Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Telur að Bjarni myndi tapa fyrir kálhaus: „Ekkert endilega málefnalegur samanburður“

Telur að Bjarni myndi tapa fyrir kálhaus: „Ekkert endilega málefnalegur samanburður“
Bjarni Bene­dikts­son for­sæt­is­ráð­herra tal­aði um stjórn­ar­skrá Íslands í stefnu­ræðu Mynd: Skjáskot RÚV

Píratinn Björn Leví Gunn­ars­son er þekktur fyrir að vera einn af mál­efna­leg­ustu þing­mönnum Alþingis um þessar mundir en í nýj­ustu færslu þing­manns­ins á sam­fé­lags­miðl­inum Facebook er hann nokkuð ómál­efna­legur í garð Bjarna Bene­dikts­sonar og gerir sér fylli­lega grein fyrir því.

„Í ákveð­inni póli­tískri satíru var sett upp keppni á milli þáver­andi for­sæt­is­ráð­herra Bret­lands og kál­hauss. Svo fór að kál­haus­inn vann,“ skrifar Björn.

„Ég held að þetta sé mjög merki­legt lýð­ræð­is­legt próf þegar kemur að æðstu ráða­mönnum og þetta próf ætti vel við kom­andi for­seta­kosn­ingar. Spurn­ingin væri hvort ein­staka fram­bjóð­endur gætu sigrað kál­haus í einn á móti einum kosn­ingum. Eflaust er hægt að finna eitt­hvað sem er ekki alveg eins gild­is­hlaðið og kál­haus, en dæmið er þarna til staðar, þannig að við höldum okkur við það bara.“

Prófið á við um Bjarna

„Einnig, nú þegar ný rík­is­stjórn tekur við, og ef það fer eins og heim­ildir mogg­ans herma að Bjarni taki við sem for­sæt­is­ráð­herra, þá held ég að þetta próf eigi vel við líka,“ heldur þing­mað­ur­inn áfram í færsl­unni.

„Því þó hann hafi vissu­lega fengið flest atkvæði meðal margra fram­bjóð­enda, þá held ég að hann myndi tapa í einn á móti einum kosn­ingum við nán­ast hvern sem er. Meira að segja við kál­haus því mun fleiri vilja bara ein­hvern annan við stjórn­ar­taumana (skv. skoð­ana­könn­unum) en styðja hann. And­stæð­una var að finna hjá frá­far­andi for­sæt­is­ráð­herra, þar sem mun fleiri vildu hana sem for­sæt­is­ráð­herra en kusu flokk hennar. Þetta er súr­r­eal­ískt lýð­ræð­is­legt dæmi, að blanda kál­haus í málið. En það sýnir okkur líka hversu súr­r­eal­ísk staðan er í stjórn­málum ef kál­haus gæti virki­lega verið val­inn fram yfir ein­hverja fram­bjóð­endur.“

Hitler eða kálhaus

„Ég geri mér grein fyrir því að það eru eflaust ein­hverjir að klifra upp móðg­un­ar­stig­ann vegna þessa sam­an­burðar hjá mér,“ skrifar Björn og hefur litlar áhyggjur á að fólki móðg­ist. „Það verður bara að hafa það. Stundum þarf að taka ýkt og stuð­andi dæmi til þess að sýna fram á skrítna stöðu mála. Hin ýkta hliðin er að benda á að Hitler vann lýð­ræð­is­legar kosn­ingar … það þýðir ekki að það sé verið að líkja neinum við Hitler eða kál­haus. Alls ekki. Ef ein­hver reynir að halda því fram að það sé mein­ingin með þessu þá er verið að gera mér upp skoð­anir sem er eitt af helstu vanda­mál­unum í stjórn­málum í dag. Það er sífellt verið að búa til strá­menn, eins og það heitir. Þetta er heldur ekk­ert endi­lega mál­efna­legur sam­an­burður heldur. Auðvitað ekki. Þetta er súr­r­eal­ískur sam­an­burður. Ætlaður sem slíkur. Staðan er þrátt fyrir það sú, að mínu mati, að Bjarni myndi tapa í fram­boði til for­sæt­is­ráð­herra gegn þessum kál­haus af því að fólk myndi frekar vilja hvern sem er annan.“

Óviðeigandi dæmi

„Þetta er bara skoðun. Ég geri mér fylli­lega grein fyrir því að þetta er óvið­eig­andi dæmi, en mér finnst nauð­syn­legt að gera svona öfga­fullan sam­an­burð til þess að sýna hversu alvar­leg mér finnst lýð­ræð­is­lega staðan vera,“ skrifar Björn svo að lokum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi