Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Neitaði að fara á sjó og seldi ginseng í staðinn: „Nei Guð minn góður, ég hef ekki tíma í það“

Neitaði að fara á sjó og seldi ginseng í staðinn: „Nei Guð minn góður, ég hef ekki tíma í það“

Sigurður Þórð­ar­son, fyrr­ver­andi stýri­maður, hætti til­neyddur á varð­skip­unum eftir að hafa neitað að fara í jóla­túr. Til að bjarga fjár­hag fjöl­skyld­unnar seldi hann krafta­verka­efnið Ginseng frá Kóreu sem hann hafði keypt erlendis. Salan á rauðu eðal ginseng, gekk glimr­andi og hann sló heims­met og hætti alveg á sjónum.

Sigurður tók þátt í Land­helg­is­stríð­inu. Hann segir frá því þegar þeir á varð­skip­inu Alberti reyndu að klippa trollið frá breskum tog­ara en varð­skipið hafði ekki kraft til að ljúka verk­inu. Áhöfnin lenti í háska þegar breskur drátt­ar­bátur keyrði á skip þeirra. Messagutt­inn fékk tauga­á­fall í borð­salnum.

Sigurður segir Reyni frá því þegar hann var kom­inn í land og í þægi­legt starf hjá Land­helg­is­gæsl­unni á Reykja­vík­ur­flug­velli við að leið­rétta kort sem var afar mik­il­vægt en þægi­leg inni­vinna. Þegar hér var komið við sögu var Sigurður kom­inn með fjöl­skyldu og jólin að byrja. En þá hringdi sím­inn. „Sem mér fannst vera óheilla­sím­tal, frá Gæslunni,“ sagði Sigurður bros­andi og hélt áfram: „Og ég er bara beð­inn að fara út á sjó á Ægi, um jólin. Ég segi: „Nei, þetta gengur ekki, ég er kom­inn í annað starf, ég er bara hérna í kort­unum“. „Já kíktu á ráðn­inga­samn­ing­inn, þar stendur að þú sért stýri­maður“ sagði hann þá,“ sagði Sigurður og skellti upp úr.

Svo fór að Sigurður neit­aði að fara út á varð­skip­inu og var þá settur í svo­kallað straff, sem hann var ekki viss um hvað þýddi en senni­lega var um tíma­bundið brott­vik að ræða. En hjónin dóu ekki ráða­laus. „Ég ræði þetta við kon­una og hún segir: „Siggi, þú ferð ekk­ert út á sjó. Geturðu ekki selt ein­hverja ginseng-pakka upp í jóla­gjafir?“.“ Sigurður hafði nokkru áður unnið með Kín­verjum sem þrátt fyrir fátækt voru glað­lyndir og gerðu sér glaðan dag með því að brugga rís­vín. Tók Sigurður eftir því að þeir urðu aldrei timbraðir og spurð­ist fyrir um ástæð­una. Kom á dag­inn að þeir inn­byrtu svo­kall­aðar ginseng-rætur. Fór svo að okkar maður keypti tals­vert magn af ginseng af Kín­verj­unum til einka­nota og fyrir vini og vanda­menn.

Sigurður: „Þegar ég er settur í straff fyrir að mæta ekki á Ægi, þá varð það til þess að Íslend­ingar fóru að borða ginseng.“

Reynir: „Já, þú hlýðir kon­unni og ferð að selja.“

Sigurður: „Já ég fer að selja. Þetta voru fyrst ein­hver tvö, þrjú apó­tek og svo urðu þau fimm, sex og svo kemur Hagkaup í Skeif­unni inn í þetta. Og ég kaupi þrjá­tíu hylkja pakka og 50 hylkja pakka og svo selj­ast þeir upp og þá kaupi ég 100 hylkja pakka. Og ég er bara nýbú­inn að kaupa þegar ráðn­inga­stjór­inn hringir í mig, alveg óvænt og hefur uppi góð orð um mig, að ég sé nú fjöl­skyldu­maður og hafi reynst vel og að hann gæti ekki haft það lengur á sam­visk­unni að hafa mig í straffi. Og er með svaka­lega langan for­mála að þess­ari ræðu og segir „Þessu straffi er lokið hér með“. Og ég þurfti að bíða og bíða eftir að hann segði þetta, af því að ég var upp­tek­inn, var að taka á móti pönt­unum og svona. Þannig að ég segi „Benedikt minn, ég hef bara ekki tíma til að fara á sjó núna“.“

En ráðn­inga­stjóri Gæsl­unnar var að bjóða honum gamla starfið aftur, að fara í kortin á Reykja­vík­ur­flug­velli. „Ég sagði „Nei Guð minn góður, ég hef ekki tíma í það“,“ segir Sigurður í við­tal­inu og heldur áfram: „Það var ekki lið­inn klukku­tími, þá var kom­inn heim einn skip­herra og stýri­maður, til að tékka á því hvort það væri ekki í lagi með karl­inn. Hvort ég hefði dottið á höf­uðið eða eitt­hvað. En það kom svo í ljós að það átti fyrir Íslend­ingum að liggja að fara að kaupa ginseng í gríð og erg. Ég fór inn í öll apó­tek, allar heilsu­vöru­búðir, öll kaup­fé­lög og alla stór­mark­aði nema ég gafst upp á Mikla­garði af því að þeir voru seinir að borga sem betur fer. Námsmenn not­uðu þetta fyrir prófin, sauð­fjár­bændur fyrir sauð­burð­inn og stjórn­mála­menn ef þeir ætl­uðu að ná árangri í póli­tík­inni. Og auð­vitað sjó­menn og bara allir.“

Aðspurður hver veltan hafi verið segir Sigurður: „Æ, ekki spyrja mig að því. En ég komst bara ágæt­lega af, ég og mitt fólk.“

Sjá þátt­inn í heild sinni hér. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi