Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Halla segir Vigdísi vera fyrirmynd: „Eðlilegt að fjöldi meðmælenda endurspegli fjölda kjósenda“

Halla segir Vigdísi vera fyrirmynd: „Eðlilegt að fjöldi meðmælenda endurspegli fjölda kjósenda“

Halla Tóm­as­dóttir er róm­an­tísk í eðli sínu og líður best í heitu pott­unum eða út i í guðs grænni nátt­úr­unni. Þá hefur hún fjöl­breyttan tón­list­arsmekk og hlustar jafnt á Villa Vill og Unu Torfa. Mamma hennar er helsa fyr­ir­myndin í líf­inu, nei­kvæðni fer í taug­arnar á henni og hún skýrði son sinn í höfð­uðið á Bjarti í Sum­ar­húsum.

Hér má sjá svör for­seta­fram­bjóð­and­ans, Höllu Tóm­as­dóttur sem Mannlíf lagði fyrir hana:

Upp­á­halds­staður á Íslandi?

Náttúra og sund­laugar lands­ins. Líður hvergi betur en í góðu spjalli út í nátt­úr­unni eða í heitu pott­unum. Finnst hvergi betra að hug­leiða en í guf­unni eða á göngu við sjó­inn.

Á forseti að sitja lengur en tvö kjörtímabil?

Ég tel nauð­syn­legt að breyta ákvæðum stjórn­ar­skrár­innar um emb­ætti for­seta Íslands. Þar á meðal því hvað lengi for­seti má sitja í emb­ætti. Ég held að  lýð­ræð­inu sé ekki hollt að for­seti sitji lengur en í 3 kjör­tíma­bil.

Hvaða breytingar viltu sjá á stjórnskipan Íslands?

Þetta er stór spurn­ing og ekki hægt að svara henni í stuttu máli – svo mitt svar á þessu stigi er að ég vil skerpa skilin í þrí­skipt­ingu valds­ins, þannig að lög­gjaf­ar­vald, fram­kvæmda­vald og dóms­vald séu í raun aðskilin.

Hver er þinn uppáhaldsforseti?

Ég var lítil stelpa þegar Vigdís varð for­seti Íslands. Kjör hennar hafði gríð­ar­leg áhrif ekki aðeins á jafn­rétti, heldur á þá mála­flokka sem hún lagði höf­uð­á­herslu á. Land, þjóð og tunga – mann­helgi, nátt­úru­vernd, saga og menn­ing. Vigdís hefur verið dýr­mæt fyr­ir­mynd og haldið fal­lega utan um okkur í gleði og sorg.

Finnst þér að gera eigi kröfu um fleiri fjölda með­mæl­enda fram­bjóð­enda til emb­ættis for­seta Íslands?

Mér finnst eðli­legt að fjöldi með­mæl­enda end­ur­spegli fjölda kjós­enda. Núver­andi fjöldi var ákveð­inn fyrir miðja síð­ustu öld, þegar mann­fjöldi og aðstæður voru önnur en í dag. Mér finnst líka þurfa að ræða hvort for­seta­kosn­ingar ættu að vera tví­skiptar þannig að kosið yrði milli efstu fram­bjóð­enda í seinni umferð til að tryggja að  for­seti njóti stuðn­ings meiri­hluta kjós­enda.

Hver er þín helsta fyrirmynd í lífinu?

Mamma. Hún hefur svo stórt hjarta og er bar­áttu­kona og berst fyrir þeim sem mest þurfa á því að halda. Hún var með fyrstu þroska­þjálfum á Íslandi og sann­kall­aður frum­kvöð­ull í mál­efnum fatl­aðra.

Hver er uppáhaldstónlist þín?

Ég hlusta á alls kyns tón­list – allt eftir aðstæðum og ég á erfitt með að gera upp á milli. En ég get sagt að íslensk tón­list sé í upp­á­haldi. Ég elska ýmis­legt gam­alt og gott eins og Villa Vill og Ellý. Lagið Vetr­ar­sól á sér­stakan sess í mínu hjarta. Valdimar og Sigga Toll eru í miklu upp­á­haldi, sér­stak­lega lagið Líttu sér­hvert sól­ar­lag. Til við­bótar get ég nefnt GDRN, Unu Torfa og FLOTT. Við eigum svo margt frá­bært tón­list­ar­fólk og mér finnst erfitt og í raun óþarft að gera upp á milli.

Hefurðu neytt ólöglegra fíkniefna?

Ég hef aldrei brotið lög með neyslu efna.

Gerði Ólafur Ragnar Grímsson rétt með því að beita neitunarvaldinu á sínum tíma?

Mér finnst Ólafur Ragnar hafa nýtt mál­skots­rétt­inn vel í til­felli icesave. Það hefði ekki verið rétt­látt að láta næstu kyn­slóðir sitja uppi með skulda­bagga vegna óábyrgrar áhættu­sækni okkar kyn­slóðar.

Hver var stærsta stundin í lífi þínu?

Að verða móðir, sem ég hef fengið að njóta tvisvar sinnum. En mér er líka ógleym­an­legur Þjóð­fund­ur­inn 2009, þegar fimmtán hund­ruð manns komu saman til að ræða sam­eig­in­leg gildi og fram­tíð­ar­sýn.

Hver eru mestu vonbrigðin?

Ég er lítið fyrir eft­ir­sjá og vel að draga lær­dóm af allri lífs­reynslu. Ég á því erfitt með að velja ein­hver ein von­brigði því allt sem gerst hefur í mínu lífi hefur eflt mig, þótt margt hafi verið erfitt. Það veldur mér helst von­brigðum að verða vitni að nei­kvæðni og þröng­sýni. Við verðum að nýta krafta okkar til góðs – fyrir hvert annað og ekki síst fyrir næstu kyn­slóðir. Við verðum að taka til­lit til þeirra – ég þekki engan sem ekki vill það besta fyrir börnin sín og barna­börn, en það er ekki nóg að vilja það besta, það þarf að vinna að því besta fyrir fram­tíð­ina.

Fallegasta ljóðið?

Þau eru svo mörg.  Fyrst upp í hug­ann kemur ljóð Ingi­bjargar Har­alds­dóttur um ham­ingj­una:

Á hverjum morgni

vakna ég við hlið þér

og hugsa:

þarna er hún lif­andi komin,

ham­ingjan.

Ég fékk lista­konu til að mála þessar ljóð­línur í mál­verk sem ég gaf mann­inum mínum í morg­un­gjöf fyrir 25 árum. Ljóðið segir mér það sama nú og það gerði þá.

Besta skáldsagan?

Það er engin ein “best.” Sjálf­stætt fólk hafði svo mikil áhrif á mig að sonur okkar var skírður Tómas Bjartur. Bjartur í Sum­ar­húsum sendir okkur sterk skila­boð um að við erum öll hvert öðru háð. Það stendur eng­inn einn.

Hvað er það besta við Ísland?

Landið, víð­áttan, tungu­málið, menn­ingin, sam­heldnin sköp­un­ar­kraft­ur­inn og sund­laug­arnar.

Kanntu á þvottavél?

Þvotta­vél? Hvað er það?

Ef þú ættir eina ósk, Íslendingum til hagsbóta, hver væri hún?

Að við tökum alvar­lega sam­talið og sam­starfið um fram­tíð­ina – stillum okkar átta­vita saman svo næstu kyn­slóða bíði betri heimur.

Að þínu mati, hvert er helsta hlutverk forseta Íslands?

Að hjálpa okkur að vera sam­hent og skap­andi þjóð..

Borðarðu þorramat?

Það geri ég. Elska svið, slátur, allan fjöl­breytta inn­mat­inn og und­ar­lega kæstu fyr­ir­brigðin, og auð­vitað harð­fisk, rúg­brauð og flat­kökur með hangi­kjöti, en játa að ég er minna fyrir súr­mat­inn.

Ertu rómantísk/ur?

Já,  fyrir mér er róm­an­tíkin ekki flókin. Góður matur, góð tón­list, kerta­ljós og ein­lægt sam­tal.

Í stuttu máli; hvers vegna ætti að kjósa þig til embættis forseta Íslands?

Vegna þess að ég vil leiða saman fólk, gefa því vett­vang til að hlusta hvert á annað  og skipt­ast á skoð­unum og hug­myndum um hvernig við getum þróað okkar sam­fé­lag þannig að fram­tíð barn­anna okkar verði sem best. Þetta hef ég unnið við með góðum árangri und­an­farin ár og ég veit að þetta getur for­seti gert.

Senn rennur út frestur til að safna lág­marks­fjölda með­mæl­enda, ætli maður sér að sækj­ast eftir því að verða for­seti Íslands. Á átt­unda tug manna hefur að und­an­förnu safnað með­mælum en nokkrir hafa nú þegar náð þeim áfanga og eru því gjald­gengir í fram­boð.

Mannlíf lagði spurn­inga­lista fyrir þeim fram­bjóð­endur sem náð hafa lág­marks­fjölda með­mæla, svo þjóðin fái að kynn­ast þeim betur. Munu svör fram­bjóð­end­anna vera birt á næstu vikum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi