Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Féll ofan í sprungu á Snæfellsjökli: „Bölsótaðist og skammaðist yfir eigin flónsku“

Féll ofan í sprungu á Snæfellsjökli: „Bölsótaðist og skammaðist yfir eigin flónsku“

Jón Auðunn Jónsson lög­fræð­ingur skrapp á Snæ­fells­jökul við fimmta mann í októ­ber­byrjun árið 1994. Litlu mun­aði að ferðin yrði hans síð­asta.

Í byrjun októ­ber árið 1994 fór Jón Auður Jónsson og nokkrir félagar hans upp á Snæ­fells­jökul en mágur hans, sem var á vélsleða, ferjaði menn­ina einn af öðrum upp á jökul­inn og var Jón Auðunn fyrstur. Mágurinn skildi hann svo eftir með kíki á meðan hann sótti næsta mann. Þegar Jóni var farið að leið­ast biðin ákvað hann að fara í göngutúr uppi á jökl­inum. Gekk sá túr ekki betur en svo en að hann féll ofan í stærð­ar­innar sprungu. Hélt hann að þarna hefði hann mætt örlögum sínum en átta árum áður hafði hann fallið ofan í síló í grjót­muln­ings­vél og end­ur­upp­lifði það slys er hann féll í sprung­una. Það sem varð Jóni til happs var hópur björg­un­ar­sveit­ar­manna sem mættir voru á jökul­inn í könn­un­ar­leið­angri. Drógu þeir hann upp með hjálp kað­als.

DV fjall­aði um málið á sínum tíma en hér fyrir neðan má lesa frétt­ina:

Féll í djúpa jök­ul­sprungu á Snæ­fellsjökli og var bjargað:

Þóttist viss um að þetta væru enda­lokin – björg­un­ar­sveit­ar­menn í könn­un­ar­leið­angri björg­uðu mann­inum

„Ég var þarna uppi með kíki og fólk­inu sem var með mér dvald­ist eitt­hvað niðri við bíl­ana. Þegar mér var farið að leið­ast þófið fór ég að ganga því að útsýnið var mjög gott. Ég sá helj­ar­mikla sprungu og út frá henni var önnur sprunga. Ég taldi mig hafa gengið fyrir hana en áður en ég vissi af húrraði ég niður í hana. Ég kom niður þar sem hún var grynnst en nokkrum metrum neðar var hún 30 til 40 metra djúp. Ég stóð þarna niðri og bölsót­að­ist og skamm­að­ist yfir eigin flónsku,“ segir Jón Auðunn Jónsson lög­fræð­ingur en á sunnu­dag féll hann ofan í átta metra djúpa sprungu á Snæ­fellsjökli.



Jón Auðunn var á ferð á Snæ­fells­nesi um helg­ina við fimmta mann. Mágur hans, sem var með í ferð, var með vélsleða og var ákveðið að fara upp á jökul­inn. Mann­skap­ur­inn var sel­fluttur upp og fór Jón fyrstur ásamt mági sínum sem skildi hann eftir með kíki og fór eftir næsta manni. Þegar hann kom aftur hafði Jón hins vegar fallið ofan í sprung­una. Snjó­skafl huldi botn sprung­unnar þar sem Jón lenti og slapp hann með minni­háttar meiðsli. Mágur Jóns leit­aði um stund og fann hann ofan í sprung­unni og fór niður eftir hjálp. Á leið­inni niður ók hann fram á fjóra menn. Svo vel vildi til að það voru menn úr björg­un­ar­sveit Ingólfs í Reykja­vík sem voru að leita að hent­ugu æfinga­svæði fyrir stóræf­ingu sem fram á að fara um næstu helgi. Þeir voru ánægðir með að vera á staðnum en helst hefðu þeir viljað að þetta hefði gerst helg­ina eftir.

Féll í grjót­muln­ings­vél fyrir 8 árum Þetta er ekki í fyrsta skipti sem Jón Auðunn lendir í svip­uðu óhappi. Fyrir átta árum starf­aði hann hjá verk­taka í sum­ar­leyfi frá skóla og þá féll hann ofan í síló grjót­muln­ings­vélar. Hann meidd­ist illa á fótum en slapp á undra­verðan hátt við frek­ari áverka.

„Það flugu margar hugs­anir um huga minn þótt ég væri ekki þarna niðri nema í um 20 mín­útur og biðin var ömur­leg. Um tíma ótt­að­ist ég það að jökul­inn færi á hreyf­ingu og sprungan myndi lok­ast en ég úti­lok­aði fljótt þá hugsun. Þegar ég hins vegar féll þá fannst mér ég vera að falla ofan í grjót­muln­ings­vél­ina aftur. Það var svo skrítið að þrátt fyrir að 8 ár séu liðin síðan það gerð­ist þá birt­ist minn­ingin mér ljós­lif­andi. Ég var viss um að þetta væru enda­lokin og sagan væri að end­ur­taka sig með verri endi. Eini mun­ur­inn var að nú var slysið minni flónsku að kenna,“ segir Jón Auðunn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Mannlífið

Myndir
Mannlífið

Novasvellið rís á Ing­ólfs­torgi

Jólin nálgast óðfluga
Mannlífið

Opn­un­ar­veisla Bryggju­húss­ins að hefj­ast

Mannlífið

Mæður sem taka sjálfur eiga dætur sem vilja frekar fegr­un­ar­að­gerðir

Mannlífið

Hvers vegna eru börn oft að segja þessa setn­ingu?

Mannlífið

Bæj­ar­há­tíðin Í tún­inu heima stendur með miklum blóma í Mos­fellsbæ

Mannlífið

Bangsa­fé­lagið heldur upp á afmæli með stór­há­tíð og nýrri keppni