Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Sviðið er autt – Pétur er látinn

Sviðið er autt – Pétur er látinn

Leik­ar­inn, leik­stjór­inn og fyrr­ver­andi skóla­stjóri Leik­list­ar­skóla Íslands, Pétur Ein­ars­son, and­að­ist í gær – var hann 83 ára að aldri.

Kemur þetta fram í til­kynn­ingu frá fjöl­skyldu Péturs; en hann and­að­ist á hjúkr­un­ar­heim­il­inu Mörk.

Pétur fædd­ist 31. októ­ber 1940 í Vest­manna­eyjum; var sonur Einars Gutt­orms­sonar læknis og Mar­grétar Krist­ínar Pét­urs­dóttur hús­móður.

Pétur lauk námi frá Leik­list­ar­skóla LR og stund­aði leik­list­ar­nám í Háskól­anum í Georgíu í Banda­ríkj­unum. Hann kom víða við á ferl­inum en hann vann lengst af hjá Leik­fé­lagi Reykja­víkur.

Hann lék á tíunda tug hlut­verka í leik­sýn­ingum félags­ins. Má þar nefna Dúfna­veisl­una, Atóm­stöð­ina, Selurinn hefur manns­augu, Pétur og Rúna og Hart í bak. Hann lék Greger Werle í Villiönd­inni árið 1975, tit­il­hlut­verkið í Makbeð ári síðar og aðal­hlut­verkið í Sölu­maður deyr árið 2002.

Síðasta hlut­verk hans var þjónn­inn í Kirsu­berja­garð­inum árið 2011. Pétur var val­inn heið­urs­fé­lagi Leik­fé­lags Reykja­víkur 2017.

Pétur lék ein­leik­inn Býr Íslend­ingur hér hjá Íslenska leik­hús­inu árið 1993 og fór með sýn­ing­una í leik­ferð til Þýska­lands og lék hana á þýsku.

Helstu hlut­verk hans í sjón­varpi voru Loftur í Galdra-Lofti árið 1970 og Gunnar í Degi vonar árið 1988. Pétur leik­stýrði fjölda verk­efna meðal ann­ars Popp­leiknum Óla, rokk­óp­er­unni Súperstar og Loka­æf­ingu.

Pétur var fyrsti skóla­stjóri Leik­list­ar­skóla Íslands eftir stofnun hans árið 1975. Hann gegndi þeirri stöðu til árs­ins 1983 og byggði þar upp grunn að leik­list­ar­menntun á Íslandi, sem flutt­ist síðar yfir í Lista­há­skóla Íslands. Hann kenndi leiktúlkun bæði meðan hann var skóla­stjóri og síðar. Pétur var í leik­hús­ráði Leik­fé­lags Reykja­víkur, stofn­fé­lagi Félags leik­stjóra á Íslandi og for­maður þess um tíma, for­maður Sambands félaga leik­stjóra á Norð­ur­lönd­unum, for­maður Leik­list­ar­ráðs, rit­ari Leik­list­ar­sam­bands Íslands og full­trúi Íslands í stjórn Norræna leik­list­ar­sam­bands­ins.

Pétur sat um tíma í stjórn Banda­lags íslenskra lista­manna, Lista­há­skóla Íslands og Kvik­mynda­sjóðs auk þess sem hann var full­trúi Íslands í Norrænu leik­list­ar­nefnd­inni. Um langt skeið vann Pétur við að hjálpa fólki að hætta að reykja með aðferð Allen Carr’s, The Easy Way to Stop Smoking.

Eft­ir­lif­andi eig­in­kona Péturs er Birgitte Heide, list­dans­ari og kenn­ari hjá List­dans­skóla Íslands. Pétur lætur eftir sig sex börn og ell­efu barna­börn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi