Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Davíð Oddsson leiðbeinir forsetaefnum: „Ákvað þáverandi forseti að ganga erinda „útrásarvíkinga“

Davíð Oddsson leiðbeinir forsetaefnum: „Ákvað þáverandi forseti að ganga erinda „útrásarvíkinga“
Davíð Oddsson Mynd: Facebook

„Á sínum tíma ákvað for­seti að ganga erinda „útrás­ar­vík­inga“ með því að beita neit­un­ar­valdi í máli sem var í raun smátt í sniðum. Rík­is­stjórnin aft­ur­kall­aði ein­fald­lega frum­varpið, enda reis það ekki undir því að þjóðin yrði kölluð til,“ skrifar Davíð Oddsson rit­stjóri í leið­ara Morg­un­blaðs­ins í dag þar sem hann gerir upp við Ólaf Ragnar Grímsson, fyrr­ver­an­mdi for­seta Íslands, og deilir sýn sinni á for­seta­emb­ættið. Hann vísar með þessum orðum til fjöl­miðla­frum­varps­ins sem var að hans frum­kvæði. 

Guðni Th. Jóhann­es­son var kos­inn en Davíð beið afhroð. Mynd / Heima­síða Forseta Íslands

Davíð, sem var lengi í fremstu víg­línu íslenskra stjórn­mála, hefur lengi haft mik­inn áhuga á að kom­ast í stól for­seta Íslands. Þegar hann lét loks­ins til skarar skríða og fór í fram­boð beið hann sann­kallað afhroð og fékk aðeins um 14 pró­sent atkvæða og hafn­aði í fjórða sæti. Guðni Th. Jójhann­es­son var kjör­inn for­seti. Í leið­ara dags­ins gleðst Davíð yfir miklum áhuga lands­manna á emb­ætt­inu.

„Það er í raun­inni gleði­legt að sjá hversu margir telja sig vera upp­lagða í emb­ætti for­seta Íslands eða vilja að minnsta kosti tryggja að land­arnir eigi þann kost að velja sig í það hlut­verk,“ skrifar hann.

Davíð fjallar svo í löngu máli um emb­ætt­is­tíð Ólafs Ragnars Gríms­sonar sem hann átti í miklum úti­stöðum við lengst af ferli sínum sem stjórn­mála­maður.

Ólafur Ragnar Grímsson, fyrr­ver­andi for­seti.

„For­set­inn sá fékk Guðjón Frið­riks­son sagn­fræð­ing til að skrifa um sig bók og voru gömlu bank­arnir, sem útrás­ar­vík­ing­arnir höfðu blóð­mjólkað, látnir bera drjúgan hluta kostn­aðar,“ skrifar Davíð í leið­ara dags­ins.

Hann segir að heiti bók­ar­innar hafi upp­haf­lega verið „Útrás­ar­for­set­inn“. Þetta hafi verið örstuttu áður en afleið­ingar af óábyrgri og stór­skað­legri fram­göngu „útrás­ar­innar“ voru að verða öllum ljósar. Guðjón hafi brugð­ist skjótt við. 

„Útrás­ar­for­set­inn“ breytt­ist í „Saga af for­seta“

„Bók­ar­efnið sendi höf­und­inn með hraði upp í útgáf­una til að breyta hinu nú vand­ræða­lega nafni og tókst það naum­lega, en menn sátu hins vegar uppi með efn­iskafl­ana. Nafnið „Útrás­ar­for­set­inn“ breytt­ist í „Saga af for­seta“,“ skrifar Davíð í háðs­tóni og bendir á að Ára­mótaskaup Sjón­varps­ins hafi verið helgað útrás­ar­for­set­anum. Hann nefnir hins vegar ekki sinn þátt í hrun­inu sem aðal­banka­stjóri Seðla­banknas þaðan sem hann var nán­ast bor­inn út. 

Í lok leið­ar­ans eru síðan föð­ur­legar leið­bein­ingar fram­bjóð­and­ans fyrr­ver­andi.

„For­set­inn, hver sem hann er, skal stíga var­lega til jarðar og halda sér fast í orð og anda stjórn­ar­skrár lands­ins og „taka sér “ aldrei það vald sem minnstu efa­semdir eru uppi um að rúmist innan þeirra vébanda,“ skrifar hann. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi