Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Bollar sem hvetja til dráps á Rússum seldir í vefverslun – Vörumerkið Ísland á könnunum

Bollar sem hvetja til dráps á Rússum seldir í vefverslun – Vörumerkið Ísland á könnunum

Úkra­ínska vef­versl­unin Íslnd shop selur ýmis­konar fatnað, skart­gripi og aðrar vörur. Þar er einnig hægt að kaupa bolla með hat­urs­orð­ræðu gegn Rússum en boll­arnir eru ræki­lega merktir Íslandi.

Rússnesk kona sem býr á Íslandi hafði sam­band við Mannlíf eftir að henni var bent á bolla sem seldir eru á úkra­ínskri vef­síðu en á boll­unum er mynd af hnífi og á þeim stendur „slátrið Rússunum“.

Konan sem Mannlíf ræddi við er á móti inn­rás Rúss­lands inn í Úkraínu en er einnig á móti svona hat­urs­orð­ræðu. „Það sem líka vekur athygli er að þeir nota nafnið „Ísland“ á vörur sínar. Þannig, með því að nota nafn lands okkar, kallar rót­tæka fólkið í Úkraínu eftir morði á öllu fólki af rúss­neskum upp­runa. Við skiljum öll vel að stríð er hræði­leg­asti atburður nútím­ans. Hins vegar er líka glæpur að skilja slík mál eftir án eft­ir­lits. Ég er rúss­nesk, fædd­ist í Sov­ét­ríkj­unum, blóð nokk­urra þjóð­erna rennur í æðum mínum, þar á meðal rúss­nesk og úkra­ínsk. Og ég á ætt­ingja og vini bæði rúss­neska og úkra­ínska. Ég er hneyksluð á stefnu Pútíns. En ég er líka hneyksluð á svona máli.“

Lýsingin á boll­unum á vef­síð­unni er einnig nokkuð óhugn­an­leg en þar stendur í íslenskri þýð­ingu: „Raun­veru­leg og mjög ein­læg ósk hvers Úkra­ínu­manns er að her­náms­landið hverfi af heimskort­inu. Og svo að allir skilji: Í mörg hund­ruð ára til­veru sinni hefur Rússland aðeins borið með sér illsku og eyði­legg­ingu. Ef boll­inn þinn brotnar óvart, ekki hafa áhyggjur, þú veist í hvað þú getur notað brotin.“

Annar Rússi sem Mannlíf ræddi við segir að því miður ger­ist svona í stríðum og að öfga­menn finn­ist í báðum löndum.

Mannlífi er ekki kunn­ugt um ástæð­una fyrir því að Ísland sé skrifað á boll­ana líka en svo virð­ist sem um ein­hverss­konar vöru­merki sé að ræða en Islnd TV YouTube rásin virð­ist vera á bak­við vef­versl­un­ina. Mannlíf sendi tölvu­póst á vef­versl­un­ina í dag en hefur ekki enn fengið svar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Heimur

Heimur

Dóm­ara­deilan sýður upp úr í Póllandi

Heimur

Skoska lög­reglan rann­sakar tengsl Andrews við Epstein

Heimur

Fá borgað fyrir að ganga með vél­hunda um San Francisco

Heimur

Dul­ar­fullt ákall á net­inu vekur ótta við óeirðir á Tenerife

Heimur

Átta ára drengur skot­inn til bana

Heimur

Beit lög­reglu­hund í háls­inn eftir þriggja tíma flótta