Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Helga slapp naumlega frá skotárás skæruliða: „Þetta eru strákar sem eru oft dópaðir og ruglaðir“

Helga slapp naumlega frá skotárás skæruliða: „Þetta eru strákar sem eru oft dópaðir og ruglaðir“
Barn­ungir skæru­liðar munda vopnin í Líberíu árið 1992.

Helga Þór­ólfs­dóttir var heppin að sleppa lif­andi þegar hún lenti í skotárás skæru­liða í Líberíu í sept­em­ber 1994.

Helga starf­aði sem félags­ráð­gjafi fyrir Rauða kross­inn á þessum tíma en hún hafði unnið í Sómalíu og Líberíu um nokk­urt skeið, þegar hún varð fyrir þeirri hræði­legu lífs­reynslu að lenda afar óvænt í skotárás skæru­liða í Líberíu. Helga var í bíla­lest starfs­manna Rauða kross­ins og frið­ar­gæslu­liða Sam­ein­uðu þjóð­anna, á leið til Monróvíu, höf­uð­borg Líberíu, þegar skæru­liða­hópar, sem réðu á svæð­inu sem þau voru að keyra í gegn um, hófu að skjóta á hvorn annan. Helgu leyst ekki á blik­una eftir að skot­hrífin hófst og yfir­gaf bíl sinn og hljóp í burtu. Vegna mik­illar úrkomu neydd­ist Helga til að skríða um í drullu á flótt­anum.

Litlu mun­aði að hún léti lífið í árásinni en þrír frið­ar­gæslu­liðar voru skotnir til bana. Það var ekki fyrr en einum og hálfum klukku­tíma eftir að árásin hófst, að Níger­íski her­inn gat stöðvar hana. Í við­tali við DV á þeim tíma sagð­ist Helga aldrei ætla að snúa aftur til Líberíu.

Hér má sjá umfjöllun DV um skotárás­ina:

Vorum heppin að lifa þetta af

-segir Helga Þór­ólfs­dóttir sem lenti í skotárás skæru­liða í Líberíu

„Maður bara hugs­aði um að hlaupa og koma sér í burtu. Það var skotið úr öllum áttum og maður vissi ekki lengur hvaðan skot­hríðin og sprengj­urnar komu. Við hlupum og hlupum, ofan í skurði og það var rign­ing þannig að við skriðum í drull­unni. Við vorum í mik­illi hættu og við vorum mjög heppin að lifa þetta af. Ég hugs­aði allan tíma þetta er ekki mitt síð­asta. Ég ætla mér að kom­ast í gegnum þetta,“ segir Helga Þór­ólfs­dóttir félags­ráð­gjafi sem lenti í því að skotárás var gerð á bíla­lest sem hún var í á leið frá Líberíu til Monróvíu fyrir skömmu. Þrír frið­ar­gæslu­liðar Sam­ein­uðu þjóð­anna lét­ust í árásinni en Helga, sem hefur starfað á vegum Rauða kross Íslands í Líberíu sl. þrjá og hálfan mánuð, slapp naum­lega ásamt öðru starfs­fólki Rauða kross­ins og frið­ar­gæslu­liðum sem með henni voru. „Við vorum að starfa inni á svæði þar sem var ákveð­inn skæru­liða­hópur sem hafði völdin. Þegar þessi hópur byrj­aði síðan að berj­ast inn­byrðis varð algjört stjórn­leysi þannig að við urðum að flýja. Við ætl­uðum að reyna að kom­ast til landamær­anna en við vorum stoppuð af og haldið af her­mönnum í einn sól­ar­hring. Við komumst til frið­ar­gæslu­lið­anna, sem eru Tansan­íu­menn, næsta dag og þar vorum við næstu tíu dag­ana og reyndum að finna leiðir til að kom­ast til Monróvíu.“ Helga segir að þegar hóp­ur­inn lenti í skotárásinni hafi hann verið kom­inn inn á svæði ann­arra skæru­liða. „Við vitum í raun ekki af hverju þessi árás var gerð og það voru í raun allir óvið­búnir því að það yrði gerð árás á okkur á þessum stað. Við vorum stöðvuð af her­mönnum við vega­tálma. Skyndi­lega heyrði ég að það var skotið. Svo heyrð­ist annað byssu­skot og því næst heyrði ég vél­byssu­skot. Þá ákvað ég að yfir­gefa bíl­inn og hljóp í burtu. Þá byrj­uðu þeir að skjóta sprengju­vörpum og þá svör­uðu Tansaniu­menni­mir.“ Helga segir að þetta hafi síðan endað með því að skrið­drekar frá Níger­íu­mönnum hafi komið og stoppað átökin eftir einn og hálfan tíma.

Ætlar aldrei aftur til Líberíu

Helga er nú stödd í Genf en hún er á leið í smá­frí til Írlands. Að því loknu ætlar hún að koma heim til Íslands og taka sér frí í nokkrar vikur þar til hún verður send eitt­hvað annað á vegum Rauða kross­ins. „Það eru flestir sam­mála um að Líbería sé eitt af fáum löndum í heim­inum þar sem það er alveg á mörk­unum að það sé hægt að vinna þar vegna þess að her­menn­irnir þar eru ger­sam­lega óag­aðir. Þetta eru strákar sem eru oft dóp­aðir og rugl­aðir og ger­sam­lega óút­reikn­an­legir. Það er ekk­ert land eins slæmt og Líbería þannig að við sem unnum þarna erum ákveðin í að fara aldrei þangað aftur,“ sagði Helga að lokum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi