Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Kosningu um nýtt og umdeilt merki Þróttar frestað á hitafundi

Kosningu um nýtt og umdeilt merki Þróttar frestað á hitafundi
Þrótt­arar – Myndin teng­ist frétt­inni ekki beint – Mynd: Þróttur

Und­an­farna viku hefur átt sér stað mikil og hörð umræða í Laug­ar­dalnum um til­lögu stjórnar Þróttar um að félagið taki upp nýtt merki en núver­andi merki Þróttar hefur staðið óhaggað síðan 1980. Nýja merkið, sem er teiknað af hönn­un­ar­stof­unni Farvi, þykir frekar ólíkt gamla merk­inu en rauðar og hvítar rendur félags­ins eru horfnar á braut í merk­inu sem og svört umgjörð og stafir.

Á auka­að­al­fundi í kvöld til­kynnti Bjarn­ólfur Lárusson, for­maður aðal­stjórnar og fyrrum atvinnu­maður í knatt­spyrnu, að kosn­ingu á merk­inu yrði frestað í ljósi þess hversu illa var staðið að kynn­ingu á merk­inu og fund­inum og klöpp­uðu allir 50 gestir fund­ar­ins þeim fregnum. Kosning mun fara fram 21. maí á aðal­fundi félags­ins.

Þar á eftir héldu hönn­uðir nýja merk­is­ins ræðu þar sem merkið var útskýrt fyrir gestum. Þegar því var lokið fengu stuðn­ings­menn Þróttar orðið og ríkti mikil sátt með áður­nefnda frestun en nokkrir ræðu­menn gagn­rýndu nýja merkið harð­lega og voru stór og sterk orð notuð. Heim­ildir Mannlífs herma að nýja merkið hefði lík­lega kol­fallið í kosn­ingu.

Hins vegar var kosið um að lið Þróttar hætti að keppa í hvítum stutt­buxum en kvenna­lið félags­ins hafa um ára­bil óskað eftir því að hætt verði að not­ast við þær. Var sú til­laga ein­róma sam­þykkt.

Nýtt merki (til vinstri) og núver­andi
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi