Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Hópur ferðalanga hætt kominn í miðri á: „Eins og að horfa á sökkvandi skip“

Hópur ferðalanga hætt kominn í miðri á: „Eins og að horfa á sökkvandi skip“
Ferða­menn­irnir voru heppnir að ekki fór verr. Mynd: DV-Fanney

Hópur ferða­manna frá Aust­ur­ríki lentu í svað­il­förum á rútu sinni á ferð sinni yfir Lindaá, austan Herðu­breið­ar­linda í ágúst árið 2000.

Litlu mátti muna að ekki færi hrylli­lega illa þegar 12 manna hópur aust­ur­rískra ferða­manna, einn leið­sögu­maður og bíl­stjóri er rúta þeirra fest­ist í Lindaá í ágúst árið 2000. Tveir far­þeg­anna og bíl­stjór­inn náðu að synda í land en restin hýrð­ist upp á þaki rút­unnar sem sökk smá saman ofan í belj­andi ánna. Elsti ferða­lang­ur­inn var kona á níræð­is­aldri. Þremur tímum eftir að rútan fest­ist var fólk­inu bjargað af björg­un­ar­sveitum en engum varð alvar­lega meint af en land­vörður var meðal þeirra sem hætt var kom­inn en báti sem hann kom á í til­raun sinni til að bjarga fólk­inu valt og féll hann í ána en komst svo að rút­unni.

DV fjall­aði ítar­lega um slysið á sínum tíma en hér fyrir neðan má lesa gömlu frétt­ina:

Sig­ur­steinn Bald­urs­son kom fyrstur Íslend­inga á slys­stað eftir að rútan fór út í Lindaá:

Rútan var sem sökkvandi skip – fólkið stóð í vatni á toppi bíls­ins – þeim síð­ustu bjargað á ell­eftu stundu


„Ég vakn­aði um hádeg­is­bilið inni í skála þegar erlendur ferða­maður kom í mik­i­ili geðs­hrær­ingu og sagði að eitt­hvað væri að í ánni. Við vissum ekki hvað það var en lögðum af stað á fjórum jeppum. Þegar við komum á stað­inn ætl­aði ég ekki að trúa mínum eigin augum. Ég vissi að eitt­hvað var að en ekk­ert þessu likt,“ sagði Sig­ur­steinn Bald­urs­son, rit­stjóri Ferðir.is, sem varð fyrstur á vett­vang á slys­stað við Lindaá, austan Herðu­breið­ar­linda, eftir að erlendur ferða­maður á reið­hjóli hafði fyrst komið í skála Ferða­fé­lags Íslands og til­kynnt um rútu­slysið. Ferða­mað­ur­inn hafði hjólað allt hvað af tók til að láta vita, um 7 kíló­metra leið. Sig­ur­steinn var í skál­anum ásamt nokkrum land­vörðum frá öðrum stöðum á land­inu sem höfðu verið að „halda jól“ eins og það var orðað í hópnum.

Mér brá illa – landvörður hætt kominn

„Mér brá illa þegar ég sá fólkið uppi á rút­unni úti í ánni. Rútan, sem stóð á hjól­unum, var komin utan í klöpp. Það var eng­inn vegur að kom­ast að fólk­inu frá landi,“ sagði Sig­ur­steinn. Hann sagði að Kári Krist­jáns­son, land­vörður í Hvanna­lindum, og Elísabet Krist­jáns­dóttir, land­vörður í Öskju og Herðu­breið­ar­lindum, hefðu tekið fram tveggja manna gúmmí­bát og kom­ist við illan leik út að rút­unni. „Þegar þau nálg­uð­ust rút­una hvolfdi bátnum og Kári fór í ána með straumnum en rétt náði að kom­ast upp á rút­una. Hann var hætt kom­inn,“ sagði Sig­ur­steinn. „Síðan var þetta eins og að horfa á sökkvandi skip. Þegar tím­inn leið grófst æ meira undan rút­unni. Þetta var farið að líta illa út. Við marg­reyndum að kasta böndum yfir til fólks­ins en það bar engan árangur. Öflugur bátur eða þyrla var eina leiðin til að bjarga þeim sem stóðu þarna uppi á toppi rút­unnar. Það var hræði­legt að sjá hvernig vatnið braut á efri hluta fram­enda bíls­ins. Áður en björg­un­ar­sveitimar komu á vett­vang var fólkið allt orðið umlukið vatni,“ sagði Sig­ur­steinn.

Létu fólkið syngja og klappa

Sig­ur­steinn sagði að Kári og Elísabet hefðu greini­lega látið þýsku ferða­menn­ina klappa og syngja til að missa ekki kjarkinn. „Fólkið var búið að þjappa sér saman efst á rútu­toppnum. Einn maður stóð aftan á, ofan á vara­hjól­inu. Við vorum í geðs­hrær­ingu að fylgj­ast með þessu öllu úr landi. Þetta var eins og að hafa á til­finn­ing­unni að vera staddur nokkra metra frá fólki sem er í mik­illi lífs­hættu án þess að geta nokkuð gert,“ sagði Sig­ur­steinn. Sig­ur­steinn sagði að þegar björg­un­ar­sveit­ar­menn hefðu komið á vett­vang hefðu menn haft mjög snör hand­tök, svo ekki sé meira sagt. Gúmmí­bátur með mótor hefði verið tek­inn fram og menn rennt sér mjög fag­lega að rút­unni og tekið mið af straumnum. Hófu menn þá að sel­flytja ferða­menn­ina í land. Sig­ur­steini tald­ist til að björg­un­ar­menn hefðu farið fimm ferðir með fólkið áður en allir voru komnir á þurrt, flestir blautir og mjög kaldir. TF-LÍF, stærri þyrla Land­helg­is­gæsl­unnar, kom á vett­vang þegar búið var að bjarga öllum nema fimm í land. Var ákveðið að hún yrði í hang­flugi yfir staðnum og biði átekta enda gekk björg­un­ar­starf bjarg­vætta úr landi mjög vel fyrir sig. Sig­ur­steinn telur að innan við hálf­tími hafi liðið frá því að þeir fyrstu fóru í land þangað til allir voru hólpnir. „Þessir björg­un­ar­menn eiga mikið hrós skilið enda mátti engu muna að rútan væri komin á kaf þegar þeir síð­ustu fóru í land,“ sagði Sig­ur­steinn Bald­urs­son. „Þetta var mesti spennu­tryllir sem ég hef upp­lifað.“

Kona á níræð­is­aldri meðal far­þeg­anna

„Þetta er allt í lagi. Við erum heil á húfi,“ sagði einn Aust­ur­rík­is­mann­anna sem komið var með til Húsa­víkur eftir miklar mann­raunir þar sem rúta þeirra lenti á kafi á mótum Lindaár og Jökulsár á Fjöllum skömmu fyrir hádegi i gær. Fólkið klifraði upp á þak rút­unnar en bíl­stjór­anum og tveim far­þegum tókst að synda í land. Land­verðir komu fólk­inu til aðstoðar klukku­tíma síðar og þremur tímum eftir að rútan fest­ist í ánni komu björg­un­ar­sveitir á vett­vang. Tólf aust­ur­rískir ferða­menn, einn leið­sögu­maður, bíl­stjóri rút­unnar og tveir land­verðir voru fluttir á sjúkra­húsið á Húsavík til eft­ir­lits í gær, ýmist með þyrlu Land­helg­is­gæsl­unnar TF-LÍF eða með bílum. „Þetta var tölu­vert mikil björgun, en aðal­at­riðið er að allir sluppu heilir og við vorum að koma með átta hingað til Húsa­víkur á björg­un­ar­sveit­ar­bílnum,“ sagði Friðrik Jónsson, björg­un­ar­sveit­ar­maður úr björg­un­ar­sveit­inni Þingey á Húsavík, er hann var að bera teppi og annað sem notað var við að bjarga fólk­inu úr Jökulsá á Fjöllum út í björg­un­ar­sveit­ar­bíl­inn. „Þetta tókst vel, það björg­uð­ust allir,“ sögðu hressir björg­un­ar­sveita­menn þegar komið var með hrakta, kalda og blauta ferða­menn­ina á sjúkra­húsið á Húsavík í gær­kvöldi. „Þetta hefur haft tölu­verð áhrif á sumt af fólk­inu,“ sagði læknir á sjúkra­hús­inu á Húsavík í sam­tali við DV í gær. Ein 84 ára gömul kona, ald­urs­for­set­inn í hópnum, gisti á sjúkra­hús­inu á Húsavík í nótt en var útskrifuð í morgun. Hitt fólkið gisti á hót­eli á Húsavík í nótt og var fatn­aður þess hreins­aður og þurrk­aður í nótt. Fólkið mun sam­kvæmt heim­ildum DV ákveða í dag hvort það ætlar að halda áfram ferð­inni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi