Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Dagur segir fréttaflutning Maríu Sigrúnar og RÚV rangan: „Kannski var það gott sjónvarp“

Dagur segir fréttaflutning Maríu Sigrúnar og RÚV rangan: „Kannski var það gott sjónvarp“
Dagur B. Egg­erts­son. Mynd: Reykjavík.

Mikil spenna ríkti hjá mörgum þegar innslag Maríu Sigrúnar Hilm­ars­dóttur, frétta­konu RÚV, um bens­ín­stöðva­lóðir í Reykja­vík var sýnt í Kast­ljósi. Upp­haf­lega stóð til að sýna innslagið í rann­sókn­ar­blaða­mennsku­þætt­inum Kveik en upp kom ágrein­ingur milli Maríu og yfir­manna hennar í Kveik og var hún látin fara frá þætt­inum. Greint var þó frá því að mögu­lega yrði innslagið sýnt í Kast­ljósi.

Sam­sær­is­kenn­inga­smiðir gripu bolt­ann á lofti og fóru að tala um þöggun og vin­áttu útvarps­stjóra við Dag B. Egg­erts­son, fyrr­ver­andi borg­ar­stjóra. Innslagið hefur nú verið sýnt og virð­ast Reyk­vík­ingar nokkuð tví­skiptir í afstöðu sinni en innslagið fjallar um að Reykja­vík­ur­borg sé í raun að gefa eig­endum bens­ín­stöðva í borg­inni millj­arða króna að óþörfu. Annar hóp­ur­inn telur um meiri háttar upp­ljóstrun hafi verið að ræða sem kallar á afsögn Dags B. Egg­erts­sonar meðan hinn hóp­ur­inn telur innslagið vera alvar­lega gallað og sett vill­andi fram. Þá hefur Reykja­vík­ur­borg gert alvar­legar athuga­semdir við innslagið en Baldvin Þór Bergsson, rist­jóri Kast­ljóss, hafnar þeim athuga­semdum

Dagur svarar fyrir sig

Dagur B. Egg­erts­son setti inn mjög langa færslu fyrr í dag á sam­fé­lags­miðl­inum Facebook þar sem hann tjáir sig um málið og hann er væg­ast sagt ósam­mála frétta­flutn­ingi RÚV.

„Ég var spurður að því af Friðjóni Frið­jóns­syni í borg­ar­stjórn í gær hvað mér hefði þótt um fram­setn­ingu Kastljós-þáttar Maríu Sigrúnar sem sýndur var á mánu­dags­kvöld og hefur verið mikið til umræðu. Ég legg út af fyrir sig ekki í vana minn að gefa fjöl­miðlum ein­kunnir – þótt ég við­ur­kenni að Morg­un­blaðið hefur á köflum verð­skuldað setn­ingu eða tvær. Ég hef þess vegna setið á mér að tjá mig um Kastljós og viljað gefa frétta­stofu Rúv færi á að leið­rétta sumt af því sem þar var sett fram. Það virð­ist þó eitt­hvað djúpt á þeim leið­rétt­ingum og þess vegna rakti ég aug­ljós­ustu atriðin í því í ræðu í borg­ar­stjórn. Ég lá heldur ekki á því að mér fannst fram­setn­ingin ein­hliða og ýkju­kennd og þar með og því miður í mik­il­vægum atriðum röng. Það var svo und­ar­leg upp­lifun að vera kynntur til leiks í myrku her­bergi undir sorg­legri eða dramat­ískri fiðlu­tón­list þar sem ég virt­ist vera að benda á eitt­hvað á blaði sem alls ekki væri þar. Ég sé að Stak­steinar Morg­un­blaðs­ins telja þessa senu hina merki­leg­ustu og hafa komið neyð­ar­lega út fyrir mig. Fallegt og gott að geta glatt Moggann,“ skrifar borg­ar­full­trú­inn.

„Kannski var það gott sjón­varp – drunga­legt fund­ar­her­bergi og fiðlu­tón­list undir – en varla merki­leg frétta­mennska. Kastjós á ekki að vera Stak­steinar. Ég læt tölvu­póst­inn til Maríu Sigrúnar með hinni til­vitn­uðu grein úr samn­ings­mark­mið­unum og erind­is­bréfi samn­inga­nefndar – úr gögnum borg­ar­ráðs frá 9. maí 2019 fylgja með. Hann var sendur henni sama dag og við­talið fór fram þannig að ekki gæti farið á milli mála að hún vissi hvað væri hið sanna í mál­inu, sama hvernig fram­setn­ing hennar á end­anum yrði.“

Hægt er að lesa alla færslu Dags hér fyrir neðan

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi