Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Vigfús hefur alltaf fiskað vel: „Þetta hefur reddast einhvern veginn“

Vigfús Mark­ús­son skip­stjóri hefur gengið í gegnum raunir sem lifa með honum ævi­langt. Árið 1983 fórst Bakkavík ÁR í inn­sigl­ing­unni að Eyr­ar­bakka. Þrír bræður voru um borð. Vigfús komst einn af. Hann hélt samt áfram á sjónum og á að baki 50 ár, sem skip­stjóri lengst af. Ein af hans upp­á­halds­slóðum er Brjálaði hrygg­ur­inn.

Vigfús segir sögu sína í Sjó­ar­anum.

Brjálaði hryggurinn

Vigfús ólst upp alveg við hafið.

„Þetta sner­ist allt um báta á Bakkanum. Og þegar maður var peyi var maður að leika sér í fjör­unni. Fjaran var aðal­leik­sviðið hjá manni. Þá smíð­aði maður báta til að draga á eftir sér og svo voru peyjar á eftir manni sem voru hásetar.“

Vigfús fór í Stýri­manna­skól­ann í Vest­manna­eyjum. Þar voru með honum í bekk tveir menn sem lentu í sjó­slysum og sluppu líka.

Hann ætl­aði sér að verða sjó­maður. „Þetta var svona á þessum litlu stöðum; það var bara ekk­ert annað í boði,“ segir Vigfús og bætir við að hann hafi aldrei unnið í landi.

Vigfús kann vel við sig á sjónum.

Hann seg­ist fyrst hafa gengið á milli báta; þá var hann á rækju. Svo fór hann á Brynjólf ÁR og varð skip­stjóri. „Hann var ver­tíð­ar­bátur. Við vorum á netum, trolli og humar.“

Hann nefnir svo Álaborg frá Eyr­ar­bakka. „Ég var hjá þeim í 16-18 ár; þar sem ég hef stoppað hef ég yfir­leitt verið lengi. Svo fór ég af Ála­borg­inni yfir á Skarfinn og svo á Tómas Þor­valds­son. Ég var í 14 eða 15 ár hjá Þor­birn­inum. Tómas Þor­valds­son var gamli Héðinn og síðan breyttu þeir honum í línu­bát. Ég var á móti Sæmundi Hall­dórs­syni þar; þar fékk ég eld­skírn­ina á lín­unni.“

Vigfús hefur verið fisk­inn á ferl­inum.

„Þetta hefur redd­ast ein­hvern veg­inn. Ég hef aldrei pælt í því, en þetta hefur alltaf gengið upp.“

Brjálaði hrygg­ur­inn tog­aði svo­lítið í Vigfús. „Ætli það hafi ekki verið veðrið. Alltaf vit­laust veður þar.“

Og í hitti­fyrra fór hann að fara út á Dohrn-banka og segir hann veið­ina þar vera mjög góða. „Og mjög góður fiskur. Hann var allur mass­aður ein­hvern veg­inn. Stífur.“

Vigfús segir að hann hafi verið heppn­astur í veið­inni þegar hann var með Brynjólf. „Þá var ég á vík­inni – við Vík í Mýrdal – og við vorum á trolli. Það voru tvö höl á sól­ar­hring. Þá brun­aði ég í Þor­láks­höfn og land­aði og svo bara út aftur. Þetta heppn­að­ist.“

Vigfús segir að það sé óhemju­mikið af fiski við landið. Hann er spurður hvort það viti ekki allir í kerf­inu um það. „Það sem maður hefur heyrt eins og á Dohrn-bank­anum; ég held að þessi fiskur sé ekki inni í kerf­inu.“

Eru menn ekk­ert að auka kvóta í sam­ræmi við alla þessa veiði? „Nei, það er frekar á hinn veg­inn finnst manni.“

Vigfús var á Örvari SH 777 fram að ára­mótum en þá var Örvar seldur til Pat­reks­fjarðar. Og núna er hann á Rifsnesi SH 44.

Sjá þátt­inn í heild sinni hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi