­leysi að plaga menn. Það hafi þó verið algjör­lega hans ákvörðun að færa hrossin yfir á Ármót, líkt og til hefði staðið frá upp­hafi. „Ég ákvað að taka þessa ákvörðun og not­aði tæki­færið því það var svona nún­ingur milli fólks og þetta var erfitt, lítið pláss og mikið af fólki og mikið álag. Magnús, stað­ar­hald­ari getur stað­fest þetta en það voru líka aðrir aðilar sem reka þetta með honum, sem voru ekki sáttir við að þetta væri þarna. Þannig að ég tók þá ákvörðun að færa þetta á stað­inn sem við vildum hafa þetta á, fyrst þessi staða væri komin upp. En Magnús sagði við mig end­ur­tekið og fyrir framan þetta fólk líka, að við værum vel­komin aftur eftir þrjár vikur þegar meist­ara­deildin væri búin.“

Gróf reiðmennska

Því hefur verið haldið fram í fjöl­miðlum og á sam­fé­lags­miðl­unum að sár hafi verið á þeim hrossum sem hesta­þjálf­ar­arnir þjálf­uðu. Mannlíf spurði Baltasar hvort svo hafi verið. „Það var dýra­læknir kall­aður til en það geta komið sár á hesta af ýmsum ástæðum, hjá íslenskum reið­mönnum líka. Þeir geta bitið hvorn annan og það getur komið gaddur en það var þarna ein­hver nuddsár eftir keðjur en það var dýra­læknir sem fór yfir þetta allt saman.“ En hvað fannst Baltasar per­sónu­lega um mynd­skeiðið? „Mér fannst þetta gróf reið­mennska og ekki eitt­hvað sem ég var til­bú­inn að standa fyrir.“

Ekki misþyrming

Hvað varðar orð Ingunnar Reyn­is­dóttur dýra­læknis sem ræddi við Mannlíf eftir að hafa séð mynd­skeiðið og kall­aði með­ferð­ina á hest­unum „mis­þyrm­ingu“, segir Baltasar það ansi stór orð. „Hún hefur enga aðkomu að þessu. Það er ekki einu sinni 100 pró­sent á hreinu, en það eru margir sem hafa skoðað þetta, hvort hann sé að slá hest­inn eða slá við hest­inn. Mér finnst þetta samt grodd­ara­leg reið­mennska en mis­þyrm­ing er ansi stórt orð, mis­beit­ing, þetta er gróf reið­mennska en mis­þyrm­ing er eitt­hvað sem verið er að gera við börnin á Gazasvæðinu.“ Segist Baltasar ekki vera að verja reið­mennsk­una enda hafi hann stoppað þetta og rekið þjálf­ar­ana áður en MAST stöðv­aði þetta.

Segir Baltasar að hug­myndin hafi verið að gefa íslenska hest­inum „glugga sem hann hafði aldrei fengið áður“. „Auðvitað er ég ekki einn að standa að þessu verk­efni. Það er BBC sem stendur að þessu verk­efni og ég er að vinna með þeim. Hug­myndir var að gefa íslenska hest­inum glugga sem hann hafði aldrei fengið áður, með aðal­hlut­verk í þess­ari þátta­röð. Það var mein­ingin á bak­við þetta.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi