Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Jónas spyr um orkumálin: „Erum við á leið í enn eina söluferðina til erlendra stórfyrirtækja?“

Jónas spyr um orkumálin: „Erum við á leið í enn eina söluferðina til erlendra stórfyrirtækja?“

„Eru orku­málin að fara úr bönd­unum?“ spyr Jónas Guð­munds­son, sem er fyrr­ver­andi rektor á Bifröst í Norð­ur­ár­dal.

„Hingað til hafa margir staðið í þeirri trú að orku­skiptin væru aðal­við­fangs­efnið í orku­málum lands­manna. Því varð undrun mín mikil á upp­lýs­inga­fundi Orku­veit­unnar fyrir nokkrum dögum. Þar kynnti for­stjór­inn nýjar áherslur, „straum­hvörf í orku­málum“; við viljum „taka umræð­una lengra,“ sagði hann; laða til lands­ins erlend fyr­ir­tæki til að nýta ork­una.

Annar stjórn­andi Orku­veit­unnar tal­aði um „græna orku­fram­leiðslu á heims­vísu“—að sjálf­sögðu í „sátt við nátt­úr­una“.

Þá fannst Jónasi „um stund ég vera kom­inn langt aftur á síð­ustu öld. Hefur þessi stefnu­breyt­ing hlotið blessun þeirra sem fara með almanna­valdið, umsjón­ar­að­ila orku­auð­linda lands­ins og eig­enda stærstu orku­fyr­ir­tækj­anna? Er sátt um hana meðal helstu hag­að­ila?“

Bætir við:

„Það eru ekki nema 17 ár síðan hörð sam­fé­lags­á­tök stóðu um bygg­ingu virkj­unar á Aust­ur­landi. Erum við á leið í enn eina sölu­ferð­ina til erlendra stór­fyr­ir­tækja? Er þörf fyrir þessar fram­kvæmdir—þegar efna­hags­lífið stendur á blístri og ekk­ert er hægt að gera nema flytja inn til þess erlent vinnu­afl?

Rétt er að minn­ast þess að við höfum áður farið koll­hnísa í atvinnu­málum með offjár­fest­ingu í ákveðnum greinum—við höfum meira að segja átt lítið not­aðar virkj­anir í langan tíma, sem er dýr­keypt ráð­stöfun, eins og tveir stjórn­endur hjá Lands­virkjun minntu á í nýlegri blaða­grein.“

Gðu­laugur Þór.

Jónas færir í tal að „orku­mála­ráð­herra er tamt að tala um orku­skort. Á áður­nefndum fundi sagði hann af mynd­bandi: „Við erum bara á vondum stað. Og við erum eig­in­lega ekk­ert búin að gera í 15 ár í raf­orku, í 20 ár í hita­veitu, og það er bara komið að skulda­dögum“ (upp­taka er aðgengi­leg á https://orkuveitan.is/hrein-taekifaeri).

Ég get ekki betur séð en að hér sé um fölsun stað­reynda að ræða. Raf­orku­fram­leiðsla í land­inu (vatns og jarð­varma) er nú um 20 tera­vatt­stundir (TWh) á ári. Hún hefur auk­ist um 2,2 TWh á tíu árum, eða um 12%—þar af eru þrjár stór­fram­kvæmdir, Búð­ar­háls­virkjun, Þeista­reykja­stöð og Búr­fells­stöð 2; ef farið er aftur fyrir bygg­ingu Kára­hnjúka­vikj­unar þá hefur fram­leiðslan tvö­fald­ast. (Sjá https://ff7.is/2024/02/er-ekkert-verid-ad-framleida/).

Varð eng­inn var við þessa aukn­ingu og í hvað fór hún? Hún fór ekki nema að litlu leyti til heim­il­anna í land­inu.“

Að mati Jónasar hafa lyk­il­stað­reyndir varð­andi orku­málin farið for­görðum:

„Orku­stofnun segir í orku­spá sinni: Bein notkun raf­orku vegna orku­skipta verður nærri 2,4 tera­vatt­stundir (TWh) og allt að 10 TWh vegna fram­leiðslu raf­elds­neytis árið 2050 til jafns við notkun inn­an­lands og milli­landa. Orku­skiptin munu eiga sér stað í áföngum, enda liggja ýmsar tækni­legar lausnir ekki enn fyrir, t.d. varð­andi skip og flug­vélar. Áætlað er að orku­skiptin nái hámarki 2050 til 2060.

Fram hefur komið að vegna raf­bíla­væð­ingar allra fólks­bíla í land­inu þurfi ein­ungis að auka raf­orku­fram­leiðslu um 3%. Vitað er að flutn­ings­kerfi hamlar nýt­ingu þeirrar raf­orku sem fram­leidd er; í fréttum RÚV í des­em­ber kom fram að þessi sóun á raf­orkunni næmi 0,5-1,2 TWh, amk. jafn­mikið og Kröflu­virkjun fram­leiðir.“

Hann segir að mik­ill seina­gangur hafi „verið við úrbætur á flutn­ings­kerf­inu, sem vænt­an­lega er hag­kvæm­asti orku­öfl­un­ar­kost­ur­inn og mik­il­vægur fyrir orku­ör­yggi lands­manna—þar liggur hund­ur­inn graf­inn varð­andi nokkrar fiski­mjöls­verk­smiðjur sem ekki hafa aðgang að nægi­legu raf­magni.

Það er svosem góðra gjalda vert að orku­fyr­ir­tækin athugi alla hag­kvæma orku­kosti fyrir fram­tíðna. Þau munu vera að skoða margt, ekki aðeins raf­orku og varma­orku (þ.á.m. lág­hita­orku), heldur líka sól­ar­orku, sjáv­ar­öldu­orku, og vind­orku. En til hvaða verk­efna? Hverju má fórna til? Á hvaða tíma?“

Orku­öfl­un­ar­tækn­inni fleygir fram og ástæða virð­ist vera til að bíða með sum verk­efni svo við sitjum ekki uppi með óhag­kvæm nátt­röll sem þegar hafi valdið miklum skaða, segir Jónas og bætir við:

„Ákefðin virð­ist hafa auk­ist til muna og hættan blasir við. Margt bendir til að þró­unin verði jafn kaó­tísk og orku­mála­um­ræðan. Opinberu orku­fyr­ir­tækin eru með langan óska­lista yfir nýjar virkj­anir. Og nú eru einka­að­ilar líka komnir á fullt. Hvað eru margar smærri vatns­virkj­anir í und­ir­bún­ingi á þeirra vegum? Fyrir liggur að 34 vind­myllu­verk­efni séu í þróun og nokkur þeirra komin til Skipu­lags­stofn­unar. Hvert vind­myllu­verk­efni er á við með­al­stóra vatns­virkjun. Vænt­an­lega er það hagn­að­ar­von þess­ara einka­að­ila, og þeirra erlendu aðila sem sagðir eru standa á bak­við flestar þeirra, sem knýr þá áfram. Þeir ætla sér stóran hlut af orku­auð­lindum lands­ins. Og þeim er vor­kunn; þeir þurfa lítið sem ekk­ert að greiða fyrir ork­una og aðrir koma til með að bera skað­ann og kostn­að­inn, ytri áhrifin, sem eru ekki reiknuð með í dæmin: rösk­un­ina, sjón­meng­un­ina, sárin í land­inu, inn­viða­breyt­ing­arnar og fleira.“

Jónas nefnir að „stað­setn­ing og umgjörð orku­fram­kvæmda skiptir höf­uð­máli. Skipu­lags­stofnun hefur lagt til að vind­orku­ver – sé þeirra þörf – verði helst byggð á stöðum sem þegar hefur við raskað, svo sem iðn­að­ar­svæðum og við hafnir. Stofn­unin hefur einnig hvatt til þess að mótuð verði stefna um bygg­ingu vind­mylla í hafi úti; má hugsa sér að yfir­gefnar eyði­eyjar kæmu til greina í því sam­bandi?“

Hann ljær máls á því að „sam­kvæmt Vís­inda­vef Háskóla Íslands eru tæp­lega 1200 eyjar við landið og 5000 sker. En engin lög eða stefna liggur fyrir sem ná yfir þessar villtu virkj­ana­hug­myndir. Jafnvel er verið að meta hug­myndir um vind­orku­ver á við­kvæmum og dýr­mætum svæðum. Þannig er t.d. verið að meta 100 mega­vatta virkjun í Norð­ur­dal í Borg­ar­firði, í einni af fal­leg­ustu sveitum lands­ins, í næsta nágrenni við nokkrar af mestu nátt­úrperlum lands­ins; önnur virkjun af sömu stærð mun vera í und­ir­bún­ingi í sama dalnum.

Fram hefur komið að virkj­ana­hug­mynd­irnar eru þró­aðar í ein­dreg­inni and­stöðu við nær­sam­fé­lagið í sveitum Borg­ar­fjarðar. Samt eru þær enn á dag­skrá. „Hver vill eiga og reka vind­myllu­garð við ramma andúð heima­fólks?“ spurði Bjarni Bjarna­son þáver­andi for­stjóri Orku­veit­unnar á aðal­fundi Orku­veit­unnar 2022. Bjarni, sem er einn fremsti sér­fræð­ingur þjóð­ar­innar í orku­málum, skrif­aði nokkru síðar um öll vind­myllu­verk­efnin:

Bjarni Bjarna­son.

„Verði þessi sýn að veru­leika ættum við engu umhverf­isslysi til að jafna úr Íslands­sög­unni… Hér væri reyndar ekki um slys að ræða, því myll­urnar yrðu reistar af ásetn­ingi, með fullri vit­neskju um hin víð­tæku umhverf­isá­hrif.“

Full ástæða er til að hægja á frekar en að herða á í orku­mála­um­ræð­unni. Okkur hefur oft orðið dýr­keypt að fara langt á undan okkur í að leysa vanda—sem kannski er ekki til. Að mínu mati væri ástæða til að leggja afgreiðslu vind­myllu­hug­mynda til hliðar þar til sýnt er hvort þörf verður fyrir bygg­ingu slíkra krefj­andi mann­virkja og fyrir liggur stefna sem sátt er um varð­andi stað­setn­ingar þeirra. Það er engin bráð þörf á nýjum orku­frekum og meng­andi iðn­aði inn í landið. Við ættum að ein­beita okkur að raun­hæfum hug­myndum um orku­skiptin og rann­sóknum á orku­kostum sem sátt verður um.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi